Heim

Heima Skjalasafnið

Mánudagur 20. ágúst 2007

After the storm...

Nú eru flutningarnir að mestu leyti afstaðnir... eitt og annað er ennþá á Eiríksgötunni og eitthvað í vinnunni hjá Steinari, en 90% af öllu sem við eigum er komið í hús... þar á meðal kisi :-D
Ásdís og Hallur komu með hann 'heim' í gærkvöldi og nú er hann bara að rölta um íbúðina og þefa af öllu :-) Æi, ég er svo glöð að litla skinnið mitt eigi loksins heimili hjá mér aftur.

Mamma og Sigríður Ásta hjálpuðu mér að þrífa á laugardaginn og svo komu Sigga, Davíð, Mamma, Steinar, Gréta, mamma Unnars og Gunni (vinur U.) að hjálpa okkur :-)
Halldór og Anna komu seint og um síðir... en ég naut góðs af þeim við að taka upp úr bókakössunum (Gréta aðstoðaði sko við það líka).

Ég set myndir af málningarvinnunni og nýju íbúðinni um leið og netsamband kemst á í Löngumýrinni.

Takk fyrir ómetanlega hjálp allir, ég sannfærðist ennþá betur um að ég á bestu vini í heimi :-D

Miðvikudagur 2. júlí 2008

Keilir

Um síðustu helgi fékk ég póst frá Keili um að mér hefði verið úthlutað íbúð þar... við glöddumst mjög og hófum að reikna út hversu mikið myndi sparast í akstur (taka rútuna á milli) og afborganir af íbúðinni (áttum að leigja á 58.000 og hefðum sennilega getað leigt okkar íbúð út á 120.000).
Þegar maður fær úthlutað á Keili hefur maður 2 daga til að staðfesta skráninguna og svo 2 daga til viðbótar til að koma sér upp á Völl og skrifa undir leigusamning. Svo snar hugsun og snörp handtök skiptu sköpum.

Síðasti dagur minn í fæðingarorlofi (gleði og bömmer á sama tíma) var á mánudaginn hugsuðum við málið á laugard. og sunnud. og ég fór upp á Vallarheiði á mánudaginn (með mömmu og afa í eftirdragi).
Við vorum svo heppin að íbúðin sem okkur var úthlutað stóð opin og menn frá ÍAV voru að vinna í henni þannig að ég gat farið og skoðað :-)

Nú, einu íbúðirnar sem ég hef komið inn í á Vallarheiði eru hjá Jónu og Evu. Þær eru báðar á öðru svæði en ég fékk úthlutað og eru með amerísku rafmagni.
Þeim íbúðum fylgja heimilistæki (ísskápur, eldavél, örbylgjuofn, þvottavél og þurrkari) og þær eru stórar og rúmgóðar.
Þessum íbúðum fylgir hinsvegar ekkert og eru þær töluvert minni.

Þessu komst ég ekki að fyrr en ég rakst á mann frá ÍAV sem sagði mér að ekkert ætti að vera í íbúðunum... hann hélt meira að segja að það ætti ekki að vera eldavél, en skv. íslenskum húsaleigulögum verða þær víst að fylgja... annars hefðu þær örugglega verið teknar út líka!

Ég fór upp á skrifstofu Keilis og bað þau vel að lifa. Ég nenni sko ekki að flytja með öll mín heimilistæki fyrir eitt ár... það er bara svo mikill kostnaður fólginn í því að það tekur því alls ekki.

Hálftíma eftir að ég sagði þeim að ég vildi ekki íbúðina þar sem ekkert fylgdi henni, hringdi einhver af skrifstofunni í mig og bauð mér að halda áfram að vera á biðlista... og þá eftir íbúð með tækjum.
Ég sagði bara já en tók líka fram að hún yrði að vera á jarðhæð eða í gæludýrablokk.

Mín bara með heimtufrekju ;-)

Svo kannski og kannski ekki erum við að flytja á Keili í haust.
Ólíklegra en líklegra samt.

Fimmtudagur 17. júlí 2008

Keilir II

Jæja, loksins er komin endanleg niðurstaða í Keilis-málið ógurlega.
Það var hringt í mig í dag og sagt að okkur hafi verið úthlutuð íbúð á East Avenue 1218 (fjögura herbergja á jarðhæð) og við þurfum að svara strax.
Íbúðirnar í 1200 hverfinu koma með ísskáp, eldavél, uppþvottavél, örbylgjuofni, þvottavél og þurrkara.
Ég bað um að fá 10 mínútur til að hugsa málið, hringdi í Unnar og við ákváðum í sameiningu að þetta yrði góð tilbreyting/lífsreynsla/eitthvað og erum því að flytja 18. ágúst!

Allir í stuði yfir að koma í partý til Keflavíkur... er það ekki???
:-D

Þriðjudagur 5. ágúst 2008

Klikkað flott veski!

2735851732_63df9fbe4e.jpg
Pantaði mér þetta frá Petals and polkadots á Etsy um daginn og fékk í dag... I love it!


Fimmtudagur 7. ágúst 2008

Grænjaxlinn

Verð gestahöfundur af nokkrum greinum á veftímaritinu Grænjaxlinn i ágúst.
Fylgist endilega með :-)

Mánudagur 11. ágúst 2008

Old flames

Auðvitað á maður aldrei að fara út úr húsi án þess að líta óaðfinnanlega út.. því hvað gerist ef þú ferð í Kringluna til að kaupa einn hlut og ert ekki búin að mála þig og ert á hraðferð (þannig að þú ert svolítið uppveðruð en ekki róleg og ákveðin) ?

Jú, þú hittir gamlan kærasta!
ARGH!

Mætir honum á ganginum... þekkir hann strax og hann beygir fyrir hornið og það fyrsta sem þú hugsar er:
OMG! Afhverju fór ég í þessum jakka!
Næsta hugsanir eru svo að sjálfsögðu:
Sjitt, ég er bara með maskara
Er ég búin að fitna síðan ég sá hann síðast?
Æi, gat ég ekki verið búin að versla aðeins fyrr?
Hmm.... hann hefur elst... og fitnað... og er ekki með neitt hár, ætil hann raki það af?
Guð, kannski er hann orðinn sköllóttur!
Hvaða kona er þetta með honum?

Svo mætir maður honum... hann lítur á mann og brosir... best að brosa líka :)
Hann: Hæ *bros*
Ég: Nei hæ, gaman að sjá þig *bros*
Hann: Sömuleiðis *bros*

Labbaði framhjá án þess að stoppa, hugsaði "hann er ennþá sætur" lít við og viti menn hann er að líta við líka
*Meira bros*

Sný mér við og hleyp að næsta útgangi... kannski var hann að horfa á eftir mér vegna þess að ég hef fitnað :(

Fer heim og knúsa kærastann minn.

Þriðjudagur 12. ágúst 2008

Leyndarmál, ekki segja frá...

Veit leyndó.
Má ekki segja :-D

Föstudagur 17. október 2008

Matarblogg, grænmeti

Ég lendi ótrúlega oft í því að kaupa fullt af grænmeti sem endar svo á því að mygla eða eitthvað þaðan af verra í ísskápnum hjá mér. Ég fór því á stúfana og fann út hvernig maður á að frysta grænmeti og ávexti.

Fyrst af öllu ætla ég að útskýra hvað orðið blansera (blanch) þýðir.
Blansera merkir að maður á að sjóða um 2 lítra (4 fyrir grænmeti með grænum laufum ) af vatni, setja lítið magn af niðurskornu grænmeti í sigti (eða vírnetskörfu eða netpoka) og láta ofan í vatnið í nokkrar mínútur.
Suðan má alls ekki detta niður og því verður vatnið að bullsjóða.
Eftir að grænmetið hefur verið ofan í í tiltekinn tíma er það tekið upp úr og sett samstundis í klakavatnsbað og kælt jafn lengi og það var blanserað.
Eftir það er grænmetið lausfryst á smjörpappír (frystibökkum) í svona hálftíma og svo sett í poka eða önnur frysti ílát.
Geymslutíminn er 3-12 mánuðir
Best er að velja grænmeti sem er fullþroskað og bragðmikið, þar sem alltaf tapast eitthvað af bragði við suðu og frystingu.

Hér eru leiðbeiningar um hvað á að gera við hvaða grænmeti fyrir sig (í stafrófsröð):

  • Aspas: hreinsa lauf og harða hluta, skera í bita og blansera í 2-3 mínútur.

  • Baunir (lima-, smjör-, pinto-, blackeye-, grænar-,): blansera í 3 mínútur.

  • Belgbaunir: blansera í 3 mínútur.

  • Blómkál: skera „hausana“ niður og blansera í 3 mín.

  • Brokkolí: skera „hausana“ niður og blansera þá í 3 mín.

  • Eggaldin: þvo, afhýða og sneiða. Blansera í 4 mín.

  • Ertur: afhýða, blansera í 1 mín. Lausfrysta.

  • Grasker: þvo, skera í litla bita og hreinsa fræin úr. Sjóða þar til mjúkt, afhýða, stappa, kæla, frysta.

  • Grænkál: hreinsa og blansera í 3 mín.

  • Grænt (spínat, kál, salatblöð): blansera í 1,5-2 mín.

  • Gulrætur: skera í bita eða sneiðar og blansera í 3 mín.

  • Gulrætur: skera í bita, blansera í 3 mínútur, lausfrysta.

  • Gúrka: saxa og setja í frystipoka.

  • Hvítkál: taka ystu laufin af og þvo restina. Rífa niður og blansera í 1 mín.

  • Kartöflur: þvoið, skrælið og skerið í bita. Blanserið í 5 mín.

  • Kúrbítur: skera í 1cm sneiðar og blansera í 3 mín.

  • Laukur: saxa gróft og frysta í frystipokum. Geymast aðeins í 3 mánuði.

  • Maís: Skera hvern kólf í 2-3 bita og blansera í 4-6 mín. Pakkið hverjum bita fyrir sig í filmu og frystið svo í frystipokum.

  • Nípur: hreinsa og skera í sneiðar. Blansera í 2 mín.

  • Paprika: þvo, skera í bita, lausfrysta.

  • Rauðrófur: sjóða þar til mjúkar, kæla, afhýða, skera í sneiðar, frysta.

  • Rófur: hreinsa, skera í bita, blansera í 3 mín.

  • Rósakál: snyrta og blansera í 3-5 mín.

  • Sellerí: skera í bita og blansera í 2 mín. Lausfrysta.

  • Sveppir: frysta í frystipokum. Passa upp á að lofttæma vel.

  • Sætar kartöflur: sjóða þar til mjúkar, afhýða og skera í sneiðar.*

  • Tómatar: þvo, skera í tvennt eða fernt. Þurkið mestu bleytuna af þeim og frystið.

Lesa meira "Matarblogg, grænmeti" »

Talning


Alls heimsóknir: 81695
Gestir í dag: 1
Gestir í gær: 9
Þennan mánuð: 24

Færslur: 1049
Álit: 3074

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme