Heim

Skólinn Skjalasafnið

Miðvikudagur 23. nóvember 2005

Ég ætti að skrifa ritgerð...

... en það vantar algjörlega andann í mig.
Ég er búin að vera að hugsa mikið síðustu daga um hvert ég er að stefna í tilverunni.

Ég fór upp í HÍ á mánudaginn og þar var mér sagt að fyrr frysi í víti en að fólki án stúdentsprófs yrði hleypt inn í skólann.
Allavegana er því ekki að skipta á næsta misseri.
Það er ákvæði í reglum háskólanns um að undanþágu megi veita en háskólaráð hefur heimild til að horfa framhjá þessu ákvæði. Tekin verður ákvörðun í mars-apríl um hvort undanþágur verði veittar á haustmisseri 2006.
Ég er frekar pirruð yfir þessu.
Ég er komin í háskóla og langar til að halda áfram að vera í háskóla, en þau hjá HÍ sögðu mér að það væri best fyrir mig að klára stúdentinn LÍKA.
Já ég ætla einmitt að vera í framhaldsskóla og háskóla á sama tíma!
Nota námslánin til að borga einingarnar sem ég á eftir í framhaldsskóla... hversu gáfulegt er það?
Verð að ákveða eitthvað á næstu dögum.
Ákveða eitthvað um allt.
Hvar ætla ég að búa? Ætla ég að halda áfram hér? Ætla ég líka í fjarnám frá VMA eða MH?
Er ég að horfa á eftir draumi minum um að komast í bókasafnsfræði hverfa út um gluggann?
Nei fjandinn hafi það.
ÉG GEFST EKKI UPP!

Föstudagur 25. nóvember 2005

Ritgerðin búin!

Hún er ekki góð, en hún er búin. Mikið er ég glöð.
Kannski ég geti farið að einbeita mér að næstu ritgerð núna og prófalestri?
Vonandi er ritstíflan horfin.

Fimmtudagur 12. janúar 2006

Stundaskráin

Vá! Þvílík gargandi snilld!
Ég er ekki í skólanum á föstudögum fyrr en 23. mars þegar Siðfræðin byrjar!
Þetta gæti ekki verið betra, alltaf löng helgi *dansar*

Þriðjudagur 31. janúar 2006

Labbað út

Ég labbaði út úr tíma núna áðan í fyrsta skiptið síðan ég var 18 ára.
Ég var Hagnýtri Íslensku og kennarinn þar er ekki starfi sínu vaxin.
Ég er svo fúl yfir hvernig hún talar við mig og samnemendur mína að ég hafði samband við yfirmann félagsvísindadeildarinnar og ætla að fá viðtalstíma hjá henni og ræða þetta.
Hún var sumsé að ræða það að við kynnum ekki að fara eftir fyrirmælum og setningar eins og:
Grunnskólanemendur hefðu ráðið við þetta
og
Þið eruð í háskóla og eigið að kunna að lesa meira í verkefnið en gefið er upp orðrétt
komu út fyrir hennar varir!

Máli mínu til áréttingar ætla ég að birta hérna verkefnið sem við áttum að gera og svör mín við því.
Segið mér endilega hvort ykkur finnst ég hafa farið eftir þeim fyrirmælum sem eru gefin í verkefninu.
Best að taka það fram þó að verkefnið er óyfirfarið og því kynnu að leynast villur í því!

Lesa meira "Labbað út" »

Föstudagur 3. febrúar 2006

Meira um íslensku

Nú er ég búin að vinna þetta heimskulega heimaverkefni aftur og búin að pústa á Grétu um heimsku íslenskukennarans míns.
Ég á bara ekki til orð yfir þessari konu.
Hún talar niður til nemendana og gerir lítið úr greind okkar að mínu mati.
Ein af setningunum sem komu út úr henni í tímanum sem ég labbaði út úr fer þó mest fyrir brjóstið á mér.
Hún sagði að við ættum að láta foreldra okkar fara yfir verkefnin fyrir okkur!
Þvílík hneisa!
Sumir af nemendunum sem eru með mér í tímum eru eldri en hún! Komnar vel yfir fertugt og foreldrar amk einnar þeirra eru á elliheimili!
Sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur?
50 kona að láta tæplega áttræða móður sína (kannski með alzheimers) fara yfir íslenskuverkefnið hennar því kennarinn heimtaði það?

Mér finnst það koma frekar út fyrir HA að vera með svona kennara.
Allir hinir koma fram við okkur eins og fullorðið fólk (því það er jú það sem við erum) og sýna okkur virðingu.
Í staðinn lítum við upp til þeirra og virðum þau.
Þessi kona er afar neðarlega í virðingarstiganum hjá mér, sennilega á botninum.
Ég ber heldur meiri virðingu fyrir kettinum mínum en henni.

Æi, ég veit það ekki... stundum er fólk bara svo heimskt að ég verð reið.

Sunnudagur 5. febrúar 2006

Ritgerðarefni

Ég þarf að skrifa 3 ritgerðir á þessu misseri.
Eina í Íslensku (!), eina í nútímafræði og eina í kínverskri menningarsögu.
Ég er loksins komin með efni fyrir 2 af þeim og ætla að kynna það fyrir kennurum mínum í vikunni.

Í nútímafræðinni ætla ég að skrifa um bréfaskriftir landans í gegnum tíðina.
Hún mun í afar stuttu máli fjalla um að í gamla daga voru allir afar duglegir við að skrifa sendibréf, en svo með tilkomu almennrar notkunar á símtækjum minkaði þessi árátta okkar að setja orð niður á blað. Nú, á dögum e-meila og smsa hafa bréfaskrifti okkar aftur aukis svo um munar.
Bréfin eru máské öðruvísi, en þau eru engu að síður jafn gild.

Íslenskuritgerðin mun fjalla um tengt mál (alltaf gott að geta samnýtt heimildir) og verður um tölvur og tungutak.
Hvernig hefur málið þróast með tilkomu tölvunar, er þessi þróun góð eða slæm, er hægt að endurnýta gömul íslensk orð í nútímamáli?
Sbr. sögnin að skrolla, sem merkir bæði að skruna niður síður og að vera gormæltur og sögnin að þysja sem merkti að flýta sér (þusti), en er nú notað (af takmörkuðum hópi íslenskufasista) um að zooma.

Kínverskuritgerðin er svo annað mál. Ætti ég að tengja hana tölvum líka og fara ýtarlega í samkomulag gúgglsins og kínverskrastjórnvalda um að birta ekkert sem gæti vakið 'deilur' á kínverska gúgglinu?
Sé til.

Mánudagur 6. febrúar 2006

Meira um skólann

Ritgerðirnar eru víst fjórar. Gleymdi siðfræðinni.

En annars finnst mér hagfræði frekar leiðinleg.
Marx, Mill og Smith voru alveg skrítnir gaurar.

Þriðjudagur 21. febrúar 2006

Heimapróf

Jammsíkóla.
Var að klára heimapróf í kynjafræði sem við fengum afhent á sunnudagsmorguninn.
Auðvitað kíkti ég lítið sem ekkert á það á meðan ég var í borginni... en við skytturnar lögðumst í akkorðsvinnu um leið og ég lenti á flugvellinum á AK núna um 6 leytið (ok, fékk mér fyrst salat á Parken... en svo fórum við að læra).

Einkunnir verða tilkynntar hér eins og vera ber (aðallega fyrir mömmu og svo sjálfa mig... man aldrei neitt stundinni lengur... ekki einu sinni einkunnir).

Fékk súper skemmtilega afmælisgjöf frá hinum skyttunum... ég er alltaf að væla yfir að enginn sé með naglaþjöl á sér í skólanum og þær stöllur sáu loks aumur á mér og gáfu mér þetta líka forláta naglasnyrtisett úr body shop :-)
Það merkilegasta er að ég var einmitt að skoða það í body shop í dag þegar ég fór með Grétu í smá 'Kringlukast'.
Tilviljun?
I don't think so :-D

Miðvikudagur 22. febrúar 2006

Kínversk lög

eru afar flókin.
Þau fara mikið eftir kínverska máltækinu:
合情,合理,合法
Fylgdu fyrst tilfinningum þínum, fylgdu svo rökhyggjunni, fylgdu lögunum síðast.

Svolítið eins og ég hugsa.

Þriðjudagur 28. febrúar 2006

Raus

Var að koma úr prófi í vinnulagi. Ad hoc, ergo propter hoc.
Held að þetta hafi gengið sæmilega. Vinnulag er reyndar leiðinlegt þannig að ég hef ekki verið nægilega dugleg við að fylgjast með :-/
My bad.
Ég ætla að skilja tölvuna eftir heima út þessa viku og reyna að fylgjast með í tímum o_O
kannski mér fari þá að ganga betur...
Jólafríið var of langt... er ekki ennþá komin í gír :-/
Og febrúar er búinn.

Miðvikudagur 1. mars 2006

Ný loforð

Ég er ekki búin að ná mér á flug eins og sést á einum póstinum hérna fyrir neðan. Ég er búin að vera að slugsa og það er að koma niður á mér núna. Ritgerðir sem bíða eftir að ég byrji á þeim, verkefni sem eftir á að vinna og próf til að taka.
Afhverju þessi leti (já, því þetta er ekkert annað en það) greip mig eftir áramót veit ég ekki.
Að vera í skóla er það besta sem hefur komið fyrir mig í mörg ár og ég elska að vera í HA, fylla höfuðið af nýjum fróðleik, taka þátt í að skapa nýjann heim (Aldous Huxley eat your heart out!) og betra sjálfa mig.
Betrunin hefur gengið vel og hugur minn er fullur af upplýsingum. En það er bara ekki nóg.
Ég verð að berja mig áfram til að læra og þó að ég mæti í alla tíma (skrópa sko aldrei) þarf ég oft að hamast við að fylgjast með í stað þess að hanga á netinu. Tölvan þarf máské að fara í frí í nokkra daga... verst að ég fer örugglega yfirum á geði á meðan :-þ

En nú bíður þetta nútímafræðiverkefni ekki lengur. Ég á að skila því klukkan 13.30 í dag.

Hvað á maður að gera?

Ef kennaranum manns er illa við mann?
Nútímafræði kennaranum mínum er svo illa við mig... ég veit ekki hvað í fjandanum ég gerði en eitthvað hlýtur það að vera!
Við vorum með presentation á ritgerðarefnum okkar núna áðan og ég var ein um það að fá ekki leiðbeiningar um hvernig gera mætti ritgerðina betri... hvernig ég ætti að afmarka efnið.
Í staðinn þá gagnrýndi hann allt sem ég sagði án þess að gefa neina punkta um hvað ég gæti gert í staðinn :-/
Allir hinir fengu ábendingar um hvernig þau ættu að skilgreina sig og vinna í ritgerðinni.
Ég er ótrúlega sár og pirruð!

Ég hef ekki það val að hætta í nútímafræði... þetta er einn af þeim áföngum sem ég verð að ná til að fá námslánin, en ef manni líður eins og ekkert sem maður skilar frá sér eigi eftir að fá sanngjarna meðferð hjá kennaranum þá er maður dálítið fucked.
Ég fell sennilega í þessum áfanga :-(

Fimmtudagur 2. mars 2006

Allt betra

Jæja, ég fór og talaði við kennarann minn í dag.
Ég viðurkenndi að hafa verið ókurteis og hann viðurkenndi að hafa verið harðari við mig en efni stóðu til.
Málið var að honum fannst ég vera illa undirbúin undir þetta presentation (sem ég var sennilega) en ég reyndi að útskýra fyrir honum að ritgerð sem á að skila 14. apríl sé ekki framarlega í skipulaginu, sérstaklega þar sem framsöguerindi í siðfræði, ritgerð í kínverskri siðmenningu og nokkur próf koma á undan.
Við erum sáttari núna við hvort annað en í gær.

Einnig náði ég að laga bloggið mitt, sem var gott.

Nú er bara að koma sér í að læra fyrir Íslensku, kynjafræði, þjóðfélagsfræði og nútímafræði.
Nóg að gera sko.

Miðvikudagur 15. mars 2006

Gremja

Ég er full gremju.
Ég tók heimapróf í nútímafræði um daginn og var að fá út úr því í dag. Ég fékk 6.
Ég er svo pirruð yfir þessu og þetta er svo svekkjandi, því að ég lagði mig virkilega fram í þessu prófi.
Það að ég hafi fengið 9 fyrir verkefni í kynjafræði vegur nákvæmlega ekkert upp á móti svekkelsinu yfir þessu drasli!
Ég veit ekki hvort ég á að segja mig úr áfanganum og vonast eftir betri kennara á næsta misseri eða hvort ég á að halda áfram, skila ritgerðinni og vona að skríða með 5, því Markus er vís með að fella mig í áfanganum.
Ég er í helvítis vandræðum með þessa ritgerð, finn engar heimildir, veit ekkert hvernig ég á að nálgast efnið. Ég hata þetta fag svo innilega. Hvaða fífl var ég að halda að heimspeki væri eitthvað fyrir mig?!?!
Ég veit að ég verð að standa mig í þessu fagi til að vera á réttu róli í náminu, en ef kennaranum er illa við mann, er maður þá ekki basicly screwed?
Æi, ég er ennþá ekki alveg sátt við tilveruna. Þetta hjálpar ekki til.
Helvítis, djöfulsins, andskotans.

Fimmtudagur 4. maí 2006

School's out

Skólinn er búinn.
Ég var að koma úr síðasta prófi og það gekk glimrandi vel!

Man, þetta er búið að vera æðislegur vetur :-D
En ég hlakka samt til að fara að vinna!

Fimmtudagur 2. nóvember 2006

Katalogos

Eins og ég var örugglega búin að koma á framfæri þá er ég skorarfulltrúi fyrsta ársnema í félagi bókasafns- og upplýsingafræðinema, Katalogos.
Það voru að koma myndir inn á vefinn okkar sem sýna (svo ekki verður um villst) að bókasafnsnemar eru stuðpinnar og gleðifólk.
Sú ímynd að bókasafnsfræðingar séu þurrir og uppskrúfaðir virðist nefnilega loða við þetta fag, en hér eru myndir sem afsanna það!

Miðvikudagur 8. nóvember 2006

Ekki ritgerð búin

Ahh, þvílík snilld að ljúka verkefnum á góðum tíma.
Ég lagði lokahönd á vinnulags 'ekki ritgerðina' í morgun en síðustu skrif fóru fram um kl. 00:30 liðna nótt. Átti bara eftir að fínpússa heimildaskrá og breyta orðalagi á nokkrum stöðum.
Ég er svo sátt við að hafa klárað hana á mettíma, því ég var í alvöru farin að íhuga það að sækja um frest, en það hef ég aldrei áður gert.

Í morgun, þegar ég vaknaði var svo sterk tilfinning fyrir einhverjum í rúminu mínu, að ég teygði út hendina og þreifaði eftir honum.
Frekar sérstakt, þar sem ég er vanari að vakna ein en hitt.

Fimmtudagur 7. júní 2007

17 einingar

Komnar í hús :-)
Féll í aðferðafræði, en ég vissi það nú fyrirfram, enginn tími til að mæta bæði í það og skólasöfnin.
Eitt ár eftir í BA.

Þriðjudagur 4. september 2007

Námskeiða nöldur

Jæja, skólinn byrjaði í gær á mjög svo óáhugaverðri kynningu á Upplýsingaþjónustu og síðan tók við frábær kynning á Textagerð.

Ég ætla að nöldra yfir fyrra faginu í nokkra daga í viðbót.

Þannig standa mál að textagerðin, bókmenntafræðin og upplýsingaþjónustan eru öll í árekstri á mánudögum.
Upplýsingaþjónustan byrjar kl. 10 og er til 13.10, bókmenntafræðin byrjar kl. 10 og er til 11.30 og textagerðin átti að byrja kl. 11.40 og vera til 13.10, en kennarinn þar ákvað að hliðra aðeins til fyrir okkur sem lendum í árekstri og byrja að kenna kl. 12.20 í staðinn, fallegt af honum... þá missi ég bara klukkutíma úr upplýsingaþjónustu í staðinn fyrir að missa um 2 tíma.

Það sem ég er svo pirruð yfir er að prófessorinn í upplýsingaþjónustu, gæti byrjað að kenna þetta námskeið kl. 8.20 og þá væri enginn árekstur við textagerðina... en nei.
Hún kennir ekki klukkan 8!
Og það eru hennar eigin orð... þvílíkur hroki!

Ég veit ekkert hvað ég á að gera þar sem þetta er skylduáfangi... ég vil samt helst segja mig úr honum... en ég vil ekki þurfa að missa meira en eina önn úr...
ARGH! Þetta er óþolandi framkoma af kennara!

Mánudagur 10. september 2007

Upplýsinga- og skjalastjórn

Múhahhahahahaah!!!
Ekki nóg með að ég hafi náð helv. uppl.- og skjalastjórn... ég fékk 7,5 :-D

Húrra, húrra, húrra fyrir mér!

Miðvikudagur 26. september 2007

Þekkingafræði

Sagði mig úr þekkingafræði áðan.
Of abstrakt fyrir mig eins og er... ég get ekki hugsað svona út fyrir kassann þessa dagana.

Miðvikudagur 3. desember 2008

Kvíðakast

Úff... ég fékk netta kvíðakastið rétt áðan. Mér fannst ég vera að lesa fyrir vitlaust próf!

Fer í próf núna 5. des og veit alveg að það er upplýsingaþjónusta... en fannst allt í einu að það væri íslenska fimmta og upplýsingaþjónusta fimmtánda.

Rauk að sjálfsögðu í Uglu til að fá staðfestingu á að ég væri ekki að lesa fyrir vitlaust próf og að sjálfsögðu var ég það ekki... en varð samt úber stressuð í þessar mínútur sem það tók Ugluna að afhenda mér þessar nauðsynlegu upplýsingar!

*Andar léttar*

Talning


Alls heimsóknir: 79950
Gestir í dag: 0
Gestir í gær: 13
Þennan mánuð: 162

Færslur: 1049
Álit: 3074

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme