Við fórum í morgun að hitta Guðrúnu hjá ÍÆ og hún var auðvitað bara yndisleg og útskýrði allt svo vel fyrir okkur. Fór yfir ferlið í heild sinni og svaraði fullt af spurningum frá okkur :)
En við komumst líka að því hvað heimurinn er ótrúlega lítill, því hún spurði hvar við ættum heima og í ljós kom að hún átti einu sinni heima í þessari sömu íbúð ha ha bara sniðugt.
Hún lét okkur svo fá bunka af pappírum sem við þurfum að fylla út svo efni og bæklinga til að lesa.
En þá er þetta semsagt þannig að fyrstu skrefin eru að útvega hjúskaparvottorð, það tekur tvo daga og við erum búin að byðja um það, staðfest afrit af síðustu tvem skattaskýrslum sem við erum búin að ná í, blöð sem við þurfum að fylla út sem eru bara upplýsingar um okkur og svo annað sem er svona um heilsuna og sjúkdóma, ég er byrjuð að vinna í þeim og svo læknisskoðun og ég er búin að fá tíma á fimmtudaginn í næstu viku hjá lækninum.
Þegar þetta er allt komið þurfum við að borga 50.000 kr staðfestingargjald og þá förum við á biðlista og skilum inn öllum þessum gögnum.
Við ætlum að reyna að skila öllu inn á fimmtudag eða föstudag í næstu viku.
En svo verða pappírarnir sendir til sýslumannsins í Búðardal sem síðan sendir beiðni til félagsmálastofnunar. Félagsmálastofnun hefur svo samband við okkur og við þurfum að fara í viðtal þangað og svo er ein heimsókn frá þeim til okkar. Þau sjá um að gera skýrslu um okkar heimili og fjölskylduhagi. Þessi skýrsla verður svo lögð fyrir barnaverndarnefnd og síðan send sýslumanni sem tekur ákvörðun um forsamþykki.
Þetta ferli tekur svona 4 til 6 mánuði og svo verður umsóknin okkar send út til Kólumbíu :)
Ég ætla auðvitað að blogga um þetta ferli allt saman svona líka til að halda utan um söguna okkar í heild sinni, ég vil geta sagt barninu okkar frá þessu öllu saman einn daginn og ég er nú fljót að gleyma öllu svo það er gott að geta flett þessu upp á netinu.
En allavega þá verðum við Davíð orðnir foreldrar eftir nokkur ár, þá fáum við lítinn engil frá Kólumbíu, sem við ætlum að elska og annast allt okkar líf og reyna eftir okkar bestu getu að gefa barninu okkar yndislegt, hamingjuríkt og gott líf.
Kossar og knús
Comments (9)
Ekkert smá spennandi!!! Ég fylgist spennt með og hlakka til að sjá litla gullmolann ykkar :o)
Posted by Kristín E. | 12.07.07 20:33
Innilega til hamingju með þett a.. bara æðislegt.. hlakka til að fylgjast með ykkur ..
knús Hrönn og co
Posted by Hrönn | 12.07.07 20:46
Æji hvað þetta er allt gaman og spennandi, ég óska ykkur alls hins besta og auðvita fljúgið þið í gegnum allt þetta viðtala og samþykkja ferli því ég get ekki ímyndað mér ljúfara og betra fólk til að annast lítið barn (ég hugsa nú bara um ofdekruðu kettina ykkar hehe..)en mundu ég er alltaf heima á kvöldin ef þér dettur í hug að bjalla kv. Kristjana
Posted by Kristjana | 12.07.07 23:08
Vá, spennandi JÁ!...ohh ég fylgist LÍKA með! milljón knús og kossar.
p.s takk fyrir okkur;)
Posted by Jóka | 13.07.07 12:05
Elsku Sigga mín!
Mikið er spennandi að heyra um þessi frábæru plön. Þið verðið pottþétt alveg yndislegir foreldrar, það verður ansi heppið lítið Kólumbíu-kríli sem verður þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast ykkur sem foreldra.
Jákvæðnin þín skín líka í gegn og það hefur ótrúlega mikið að segja með alla líðan.
Haltu áfram að vera eins yndisleg og þú ert :o)
Knúskveðja
Auður Lilja
Posted by Auður Lilja | 13.07.07 20:04
og ég bara að verða frænka:) hlakka svo til, ég fæ að dekra og spilla :P hehe
Posted by Björg | 14.07.07 09:50
Það er svo yndislegt að lesa bloggið þitt, jákvæðnin og gleðin alveg skín í gegn :)
Til hamingju með að vera komin af stað í þessu ferli, mikið rosalega verður heppið barnið ykkar að fá ykkur sem foreldra.
Með bestu kveðju, Gullý.
Posted by Gullý | 16.07.07 16:01
Hæ elsku frænka.
Takk fyrir að skrifa í gestabókina Aldísar.Innilegar hamingjuóskir með að vera komin af stað í ættleiðingaferlið,Já Guðrún hjá ÍÆ er bara yndisleg manneskja og reyndist okkur vel þegar við vorum í þessu málum.Ég man hvað ég var spennt þegar ég byrjaði í ferlinu og hugsaði oft um það að þó tíminn gæti verið langur þá væri alveg öruggt við að fara þessa leið að á endanum fær maður gullmolan sinn og trúðu mér það er sama hvora leiðina gullmolin kemur þetta er barnið manns og ekkert annað.Núna erum við að fara um helgina í útilegu hjá ÍÆ í svarfaðardal.Það hjálpaði okkur að hitta fólk sem var að bíða eftir barni og búið að ættleiða þegar við biðum eftir Aldísi.Hryngdu bara ef ég get eitthvað hjálpað þér.
Kveðja kristín frænka Akureyri
Posted by Kristín Aðalsteinsdóttir | 16.07.07 22:40
þetta er bara yndislegt Sigga mín. Hlakka til að fylgjast með ferlinu hjá ykkur.
Hafið það sem allra allra best í sumar.
Bestu kveðjur
UB
Posted by Unnur Björk | 17.07.07 22:55