Heim

Kvart Skjalasafnið

Miðvikudagur 30. nóvember 2005

Æi, er eitthvað að?

Mér finnst skemmtilegt að blogga. Mér finnst gaman að þvinga mínum hugsunum upp á saklaust fólk :-þ
Mér finnst gott að koma frá mér því sem ég er að hugsa og því sem ég er að gera þá stundina.
Ég blogga örugglega of mikið.
Fólk hefur ekki tíma til að lesa öll bloggin mín, kommenta á þau og segja mér að blogga meira :-þ
Ég þyrfti kannski að eiga 3 blogg. 2 önnur sem enginn veit af og blogga þar þegar ég er farin að blogga á 12 tíma fresti eða minna. Bara fyrir mig.

Ég nenni ekki að læra.
Er komin með næstum allar spurningarnar... á bara eftir að prenta þær út og lesa þær yfir og læra þær utanað.
En mig langar eiginlega bara í sund.
Eða heim að sofa. Svaf mest lítið í nótt. Var andvaka. Það var eitthvað skrítið í gangi því Jessica, Sigrún og Loki voru líka öll vakandi meiri partinn af nóttinni. Vírd andi yfir húsinu.

Ætla upp í Kjarnaskóg í göngutúr í kvöld ef ég nenni. Verst að hafa engann með sér í svona rölt. Ekki það að ég hafi farið með einhverjum í Heiðmerkurferðir mínar í sumar og síðasta vetur... en þar hafði ég amk einhvern til að bjóða með ef mig vantaði félagsskap. Gréta ég sakna þín. Við förum í Heiðmörk þegar ég kem suður. Klæðum okkur bara vel og tölum við álfa :-D
1 ritgerð, 3 próf og 14 dagar þar til ég kem til Reykjavíkur.
Er farin að hlakka ískyggilega mikið til.

Er að hlusta á Stirb nicht vor mir með Rammstein. Sennilega í milljónasta skiptið á 3 dögum. Elska þetta lag.

Föstudagur 10. febrúar 2006

Æjjjiii

Afhverju get ég ekki fengið það sem ég vil?


Fimmtudagur 23. febrúar 2006

Ástfangin

Mig vantar svo sjúklega að verða ástfangin.
Ég kem miklu meiru í verk ef ég er skotin í einhverjum og svo er það bara svo óendanlega gott að vera hrifin.
Það er alveg heilt ár síðan ég var ástfangin síðast... jú jú, ég hef alveg orðið skotin í hinum og þessum en skotin hafa varla náð lengra en það... hafa varla orðið hrifning (nema eitt) en aldrei fengið að þróast í það að ég verði ástfangin.
Ég vil fá bleika skýið mitt til baka :-/

pink_cloud.jpg

Kúlisti dauðans

Er svalt að vera í tilvistarkreppu með frestunaráráttu og valkvíða?
Ef svo er þá er ég svöl í dag.

Miðvikudagur 1. mars 2006

Fuck up

Æi, ég var að fikta og fiktaði aðeins yfir mig.
Þegar (og ef) þið viljið svara færslu þá skulið þið byrja á að gera senda eða forskoða og skrifa innleggin ykkar eftir það.
því annars þurfið þið að skrifa þau tvisvar...

Þessu verður kippt í liðinn... veit bara ekki alveg hvenær.

Laugardagur 11. mars 2006

Hugur og hjarta

Hausinn á mér er búinn að gleyma honum, en hjartað neitar að sleppa takinu.
Reyni að hugsa að hann sé ekki maður fyrir mig, en það gengur illa.
Og ennþá skrítnara að langa í það sem maður getur ekki fengið.
Skrítið hvað er sárt að fá ekki það sem manni langar í.
Ég þoli ekki að geta ekki ráðið hugsunum mínum.
Ég vil nefnilega að hann sé það.
Mig dreymdi hann í nótt.
Sakna hans.

Lesa meira "Hugur og hjarta" »

Þriðjudagur 29. ágúst 2006

Karlmannslaus í kulda og trekki...

Já, titillinn segir allt sem segja þarf... þegar aðeins einn maður kemst að í huganum eiga aðrir víst ekki greiðan aðgang að mér í raunveruleikanum.

Laugardagur 28. apríl 2007

Óákveðnir kjósendur...

... þar á meðal ég.

Í fyrsta sinn síðan ég fékk kosningarétt er ég óákveðinn kjósandi.
Ég hef alltaf verið ötull stuðningsmaður vinstri hreyfinga og hef verið flokksbundin í sama flokki og Steingrímur J. í mörg ár.
En núna veit ég ekki alveg hvað ég á að kjósa.
Ég vil nefnilega ganga í Evrópusambandið og það sem fyrst.
En í stefnu VG segir: Hugsanlegur ávinningur af aðild Íslands að Evrópursambandinu réttlætir ekki frekara framsal á ákvörðunarrétti um málefni íslensku þjóðarinnar og er aðild að Evrópusambandinu því hafnað.

Þetta get ég bara alls ekki samþykkt. Ég bendi á færslu Þarfagreinis um ESB.
Evrópusambandið er ekki djöfullinn, au contraire. ESB gæti bjargað okkar litla landi frá frændsemisráðningum innan stjórnkerfisins, spillingu líkt þeirri sem Jónína Bjartmarz var (supposedly) staðin að (ég hef ekki neina trú á öðru en að hún sé gjörspillt. Go Helgi Seljan, Go!) og mönnum eins og Jóni Magnússyni (sem ég held að sé fasisti).

Landbúnaðarstefnan bíður betri tíma.

Fimmtudagur 5. júlí 2007

Strætó-andadráttur

Í morgun áttaði ég mig á því, hversvegna ég forðast að sitja við hliðina á fólki í strætó á morgnana, en er eiginlega alveg sama síðar um daginn.
Það er líkamsumhirða þess.

Ég er nú ekki ein þeirra sem fer í sturtu á morgnana (nema ég hafi þeim mun meiri tíma), en ég svona... skola af mér nóttina. Þvæ mér í framan, tannbursta mig, greiði og pússa.
Sumt fólk stekkur augljóslega framúr, í fötin og út.
Ég hef enga þolinmæði gagnvart þessu fólki. Það er vond óþægileg lykt af þeim!

Jæja, gott að vera búin að létta þessu af mér.

Mánudagur 30. júlí 2007

Bitching

OK, ég verð bara að fá að rífa mig smá yfir slæglegri þjónustu í Beco.

Fyrir 9 vikum var ég í fríi á Spáni, lenti í því leiðindaóhappi að 'crassa' á vespunni sem ég leigði mér og var með myndavélina mína (Canon 350D) í bakpokanum.
Í fyrstu leit út fyrir að vélin væri alveg í lagi en þegar ég var búin að skjóta einhverja 200 ramma eftir slysið, hætti hún að smella af. Allt virkaði, auto focusið, súmið, playbackið og alles, bara ekki afsmellibúnaðurinn.

Ég var með hana tryggða hjá bresku tryggingafélagi og það eina sem þeir vildu var að ég léti Canon umboð gera við vélina.
Ég kom heim fimmtudaginn 31. maí og föstudaginn 1. júní fór ég í Beco með vélina.

Þar fékk ég ágætis móttökur, útskýrði málið fyrir þeim og sagðist vilja fá skriflegt tilboð í viðgerðina á vélinni sent í tölvupósti áður en hún yrði löguð, þar sem tryggingafélagið úti vildi ekki láta laga hana ef verðið færi yfir 70% af andvirði vélarinnar, heldur fengi ég þá bara nýja vél frá Dixons.
Tók líka fram að ef þetta væru bara 20-30 þús, þá mætti byrja að laga vélina.
Ekkert mál sögðu Beco menn.

20. júní fæ ég loks tilboðið sent.
14-16 þús og ég sendi tölvupóst til baka og bið um að fá viðgerðartilboðið skriflegt og á ensku og bið viðgerðarmanninn um að taka fram HVAÐ eigi að laga í vélinni, serialnúmerið og hvað annað sem hann haldi að sé nauðsynlegt fyrir tryggingafélagið að vita.

Ekker svar.

2. júlí hringi ég, spyr hvort það hafi ekki örugglega komist til skila að ég vilji láta gera við vélina og hvort ég geti fengið svar við tölvupóstinum mínum.
Jú, það ætti að vera hægt að svara mér og búið er að panta íhlutinn í vélina.

Ekkert gerist.

Þar sem ég veit að svona hlutir taka tíma, geri ég ekkert fyrr en 25. júlí.
Þá sendi ég annan tölvupóst þar sem ég spyr hvort eitthvað sé að frétta af vélinni.

Ekkert svar.

Í dag gafst ég svo upp, hringdi frekar pirruð og spurði hvað væri að frétta af vélinni, tilboðinu og viðgerðarmanninum tölvupóstfatlaða.
Fínt að frétta af honum, búinn að fara í sumarfrí og svona, fínt að frétta af vélinni, liggur hreyfingarlaus upp í hillu og bíður eftir varahlutnum (sem enginn veit þó hvenær kemur til landsins) en enginn veit neitt um tilboðið sem átt að gera skriflega fyrir mig (þó bað ég upphaflega afgreiðslumanninn um að taka það fram í verkbeiðninni).

Ég sagði þeim sem ég talaði við í dag, farir mínar ekki sléttar en veit ekki hvernig þetta á eftir að fara.
Ég bað líka um að hringt yrði í mig þegar varahluturinn kæmi til landsins svo ég gæti gert mér grófa hugmynd um hversu langt væri í vélina mína.

Vonandi líða ekki aðrar 8 vikur þar til ég sé myndavélina mína næst.

Þriðjudagur 28. ágúst 2007

Af pósti og pökkum

Ég held að ég sé ekkert að ýkja þegar ég segi að 10 sinnum á síðustu 4 mánuðum, hafi ég þurft að hringja í þjónustuver póstsins, til að kvarta yfir þjónustunni (eða skorti á henni) hjá þeim.

Fyrir um mánuði síðan var komið með tilkynningu um pakka.
Já ég segi tilkynningu, því engan pakka var mér boðið upp á.
Ég kom heim rúmlega 6 (eh) og þar beið mín tilkynning... og tímasetningin á henni var 19.30 ef ég man rétt... amk var sá tími ekki einu sinni kominn... augljóst að viðkomandi nennti bara ekki að koma með pakkann, gerði ráð fyrir að ég væri komin heim eða að ég kæmi ekki fyrr en seinna og 'svindlaði' því bara á tímasetningunni. Idjót.

Í gær kom svo önnur tilkynning.
Stíluð kl. 19.10.
Ég var ekki heima, sem hefði sennilega ekki skipt máli þar sem dyrabjallan hjá okkur er biluð í augnablikinu og enginn hefði hvort eð er svarað.
Eníveis... ég ætlaði (alsendis ópirruð) í morgun að sækja pakkann minn í Hagkaup (þar sem pósturinn í Garðabæ heldur sig (fáránlegt ekki satt?) en... klukkan rétt rúmlega 9 um morguninn var pakkinn minn ekki kominn á pósthúsið!

Það stendur á þessum fjandans tilkynningum að hægt sé að sækja pakkann næsta virka dag, en það stendur hvergi að það megi ekki sækja þá þegar manni hentar sjálfum!

Ég hringdi, í 10 skiptið (eða svo) í þjónustuverið og fékk að tala við Lilju Guðmundsdóttur, þjónustustjóra.
Hún sagði að þetta væri undantekning og fór undan í flæmingi þegar ég benti henni á öll hin skiptin sem pakkar til mín hafa ekki skilað sér eða eitthvað verið að.

Edit:
Á meðan ég var að skrifa þessi orð hér að ofan, hringdi umrædd Lilja aftur í mig.
Pakkinn minn verður sendur á pósthúsið á Grensásvegi (að minni ósk) fyrir kl. 16 í dag.
Sjáum hvernig það fer.

Fimmtudagur 4. október 2007

WLAN og Vodafone

Frá því að við fluttum hefur verið leiðinda bögg á netinu hjá okkur. Routerinn heldur því fram að hann sé tengdur og detti aldrei út, en oft á tíðum fæ ég upp villumeldinguna að ég sé ekki nettengd, msn dettur út og allt fer í rugl.
Stundum þarf ég að refresha 3-5x áður en netið dettur aftur inn, stundum neyðist ég til að stela neti af nágrannanum (hey... hann er með opið net... hans sök ef gígin hlaðast inn hjá honum!)

Ég er búin að vera í stanslausu sambandi við Vodafone út af þessu... held að allir hjá nethjálpinni séu búnir að tala við mig. Það er búið að "setja routerinn á nýja tíðni", endurræsa netkortið í tölvunni, fara í gegnum allar stillingar í routernum, ég er búin að fara með báðar tölvurnar og routerinn til þeirra og það er gaur búinn að koma hingað og kíkja á draslið.
Fyrst að ég get tengst öllum öðrum routerum sem ég nota (HÍ netið, heima hjá mömmu, á öllum mögulegum kaffihúsum) þá var hægt að útiloka að þetta væri tölvan mín, þannig að ég fór, snar, sjóðandi vitlaus, niður í Vodafone í gær, henti routernum í hausinn á næstu manneskju og fékk nýjan.
Kom með hann heim og volá... nei... ekki volá.
Það var allt við það sama!
Ég var búin að gefa þeim fram á mánudag til að redda þessu, annars yrði ég að fara með viðskipti mín eitthvað annað.

En hér kemur skemmtilegi parturinn af þessu bloggi:

Í nótt var ég andvaka og fór á netið til að drepa tímann.
Það slysaðist ég inn á síðu sem heitir PcMechanic og það fyrsta sem ég sá var greinin "Clean Up a Wireless Signal By Changing The Channel" sem var nákvæmlega það sem ég þurfti.

Því eins og þið (nördarnir ykkar) vitið, getur það haft áhrif á stöðugleika netsins hjá ykkur að aðrir séu á sömu (eða nálægri) tíðni og routerinn ykkar.
Lítið forrit sem heitir Network stumbler gæti verið lausnin á öllum ykkar vandamálum.
Ég keyrði það í gær og komst að því að ég og 3 önnur network vorum á sömu tíðni.
Ég fór inn í routerinn minn og breytti tíðninni og volá!
Allt gengur eins og smurt :-D
netstumbler.bmp
Hér er skjáskot af ástandinu, nema að nú er ég ein á tíðni 3 þar sem ég var áður á tíðni 6 með hinum vitleysingunum!

Vonum að þetta virki... þá er ég rosa glöð :-)

Þriðjudagur 7. október 2008

Kreppan

Allt snýst um kreppuna þessa dagana.
Allt er að fara til helvítis að mati flestra og ekkert framundan annað en örbirgð og sultur.

Ég átti í smá skoðanaskiptum við góða vinkonu mína í dag.
Niðurstaðan er sú að ég er reiðari yfir þessu kreppuvæli en nokkru sinni áður (ekki við hana persónulega, bara yfir vælinu yfir höfuð).

ÞETTA ERU BARA PENINGAR!

Náið þið þessu ekki?
Dó barnið ykkar?
Nei.
Er fjölskyldan að farast úr hor?
Nei.
Er lífið búið?
Nei.
Nei. Nei. Nei. Nei.
Það er kreppa, samdráttur, efnahagslægð... hvaða nafni sem það kann að nefnast þýðir það einfaldlega að lífið verður aðeins erfiðara.

Jú sumir koma til með að tapa heilmiklum peningum, aðrir tapa jafnvel húsinu eða starfinu.
Peningar eru bréf, húsið er steypa... verra er með starfið, en það vantar alltaf fólk á leikskóla, elliheimili, frístundaheimili, sjúkrahús, í ræstingar, í verslanir... vinnu er allsstaðar að fá ef þú leitar.
Er ekki nógu flott fyrir verðbréfagutta úr greiningardeild Glitnis að vinna á leikskóla?
Tough luck.
Það er kreppa.

Ég er alin upp á Ólafsfirði af einstæðri móður.
Alla mína barnæsku vissi ég að það voru ekki alltaf til peningar, en það var bara gert það besta úr ástandinu.
Mamma var oft atvinnulaus þegar fiskinn þraut og enga vinnu var að hafa í sjávarplássinu.
Við bjuggum í 38 fermetra íbúð.
Ólafsfjörður var líka einangarður. Múlinn var ekkert djók og oft ófært heilu dagana.
Þá var stundum varla til matur í Kaupfélaginu.
Við áttum svart/hvítt sjónvarp til 1987.
1991 fékk mamma sér fyrst bíl (minnir mig). Ég var 14 ára.
Mamma eignaðist vídeótæki eftir að ég flutti að heiman árið 1996.
Lífið var bara erfitt og það þurfti að fara vel með peningana.
Ég er mjög stolt af mömmu minni.
Og jafnvel ennþá stoltari í dag en áður... því það var aldrei neitt kreppuvæl í minni barnæsku.

Það er enginn að deyja, það urðu ekki náttúruhamfarir.
Í versta falli fer fólk á hausinn.
Og hvað með það?
Ef einhver missti húsið sitt og vantar skjól má hann koma til mín.
Ég vísa meðbræðrum mínum ekki á dyr.
Ef einhver á ekki fyrir mat skal ég gefa honum að borða.
Ég vil ekki að samborgarar mínir svelti.

ÞETTA. ERU. BARA. PENINGAR!

Ég skulda.
Bankalán, íbúðasjóðslán, myntkörfulán, námslán og yfirdráttarlán.
Eins og allir finn ég alveg fyrir því að allt hefur hækkað.
Bíllinn er dýrari, íbúðin skuldsettari, námslánin hærri.
Ég get samt ekki kvartað.

ÞVÍ ÞETTA ERU BARA PENINGAR!

Ég er í hamingjusömu sambandi og á dásamlegt barn.
Ég á yndislega mömmu, góðan stjúpa, besta afa í heimi, trausta fjölskyldu og frábæra vini.
Við stöndum saman í blíðu og stríðu, styðjum hvort annað og hjálpum eftir bestu getu.

Hvernig væri að hætta þessu kreppuvæli, feisa staðreyndirnar og læra að spara?
Ég hef líka lifað hátt en nú er partíið búið.
Sumir voru fyllri en aðrir, en flestir skemmtu sér vel.
Það er komið að skuldadögum og ég borga ekkert síður en þú.

EN ÞETTA ERU BARA PENINGAR.

Mánudagur 29. desember 2008

Flugeldar

Ég þoli ekki sjálfstæða flugeldasölumenn.
Mér finnast þeir vera þjófar.
Þeir eru að stela frá Björgunarsveitunum.

Ég vona að þeir sem selja og kaupa flugelda ótengda björgunarsveitum landsins fari aldrei á fjöll eða sér að voða. Ég vona að björgunarsveitirnar þurfi ekki að aðstoða þetta fólk.
Þessa lúðulaka.

Því ekki hjálpuðu þeir við að fjármagna rekstur sveitarinnar.

Ekki versla við aðra en björgunarsveitirnar!

Talning


Alls heimsóknir: 79960
Gestir í dag: 10
Gestir í gær: 13
Þennan mánuð: 172

Færslur: 1049
Álit: 3074

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme