Heim

Áhugaverðir hlekkir Skjalasafnið

Þriðjudagur 14. febrúar 2006

Vikulegir hlekkir

Héðan í frá ætla ég, einu sinni í viku, að bæta inn hlekk sem mér finnst sniðugur.
Þeir verða skráðir undir flokknum 'vikulegir hlekkir' hérna til hægri.
Til að sjá alla hlekkina sem ég hef bætt inn þá smellið þið bara á hlekkinn, and by magic you will be transfered there :-)

Hlekkur vikunnar er:
Chateau Bizarre

Þriðjudagur 21. febrúar 2006

QC

Daramm!
Hlekkur vikunar er schnilldin Questionable Content sem ég les daglega (nema um helgar).
Ég beini ykkur hér með á fyrstu teiknimyndina í þessari seríu og þið EIGIÐ að lesa þær allar (kannski ekki á einu bretti, þær eru orðnar 560).

Það er frábært að sjá hvernig stíllinn hjá Jacques hefur þróast með árunum (já þessi online comic er búin að vera til í tæp 3 ár) og hvað karakterarnir hafa þróast líka :-)

Og þar sem QC er nánast orðið Kult þá er Wikipedia með færslu um það!

Mánudagur 27. febrúar 2006

Base Tan - Hlekkur vikunar

Eini innfæddi Akureyringurinn sem ég umgengst kvartaði yfir því að ég hefði móðgað norðlenska sál hennar.
Ég bið Herdísi hér með afsökunar á að kalla Akureyri stórann Selfoss og viðurkenni hér með að Selfoss er verri. Sennilega. Kannski. Jú örugglega.

Fyrir ykkur hin sem eruð að vinna í að verða góðir Hnakkeyringar þá eru hér leiðbeiningar frá kallarnir.is í að ná sér í gott base tan.
Mitt er orðið ágætt. Ætti ég að fá mér strípur?


Lesa meira "Base Tan - Hlekkur vikunar" »

Talning


Alls heimsóknir: 81411
Gestir í dag: 11
Gestir í gær: 10
Þennan mánuð: 258

Færslur: 1049
Álit: 3074

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme