Meðferðarmál og fl.
Síðustu vikurnar höfum við verið í glasameðferð, við tókum þá ákvörðun um að láta engan vita hvenær við færum í uppsetningu og hafa þessa meðferð bara útaf fyrir okkur, þess vegna hef ég ekki talað neitt um þetta á blogginu mínu. En fyrir tvem vikum voru settir upp okkar síðustu tveir fósturvísar og í dag fengum við niðurstöðuna, hún var neikvæð.
Við höfum þess vegna ákveðið að hætta í þessum meðferðum og fara aðrar leiðir til að eignast barn, við erum búin að panta okkur tíma hjá Íslenskri ættleiðingu og ætlum að skoða það ferli allt saman á næstu dögum og munum svo sennilega ættleiða barn frá Kólumbíu því þar þurfa umsækjendur bara að vera orðnir 25 ára en ekki 30 ára eins og í mörgum öðrum löndum.
Við erum yfir okkur spennt og full tilhlökkunar og hlökkum til að takast á við þetta nýja ferli.
Daginn í dag notuðum við svo til að tilkynna fjölskyldunni þetta og auðvitað eru hún bara yfir sig glöð með þetta og spennt með okkur.
Knús og kram

