Menu plan monday
Eins og margir aðrir skipulagsfíklar, eru nokkrir hlutir sem VERÐA að vera á ákveðinn hátt.
Sumt er ég alveg hræðileg með, sumt er sveigjanlegt... upp að vissu marki.
Bækur í sömu bókaseríu verða að vera jafn stórar (DIscworld, Dark Tower, LOTR), box verða að passa saman í skápunum (þess vegna elska ég tupperware) og myndarammar eiga allir að vera úr sama efni.
Þetta er það sem VERÐUR að vera eins.
Svo væri ég rosalega glöð ef:
gluggatjöld, púðar, dúkar og mottur í sama rými væru í svipuðum (SAMA!) lit
krydd væru öll í eins umbúðum (allt frá Pottagöldrum t.d.)
pottar væru allir í sama lit
handklæði (stór sem smá) væru öll dröppuð eða blá og helst frá sama framleiðanda
herðatré væru öll hvít, úr plasti og með buxnaslá
og svo framvegis... þið skiljið hvað ég á við... er það ekki?
Get annars alveg tekið fleiri dæmi :-)
EN þessi færsla átti ekki að fjalla um þetta, nei, hún á sko að vera um annan þátt skipulagsáráttu minnar... nefnilega þann hluta sem snýr að mat.
Í vetur datt ég inn á síðu þar sem Laura (heimavinnandi húsmóðir með 3 börn OG stórfelda skipulagsáráttu) gefur góð ráð um skipulag heimilisins og matseldarinnar.
Umrædd Laura er búin að koma upp 'klúbbi' sem kallast Menu Plan Monday (MPM) og snýst hann eingöngu um að skipuleggja (á mánudögum) matseðil fyrir heila viku í einu.
Ég prufaði þetta og fannst eins og ég hefði himin höndum tekið... ég var ekki að ákveða kl. 18.45 hvað átti að vera í kvöldmat, ég sparaði í matarinnkaupum (t.d. með að hafa steiktan kjúkling í matinn á miðvikudegi og svo pítu með kjúklingaafgöngum á fimmtudegi) og ég fór að borða hollari mat :-)
En eins og með svo margt annað datt þetta uppfyrir með prófum, vinnu og hækkandi sól.
Nú er ég hinsvegar orðin frekar þreytt á að vera að grípa eitthvað 'fjótlegt' (og þar af leiðandi óholt) þegar ég er að drepast úr hungri og fór því aftur að lesa síðuna hjá Lauru og hinum skipulagsfíklunum :-)
Matseðillinn fyrir þessa viku er tilbúinn og ég er mas byrjuð að spá í matseðli næstu viku.
Hér fyrir neðan getið þið séð hvað verður í matinn út vikuna á mínu heimili :-)
Uppskriftirnar eru ekki óumbreytanlegar, dagsetningum er hægt að breyta ef tíminn er knappur og um helgar eru frjálsar hendur (að mestu leyti).



