Heim

Annað dútl Skjalasafnið

Fimmtudagur 20. nóvember 2008

Café Loki +++

Alveg síðan að Café Loki á Lokastíg (við Hallgrímskirkju) opnaði í júlí er ég búin að vera á leiðinni þangað.

Í dag átti ég nokkrar mínútur til aflögu og ákvað að skella mér á Loka og fá mér te.

Þegar komið er inn á staðinn eru myndir af Hallgrímskirkju í öllum mögulegum aðstæðum (kvöld, dagur, sól, snjór, flugeldar, norðurljós) á veggjunum upp stigann og þegar upp er komið mætir manni lítill salur, mjög heimilislegur en samt svolítið artý.
Útsýnið er skemmtilegt, Eiríksgatan, Njarðargatan, Hallgrímskirkja í forgrunni og Tækniskólinn til hliðar.
Á gluggunum eru hekluð blóm og á veggjunum hanga myndir af fjöllum. Þau eru reyndar hluti af þeirri sýningu sem er á staðnum núna, en það breytist með reglulegu millibili.

Matseðillinn samanstendur af íslenskum heimilismat og íslensku góðgæti og er það helst stílað inn á ferðamenn.
Kökur og brauð baka þær sjálfar og það eina sem er aðkeypt eru spelt beyglur.

Ég fékk mér reyndar ekki að borða í þetta sinn, en leist vel á matseðilinn.

Eini gallinn við Café Loka er að það er bara opið til kl. 18 á daginn.
Það er svolítið stór galli fyrir manneskju sem fer á kvöldin á kaffihús!

Það er reyndar verið að ræða það að reyna að hafa opið á kvöldin og ráðlegg ég að ef það verður gert, verði þetta nýji samkomu staður okkar!
Engin læti og rugl eins og niðri í bæ, engar fyllibyttur (það er ekki vínveitingaleyfi hér) og engin hávaði :-)

Café Loki fær +++ frá mér :-)

Þriðjudagur 18. ágúst 2009

Well, since I'm now a "Company girl"

... I think I must start bloging in english :-)

If any of you Company girls are reading this, here are some informations on me and my family:

I'm born february 18th 1977 and I'm a mother of 2 boys, Björgvin Hrafnar (november 10th 2007) and Þorgeir Úlfar (april 30th 2009). I'm finishing my bachelors in library and information studies this fall and there by fulfilling my lifelong dream of becoming a librarian :-)
I'm happily not married to Unnar (december 26th 1977) who is an electric engineer.

We live in Reykjavík, which is the capital of Iceland (pop. 300.000). It's an amazing country.. amazingly beautiful and equally amazingly expencive!

I hope I'll start bloging enthusiasticly again after joining the Company girls :-)

Talning


Alls heimsóknir: 79949
Gestir í dag: 12
Gestir í gær: 9
Þennan mánuð: 161

Færslur: 1049
Álit: 3074

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme