Núna langar mig til að eiga fullt af pening, vinna í lottó eða eitthvað álíka.
Mig vantar pening fyrir flugi til mömmu minnar, langar svo að fara til hennar en flug frá þessi litla skeri er bara ógeðslega dýrt. Það er svo ekkert mál að ferðast ódýrt um leið og maður er komin út.
En ég er búin að skoða bæði með Iceland Express og Icelandair og þetta er bara rugl þetta verð. Ég verð víst að sætta mig við að komast ekki út strax og svo er nú heldur ekki mjög langt í að mamma komi heim svo þá get ég knúsað hana í klessu :)
En ef ég vinn í lottó næsta laugardag þá verður það fyrsta sem ég geri að kaupa mér flugmiða og annan fyrir ástina mína og fljúga beint til Menorca drauma eyjunnar okkar og baða okkur í sólinni og láta svo mömmu bara þjóna okkur ha ha ha ha ha.
En við verðum víst að spara eitthvað af peningunum okkar fyrir litla sæta Kólumbíusi, ég get nú alveg sætt mig við að komast ekki út eða geta ekki klárað pallinn í bústaðnum strax fyrir það.
En er samt drullu fúl yfir þessu flugverð brjálæði, bara svona að koma því að :)
Comments (8)
haha kólumbíusi :) Ertu semsagt komin með nafn??? ;) Jájá hugsaðu þetta bara svona þegar þið eruð komin með litla kólumbíus þá farið þið að spara fyrir bústaðnum og þá er hann með mömmu sinni og pabba að byggja upp sumarbústaðinn:) Þá getur hann sagst hafa tekið þátt í því þegar hann verður eldri. Hehe ég tala alltaf um hann sem hann en ég veit ekkert hvort það verði hún:)
Posted by Björg | 25.07.07 09:24
Nei við vitum auðvitað ekkert um það hvort það er hann eða hún en Kólumbíus er bara fínt nafn þangað til við vitum það :)
knús á þig sæta mín
Posted by Sigga Ásta | 25.07.07 10:44
Á ég að skutla þér?
Posted by hjalti | 25.07.07 13:36
ha ha já takk endilega herra flugmaður :)
Posted by Sigga Ásta | 25.07.07 13:40
Æ, en fúlt, dúllurass! Hvað kostar eiginlega flugið? Þú hefðir svo gott af að komast til múttu þinnar í nokkra daga. Knús til þín og Kólumbíusar .... tí hí.
Posted by Rannveig | 25.07.07 20:55
Hæ hæ flugið kostar ekki minna en 60.000 kr fyrir mig og Davíð bara til London og þá á eftir að fá flug þaðan út, þannig að þetta er bara bull ég gat fengið flug alveg upp í 90.000 kr.
Svo eru þeir alltaf að auglýsa flug til Londona fyrir 8000 til 9000 kr en það er sko ekki til á þessum tíma.
Posted by Sigga Ásta | 26.07.07 10:28
Londona?!?!
SIGRÍÐUR!
Beygingin er:
London
London
London
London
EÐA
Lundúnir
Lundúni
Lundúnum
Lundúna
Annars er ég eiginlega viss um að þetta var innsláttarvilla ;-)
Varð bara að missa mig yfir einhverju... var nefnilega að lesa heimskulega umræðu á barnalandi og get ekki tjáð mig þar, því ég vil ekki skrá mig í þetta ruglaða samfélag!!
Finnst að það ætti að taka sumar af þessum mæðrum sem eru þarna inni og KÆRA ÞÆR FYRIR BARNAVERNDARNEFND!
Sjitt hvað ég er pirruð.
Posted by Nornin | 26.07.07 12:39
Já nú kann ég þá að beygja London, heppinn ég :) En þetta er auðvitað bara innsláttarvilla eins og þú veist kellingin mín :-Þ
Svo máttu ekki láta Barnalands geggjunina pirra þig það er líka bara lang best að lesa bara ekkert þar inni :)
Posted by Sigga Ásta | 26.07.07 13:22