Sófahopp
Nú er hjá okkur strákur sem heitir Sujai Kumar og er frá Indlandi.
Unnar sótti hann á flugvöllinn í gær (frábært að búa svona nálægt) og hann ætlar að vera þar til á morgun, þegar annar gestgjafi tekur við honum.
Sujai er frábær gestur. Hann kom með leikföng handa Björgvini, indversk púðaborð handa mér (rosalega falleg með fíl (Apu) og cameldýri (Rumalia)). Svo eldaði hann ekta indverskan mat handa okkur í gærkvöldi. Unnar var reyndar ekki heima en mamma og Steinar borðuðu með okkur :-)
Eitt annað sem er svalt við hann er að hann er tölvugaur :-D
Hann var t.d. að segja mér frá Google Chrome (var sko í útlöndum, tölvulaus :-þ ) og ótrúlega skemmtilegum vef sem heitir Flitta og er ágiskunarleikur tengdur myndum af flickr.
Sujai og Unnar eru búnir að vera í honum heillengi og eru orðnir nokkuð lunknir við að sjá hvaða borgir er verið að spyrja um :-)


