« Lottóvinning takk :) | Main | Stutt stopp heima :) »

Sumarfrí :)

Á morgun kl 16:00 byrja ég í sumarfríi :) ..... já og Davíð líka hí hí
En við erum boðin í 35 ára afmæli á morgun og hvað er betra en að byrja sumarfríið á smá djammi :) Svo liggur leið okkar austur í bústað með 3 litla 9 ára gorma með í för, ódýrt vinnuafl til að hjálpa til í bústaðnum og kannski við skreppum svo með þau eftir langan vinnudag í sund svona aðeins til að skola af þeim mestu drulluna.
En ég veit ekki hversu mikið ég mun vera í netsambandi næstu 3 vikurnar því við ætlum líka að skella okkur norður og svo í eina viku í Húsafell með Álfheiði og Jóa í bústað með heitum potti og slaka á og njóta okkar.
En allavega þá er sumarfríið handan við hornið og mikið hlakka ég til að þurfa ekki að fara í vinnuna alla daga, heldur geta bara gert það sem mig langar, geggjað gaman.
Hafið það gott og verið góð við fólkið sem ykkur þykir vænst um.
knús og kremjur

Comments (8)

mamman í sólinni:

Til hamingju með sumarfríið dúllan mín og njóttu þín í botn. Knús og kremjur á ykkur öll.
Mamman

Fullt af knúsi á þig til baka elsku mamma, hafðu það gott en farðu samt að koma heim fljótlega áður en ég ræni flugvél til að koma til þín :)

Njóttu þín í sumarfríinu :)
Ég fer til Lanzarote og baða mig í sólinni ásamt mínum heittelskaða eftir mánuð! :) Hlakkar til í mitt sumarfrí:P Nr. 2 hehe

ásd...:

Ógó gaman að vera í sumarfríi, það er bara best í heimi, njóttu þín....
Love

Rannveig:

Njótið vel, Siggulingur. Hlakka til að fá þig aftur, en nýt þess á móti að vita af þér í afslöppun. Ljós og kærleikur til ykkar.

Halló elsku Sigga,

Hafðu það ógeðslega gott í fríinu! Og ykkur er auðvitað velkomið að koma í heimsókn til okkar :o) Við vorum að kaupa okkur bíl þannig að við getum sótt ykkur á flugvöllinn.

Kær kveðja frá hjónakornunum í Edinborg

hjalti:

njóttu lífsins, það er stutt og þú lifir það hvort eð er ekki af...

Björg, takk elskan og vonandi eigið þið eftir að eiga yndislegan tíma þarna úti saman.

Ásdís, takk elskan ég kannski rekst á þig fyrir noraðn :)

Rannveig, takk elskan, hafð þú það líka alveg yndislega gott elskan.

Sara og Jón Garðar, takk elskurnar væri alveg til í að koma í heimsókn og gott að vita að Bílakallinn er loksins komin með bíl, veit að það var búið að vera miklar pælingar um akstur hingað og þangað til að nálgast eitt slíkt tæki :)

Hjalti, takk fyrir og mundu að njóta þín líka, það lifir þetta víst engin af :)

About

This page contains a single entry from the blog posted on júlí 26, 2007 7:19 EH.

The previous post in this blog was Lottóvinning takk :).

The next post in this blog is Stutt stopp heima :).

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.32