« ágúst 2007 | Main | október 2007 »

september 2007 Archives

september 3, 2007

Í næstu viku.......

kemur elsku mamma mín heim aftur :)
Mikið er ég farin að sakna hennar, það getur bara ekki talist eðlilegt.
En ég tel niður dagana og hlakka svo til að bruna út á flugvöll og knúsa hana í klessu, eins og hún segir sjálf hí hí.

En annars var helgin auðvitað alveg yndisleg, við hjónin skelltum okkur í Borgarnes til að sjá nýja húsið Gullu og Rögga og auðvitað til að sjá litlu mús aftur. Ég skipti á henni og þegar ég sá hvað hún var pínu ponsu lítil þegar hún var farin úr þessum stóra náttgalla þá þorði ég varla að halda á henni aftur, hún var eitthvað svo lítil og brothætt í mínum augum.
Hún er alveg yndisleg og falleg eins og allar stelpurnar þeirra, alveg einstaklega vel gerðar allar.
Íbúðin er líka alveg frábær, reyndar þarf að laga mikið í húsinu en skipulagði á því er mjög gott. Þarna er svona svefnherbergisgangur og svo eru stofa, eldhús og hol svona í öðrum endanum, mig langar í þannig íbúð. Já og það er búr, sem er nauðsynlegt á öllum heimilium og geymsla sem mig langar svo að hafa hjá mér, garðurinn er geggjaður og útsýnið er yndislegt.
Semsagt alveg frábær staður og vonandi á þeim eftir að líða vel þarna.
VIð kíktum líka upp í Skorradal til að sjá nýja sumarbústaðinn sem tengdó eru að byggja sér og hann er engin smá höll, og ég hlakka bara til að fara þangað í potta partý og grillveislur :)

Ég fór svo og keypti mér skólabækur og keypti nokkrar fæðingargjafir og afmælisgjafir, það eru bara allir að eiga börn eða eiga afmæli, Atli minn verður 26 ára næstu helgi og ég er búin að skipuleggja daginn og ætla að koma honum á óvart :)

Knús á ykkur og hafið það gott.

september 4, 2007

Rúffí rúsína

Eftir vinnu í dag fórum við Álfheiður upp í bústað til að jarða Rúffí lítlu sem var svæfð í dag.
Hér er mynd af henni þegar hún var pínu lítil.

DSCF0029a.jpg


En hún var orðin talsvert stærri í dag.
Henni líður vel núna, þó það sé alltaf sárt að kveðja dýrin sín.
Er búin að vera að knúsa mínar kisu snúllur mikið eftir að ég kom heim.

Góða nótt

september 6, 2007

Kíró og fl.

Fór að sjá Axel Pál, litla gullið Evu og Gunna í gær, hann er yndislegur, alveg pínu pons og með hálfgerðan hanakamb hí hí hárið er svona út í loftið og líkja foreldrarnir honum við pönkara.
Bara gaman að hitta þau öll og Emmu rúsínu líka, sem er ný orðin tveggja ára gömul.
Á morgun byrjar svo matarklúbburinn okkar en ég, Davíð, Álfheiður og Jói ákváðum að stofna svona matarklúbb og ætlum við semsagt ekki að hittast og elda fyrir hvort annað við ætlum að fara út að borða og láta elda ofan í okkur og þjóna, þetta ætlum við að gera einu sinni í mánuði :)
Á morgun ætlum við að starta þessu á Rossopomodoro á Laugavegi, það er ítalskur staður og ég hef borðað þar áður og líkaði vel, en þau hafa ekki komið þangað áður.
En svo er þrítugsafmæli hjá Jóa á laugardaginn og ætlum við auðvitað að skella okkur í það og svo er afmælið hans Atla á sunnudaginn, þannig að helgin er orðin vel skipulögð :) sem er bara gaman.

Ég er svo byrjuð hjá kírópraktor hann heitir Ingólfur Ingólfsson og er á Sogavegi. Ég fór á mánudaginn í myndatöku og skönnun hjá honum og á miðvikudaginn fékk ég niðurstöður úr því og var hnikkt í fyrsta sinn.
En svona fyrir miðju baki er smá beygja á hryggnum sem á ekki að vera, hálsinn á mér framm í staðinn fyrir að vera aftur, og mjóbakið er allt í klessu og svo er grindin skökk, meira að segja ég sá þetta á röngenmyndunum og það var frekar mikið sjokk að sjá þetta svona allt í klessu.
En Ingólfur ætlar að laga mig :) svo ég er rosa glöð og mun fara 3 x í viku til hans fyrstu vikurnar svo fækkum við þessu eitthvað eftir það.
En ég mæli með þessu fyrir alla, að láta kíkja á sig þarna því þessir menn eru snillingar og hafa hjálpað fullt af fólki sem ég þekki. En hann fór t.d. að spurja mig út það hvort ég fengi ekki doða í hendurnar og túrverki og væri ekki oft þreytt og jú jú þetta passar allt og allt þetta getur hann rakið til þess hvernig hryggurinn hjá mér er og vonandi lagast þetta svo bara allt saman.
En það sem kom mér líka á óvart var að sjá að grindin hjá mér er skökk, því að læknirinn minn á Art talaði oft um það að það væri einhver fyrirstaða í fæðingaveginum hjá mér og hann vissi ekki alveg hvað það gæti verið, en nú veit ég það, það er bara grindin hjá mér sem er skökk.
Hver veit svo þegar ég verð komin svona mikið í lag og byrjuð í ræktinni aftur, er hægt og rólega að taka mataræðið í gegn og hugsa betur um sjálfa mig, kannski ég verði bara ólétt svona heima, það væri nú ekki leiðinlegt að fá lítið systkini fyrir Kólumbíus krílið okkar :)

Mamma er svo að koma heim eftir eina viku :)
Sakna þín mamma og hlakka svo til að fá þig heim.
knús á ykkur öll

september 7, 2007

Friðarsúlan

Ég fór á kaffihús í gær að hitta gamla vinnufélaga og kom svo heim um ellefu í gærkvöldi, þegar ég lagði bílnum fyrir utan húsið tók ég eftir þessu svaka fína ljósi á himnum. Ég var ekki alveg viss hvað þetta væri, hvort þetta væri geimskip eða batmanmerkið. Ég hljóp inn og kallaði á Atla til að láta hann sjá þetta fyrirbæri, en hann sagði mér auðvitað að þetta væri Friðarsúlan.

bilde.jpg

Ég hitti Kalla, Sigga, Kjartan og Gumma í gær á Hressó og Kalli kom með nýju konuna sina til að kynna fyrir okkur, bara gaman að hitta þetta lið. En þegar ég kom heim fattaði ég að ég hafði misst veskið mitt niðri á Hressó og ég fékk bara kast. Í veskinu var 8000 kr í peningum sem ég átti ekki einu sinni, heldur var að geyma og svo auðvitað öll kortin mín. Ég lét loka vísa kortinu strax og hringdi niður á Hressó, spurði hvort þau hefðu fundið veskið en nei ekkert hafði fundist hjá þeim.
Davíð minn brunaði niður í bæ til að leita á Hressó, eftir nokkra stund hringdi Hlynur í mig sem vinnur á Hressó og sagðist hafa fundið veskið, Davíð náði í það og allt saman var í því ennþá.
Er til heppnari manneskja en ég, ekki sem ég veit um, ég bara fór að gráta þegar veskið fannst, fékk bara svo mikið sjokk og varð svo fegin þegar þetta fannst aftur með öllu í.
En í staðinn svaf ég ekki mikið í nótt því ég var bara orðin svo upp "tjúnnuð" að ég náði ekki að slaka á eftir þetta allt.

En við fórum svo út að borða með Álfheiði og Jóa í kvöld og það var æðislegt, bara gaman að vera með þeim, alltaf svo hress og fyndin. Við fengum æðislegan mat og skemmtilega misheppnaða þjónustu en þetta var bara til að gera kvöldið ennþá eftirminnilegra, það er ekkert gaman að fara út að borða ef allt gengur eins og í sögu.
Allavega fór matarklúbburinn okkar vel af stað og við munum svo fara á einhvern skemmtilegan stað í næsta mánuði.

Knús á ykkur öll elskurnar, góða helgi.

september 9, 2007

9. september

Við fórum í afmælið til Jóa í gær og það var þvílíkt gaman að ég held bara að ég hafi sjaldan farið í eins skemmtileg partý. Bjarni töframaður er einn af vinum Jóa og Hildar og hann var með blöðrur sem hann blés upp og bjó til hin og þessi listaverk úr. Auðvitað þurftu næstum allir karlmenn í partýinu að fá svona blöðru til að blása upp sjálfir en það er víst ekkert auðvelt að blása í þetta, því þeir voru allir orðnir eldrauðir í framan og sumir fengu aðsvif eftir átökin hí hí. En vinahópurinn hans Jóa er bara saman safn af skemmtilega skrítnu fólki og ég hef sjaldan hlegið jafn mikið eins og í gær, og var ég þó alveg edrú.

En í dag á auðvitað elskulegi yndislegi bróðir minn afmæli og það eina sem hann vildi fá á afmælinu sínu var kaka sem heitir Heimsins besta, mamma er vön að baka þessa köku en núna er hún í langtíburtistan svo ég varð að gera mitt besta. Ég gerði tvær tilraunir og í þeirri seinni kom allavega út eitthvað sem lítur út eins og það sem mamma gerir svo ég vona bara að bragðið sé eins. Ég setti á kökurnar í morgun og kremið er ekki eins og hjá mömmu, mitt er miklu loftmeira og léttara, þannig að ég er nú greinilega ekki búin að ná þessu alveg.
En það verður gaman að sjá í dag hvort bragðið er eitthvað líkt því sem það á að vera.

Ég er að bíða eftir að litli kútur vakni svo ég geti látið hann fá afmælisgjöf frá ömmu og afa, afmælismorgunmat í rúmið og knúsað hann í klessu og síðan ætla ég að bjóða honum með mér í Baðstofuna í Laugum og eiga þar notalegan dag með mér í gufum, heitum pottum og slökun.
Ég er svo búin að kaupa kvöldmat sem honum finnst rosa góður og svo eru kökur í kvöldkaffi.
Þannig að vonandi verður þessi afmælisdagur bara góður hjá honum, hann á nefnilega allt gott skilið af því að hann er lang lang lang bestur.

Knús og kram

september 10, 2007

Kökurnar slógu í gegn :)

Afmælisdagurinn var æðislegur, Atli var ekkert smá glaður með þessa gjöf frá mér og kunni sko vel að meta hana. Hann svaf í 1 og 1/2 tíma í hvíldarstofunni þarna með hægindastólunum og arninum, ótrúlega kósí.
En við prufuðum svona flestar gufurnar og fórum nokkrar ferðir í heita pottinn, pöntuðum okkur mat og drykki, og fórum í allskonar böð, t.d. fossa og fötu böð, bara gaman.
En Atla fannst þetta þvílíkt æðislegt og ætlar sko að nota þennan stað til að bjóða "vinkonum" sínum á skemmtileg afslappandi stefnumót :)
Um kvöldið komu svo nokkrir vinir hans í kaffi og voru kökurnar bara allt í lagi hjá mér, Davíð borðaði allavega 5 eða 6 sneiðar svo hún getur ekki hafa verið svo vond hjá mér hí hí.

En annars er ég aftur komin með kvef, var hóstandi í alla nótt og er búin að gefast upp og ætla til læknis í dag kl 15:00 og láta skoða mig, var orðin nokkuð góð um helgina en svo í gærkvöldi heltist þetta í mig aftur þannig að ég er búin að vera meira og minna kvefuð í að verða 3 vikur og er ekki að nenna því lengur.
Já og svo eru bara 4 dagar í að elskulega mamma mín komi heim og ég bara get ekki beðið, er farin að þrífa herbergið hennar og undirbúa komu hennar á heimilið :)

Knús á ykkur

september 11, 2007

Hóst hóst

Ég fór til doksa í gær sem lét mig hafa sýklalyf og sagði mér að taka parkódín áður en ég færi að sofa til að minnka hóstann, ég sagði honum að ég ætti parkódín heima en svo kom í ljós að það rann víst út í janúar :) úbbs en ég læt þá bara hóstasaft duga og sýklalyf.
Tók mér svo veikindadag í dag þar sem ég gat ekki opnað augun í morgun, nefið stíflað, varaþurkur dauðans og já þið sjáið þetta fyrir ykkur.
Er svo bara búin að liggja uppi í sófa undir teppi með kisurnar mínar í fanginu og glápa á sjónvarp og hlusta á tónlist í allan dag. En í gær komu sko Scorpions diskarnir mínir sem ég pantaði á Amason, bara gaman hjá mér.
Annars ætla ég að rífa þetta kvef ógeð úr mér á stuttum tíma það er ekkert voða gaman að hanga einn heima veikur og ekkert spes að líða svona ílla.
En Forni í vinnunni sendi mér eitthvað "te" sem er verkjalyf og eitthvað í og sagði mér að drekka það og ég kæmist í vinnuna svona 15 mín seinna hí hí ég drakk þetta ógeð og svei mér þá ef mér líður ekki bara aðeins betur eftir það :)
Knús og kram sætulingar

Ég og litla frænka mín :)

%E9g%20og%20litla.jpg

september 13, 2007

Á morgun :)

Já á morgun kemur mútta krútta heim, loksins.
Ég sakna hennar svo hryllilega mikið og get ekki beðið eftir að fá að knúsa hana og hafa hana hjá mér, sjá myndir úr ferðinni og heyra alla ferðasöguna.
En ég er ennþá heima veik, er alveg komin með ógeð á þessu, en er að vona að ég fari að lagast svo ég geti farið að fara út úr húsi og gera eitthvað skemmtilegt og já mæta í vinnuna.
En ég keypti mér tvo leiki online og er búin að liggja í öðrum þeirra svona eins og ég get því ég er með svo mikinn hausverk að ég get ekki spilað mikið í einu, svo er búið að ná í nokkrar spólur fyrir mig líka og Andrea kom í heimsókn meira að segja með nammi handa mér, jibbý það bjargaði deginum sko.
En núna bíð ég bara eftir að mamma komi heim og þá er ég viss um að ég lagast alveg eins og skot, sennilega er þetta bara af því ég hef ekki séð hana í tvo mánuði, ég þoli bara ekki að vera svona lengi án hennar :)

Knús á ykkur og vonandi eruð þið öll rosa hress og kát.

september 17, 2007

Mamman komin heim :)

Já ég er ennþá á lífi og já mamma mín er komin heim :)
Ég fór út á flugvöll að sækja mömmu á föstudagskvöldið og þarna stóð ég innan um fullt af fólki og beið eftir að farþegarnir færu að koma fram. Þegar mamman mín loksins kom og ég fékk að faðma hana í fyrsta sinn í tvo mánuði þá féllu nú nokkur tár, en það voru gleði tár og mamma átti líka nokkur svona gleðitár. En við vorum svo auðvitað bara heima á föstudagskvöldið og þurftum mikið að tala saman og skoða dót frá útlöndum. Ég er svo eiginlega bara búin að vera með mömmu alla helgina, við fórum í afmæli til tvíburanna og skruppum saman í Kringluna og svo erum við búnar að liggja yfir spænskunni að læra og læra eins og brjálæðingar.
Þannig að síðustu dagar eru búnir að vera æðislegir og alveg yndislegt að fá mömmu sína heim.

Í gær eldaði mamma meira að segja lambalæri og það var alveg yndislegt, ég sat inni í stofu í tölvuleik á meðan mamma brasaði í eldhúsinu svo var bara kallað "Gjörið þið svo vel" og þá var búið að leggja á borð og matreiða þetta geggjaða læri með öllu tilheyrandi. Mér leið eiginlega eins og þegar ég bjó heima hjá mömmu og þurfti ekki að hafa áhyggjur af neinu því mamma sá um allt, þurfti ekki einu sinni að spá í því að elda :)

En svo eru nú reyndar einhverjar breytingar í vinnunni hjá mér núna og á að fara að færa mig inn í aðra deild og þar á ég að vera svona aðstoð við aðra stelpu á álagspunktum og hjálpa henni að taka símann en jafnframt mun ég sinna öllu því sem ég er að sinna í dag. Ég verð nú að viðurkenna að mér líst ekkert of vel á þessa hugmynd en maður á víst ekki að vera neikvæður fyrir en maður hefur prófað svo ég ætla að gefa þessu smá sjéns og sjá til hvernig þetta verður áður en ég fer að fá kast og æsa mig við háttsetta menn.

Já og gleðifréttir hann elskulegi yndislegasti bróðir minn varð 11 mánaða í gær í sinni edrúmennsku, þvílík hetja og þvílíkt gull sem hann er. Ég er svo endalaust stolt af honum að ef ég gæti þá mundi ég sennilega rifna úr stolti. Hann er svo mikið bestur og yndislegastur að stundum finnst mér ég ekki eiga hann skilið fyrir bróður og fatta ekki alveg að lífið hafi snúist svona rosalega við hjá honum, en ég þakka fyrir það á hverjum degi að fá að hafa hann í lífi mínu.
Enda væri það ekki eins frábært ef hann væri ekki þar.

En jæja ætli að það sé ekki best að fara að kíkja á spænskuna :)
Knús á ykkur sæta fólk, njótið lífsins.

september 20, 2007

Alveg að koma helgi

Á morgun ætlum við fjölskyldan að hittast heima hjá Bigga og Boggu, panta mat og skella okkur svo á Players að djamma saman. Það er alltaf svo gaman þegar við hittumst svona öll saman og gerum eitthvað, þannig að ég er orðin svaka spennt að hitta þau og hafa svaka fjör.
Bogga fann einhvern voða fínan nýjan tælenskan stað sem við ætlum að panta mat frá og borða heima hjá þeim.
En á laugardaginn er svo óvissuferð með vinnunni og ég og Davíð og Atli förum öll og er þetta frá kl 14:00 og frameftir kvöldi endar með kvöldmat og eitthvað svaka fjör.

Annars erum við mamma bara búnar að gera mest lítið annað en að læra, þessi spænsku kennsla fer rosalega hratt af stað og maður kemst ekki yfir mikið annað en bara að læra fyrir það. Þannig að ég er voða glöð núna að hafa ekki skráð mig í fleiri áfanga :)
En ég er búin að læra að telja uppá 10 á spænsku, bjóða góðan dag og gott kvöld, segja hvað ég heiti hvar ég á heima og hvaða tungumál ég tala. En annars er þetta frekar erfitt og er ég alveg rugluð í sögnunum og hvernig orðin beygjast og hvaða kyn og tölu þau eru í, en þetta vonandi kemur hjá okkur. Mamma er jú auðvitað með smá forskot þar sem hún er búin að vera úti í tvo mánuði og er hún alveg að redda mér í þessu, því hún er komin með smá grunn í spænskunni. En ég bara vorkenni þeim sem eru að byrja í þessu og hafa engan grunn þeir hljóta að vera alveg sveittir við að læra núna, því að í dag á að skila fyrstu 3 köflunum :)

Knús á ykkur

Pósturinn í dag

Í dag kom bréf í póstinum frá Barnavernd Reykjavíkur sem er að boða okkur í viðtal í næstu viku útaf ættleiðingunni :)
Við erum bara rosa spennt að fara að byrja á þessum pappírum og hlökkum til að mæta þangað og sjá hvað er næst hjá okkur.
En ég var aðeins að uppfæra inni á Ættleiðingarsíðunni okkar linkurinn á hana er hér til hliðar fyrir þá sem vilja skoða.

Svo eiga allir að hugsa fallega til okkar á fimmtudaginn í næstu viku og vona að við fáum nú jákvæð viðbrögð hjá barnavernd svo þeir gefi nú grænt ljós á okkur sem foreldra.

knús á ykkur sætulingar

september 25, 2007

Síðustu dagar....

Við fórum að hitta fjölskylduna á föstudaginn og það var mjög gaman heima hjá Bigga og Boggu en ekki eins gaman á Players. Við pöntuðum mat heim og kjöftuðum fram eftir kvöldi og var það svaka fjör eins og alltaf. En á Players var svo rosalega kalt inni, því eftir að reykingabannið tók gildi þurfa jú allir að fara út að reykja, þannig að það var allstaðar opið út fyrir það fólk og ekkert smá kalt inni á staðnum. Hljómsvetin byrjaði ekki að spila fyrr en kl 00:30 og var búin að spila í nokkrar mín þegar rafmagnið slóg út og svo slóg það út aftur og aftur og var bara ekkert voða gaman.
En allavega við vorum ekki lengi á Players og næst þegar við hittumst ætlum við bara að vera heima og hafa það gaman og sleppa þessu skemmtistaðadóti.

Á laugardaginn fór ég svo í óvissuferð með vinnunni og það var heldur ekki gaman, of mikil rigning og rok til að vara úti að hlaupa nýbúin að vera kvefuð. En það var góður matur og svo var rosa gott að koma heim og skríða upp í sófa undir teppi og slaka á með Davíð mínum.

Á sunnudaginn fórum við Álfheiður í ræktina og svo í heitu laugina þarna og slökuðum á og kíktum svo á kaffihús með Andreu og það var æðislega gaman hjá okkur.
Andrea er komin með óléttubumbu loksins enda á hún nú að eiga eftir 5 vikur ef ég man rétt svo það var nú komin tími til að það færi að sjást almennilega á henni skvísunni.
Ég ætla að vera viðstödd fæðinguna þegar að því kemur, hún ætlar að eiga heima og er búin að bjóða mér að vera viðstödd. Ég hlakka mikið til að fylgjast með þessu öllu saman, það verður jú gaman að fá að sjá fæðingu hjá henni svona fyrst ég þarf ekki að gera þetta sjálf :)

Já og svo er bara verið að læra spænsku, í gær sátum ég, mamma, Atli og Ása öll heima að læra, það var frekar fyndið að sjá okkur öll þarna og stofan full af skólabókum. Ása var voða dugleg að hjálpa Atla mínum við stærðfræðina og gat meira að segja hjálpað mér í spænskunni. Fínt að eiga hana að líka til að hjálpa manni í þessu :)

Jæja þá er ég búin að blogga smá, læt þetta duga í bili :)

september 26, 2007

Viðtalið á morgun

Ég er komin með pínu hnút í magann yfir morgundeginum. Ég veit ekki alveg afhverju ég er að stressa mig á þessu en maginn minn er allavega eitthvað að stressa sig :)
Ég er búin að hugsa hvaða spurningar ætli að þau leggi fyrir okkur, hvað er verið að ath í svona viðtali. Hvernig er hægt að fá einhvern til að dæma það hvort við erum hæf til að vera foreldrar.
Ekki gæti ég treyst mér til þess að hitta eitthvað bláókunnugt fólk tala við það í nokkur skipti og ákveða svo hvort þau eru hæf til að ala upp barn eða ekki. Hvernig sér maður líka hvort að fólk er hæft til að ala upp barn eða ekki, nú höfum við aldrei átt barn svo við vitum það ekki einu sinni sjálf hvort við erum eitthvað hæf til að ala upp barn, ekki misskilja mig ég hef auðvitað fulla trú á því að ég geti þetta og treysti mér alveg í það, en ég er bara að hugsa um það hvernig það er hægt að meta svona mál. Hvernig getur svo einhver ákveðið að þessi aðili sé ekki hæfur, hver færir fólki slíkar fréttir, spáið í áfallinu við slíkar fréttir.
Æi ég veit það ekki auðvitað er til fullt af klikkuðu fólki sem á aldrei að fá að koma nálægt börnum og svo er til fullt af yndislegu og góðu fólki líka sem kannski fær aldrei að eignast börn.
En það er enginn sem fylgist með þvi að þú sért hæfur einstaklingur til að eiga barn ef þú verður ófrísk sjálf. Nei það er enginn sem fylgist eitthvað með því, fólk getur hagað sér eins og það vill á meðgöngunni reykt og drukkið ofan í barnið sitt notað dóp og farið ílla með sig. Það getur vanrækt barnið sitt og hugsað ílla um það og komist upp með það, sem er auðvitað ekki rétt, en hver ætti svo sem að fylgjast með þessu.
En við vonum bara að við komum vel fyrir á morgun og þau hjá Barnavernd sjái að við erum nokkuð heilbrigt og gott fólk og leggi blessun sína yfir þetta.
Ég hlakka bara til þegar þessu er lokið og maginn minn getur farið að taka gleði sína á ný :)

Læt vita á morgun hvernig gekk og þið megið alveg hugsa fallega til okkar á morgun takk

knús á ykkur sæta fólk

september 27, 2007

Hnúturinn er farinn :)

Vá hvað ég var að stressa mig yfir engu hí hí.
Við fórum í morgun og hittum hana Lísbet sem er alveg yndisleg kona, hún mun sjá um okkur í þessum málum. Við þurfum ekki að hitta fullt af fólki þarna, heldur bara hana og hún mun svo koma heim til okkar í heimsókn og hún mun skrifa um okkur skýrslu sem verður svo lögð fyrir nefnd hjá Barnaverndarnefnd Reykjavíkur.
En í morgun vorum við bara aðeins að hlaupa yfir söguna okkar og svona rétt að kynnast hvort öðru og fara yfir framhaldið.
Ég á núna að byrja á því að koma mér til míns heimilislæknis og hann mun svo senda mig til einhvers sérfræðings þar sem ég þarf að fara í einhverjar rannsóknir af því ég er of þung.
Ég þarf svo að skila umsögn sérfræðingsins til hennar Lísbetar og hún þarf að fara með umsókninni okkar út. Við Davíð eigum svo að skrifa niður svona það helsta um okkur, hvar við ólumst upp, fjölskyldutengst, uppvaxtrarár og já þið skiljið.
Lísbet mun svo nota þetta til að spyrja okkur og skrifa skýrsluna um okkur.
En hún ætlar svo að senda okkur einhvern spurningalista sem við eigum að svara líka og svo verðum við í sambandi eftir einhvern tíma til að ákveða næsta tíma til að hittast.

Þannig að þetta er komið af stað og allt gengur vel og við erum ofboðslega glöð með hana Lísbet okkar, sem er alveg yndisleg manneskja og lét okkur líða mjög vel.
Hún spurði okkur hvort við hefðum áhuga á því að gerast fósturforeldrar svo ég er að kynna mér allt um það núna og ætla að skoða það með honum Davíð mínum, hvort það er eitthvað sem væri sniðugt fyrir okkur.

september 28, 2007

Flutningur

Í dag var kveðjuveisla í vinnunni, það voru þrír starfsmenn að hætta í dag. Frekar skrítið að kveðja svona marga í einu, en við fengum pizzu og bjór og starfsmennirnir voru kvaddir með gjöfum.
Í næstu viku mun ég svo flytja inn í söludeild og fara að aðstoða móttökuna við símsvörun, ég er ekki ánægð með þessar breytingar og hef því sagt upp vinnunni minni.
Ég sagði upp útaf þessum breytingum og gerði þeim alveg ljóst að ég væri bara að segja upp af því að ég væri ekki sátt við þessar breytingar annars væri ég alveg til í að vinna þarna áfram.
Yfirmaðurinn minn er að skoða hvað er hægt að gera í stöðunni og ég ætla að vera róleg til 20 nóvember og ekki fara að leita mér að annari vinnu fyrr en eftir þann tíma.

En ég held einhvernveginn að þetta sé breyting sem er komin til að vera og er því alveg undir það búin að fara að skipta um vinnu eftir 5 ára starf á sama stað. Ekki að mig langi að gera það en ég er bara ekki tilbúin að taka á mig meiri vinnu og meira álag. Ég hef bara alveg nóg að gera eins og staðan er í dag.
En ég fékk að fresta þessu fram á þriðjudag svo ég geti klárað verkefni sem þarf að gera hver mánaðarmót, þetta er svona dagsverk að klára þetta og ég yrði sennilega í tvo eða þrjá daga að klára það með móttökuvinnunni, fer eftir því hvað það verður mikið að gera.
Þannig að á þriðjudaginn flyt ég í aðra deild fæ nýtt borð, fer að vinna með öðru fólki en held samt áfram að gera allt það sem ég geri í dag og bara aðeins meira en það.

En í kvöld erum við að fara í keilu með vinnunni hans Davíðs og vonandi verður bara voða gaman hjá okkur og ég næ að hressa mig aðeins við eftir þessar leiðinlegu fréttir.
Knúa á ykkur og góða helgi :)

september 29, 2007

Fyrsta meðmælabréfið :)

Andrea mín lét mig hafa meðmælabréf sem hún skrifaði í dag ég fékk bara tár í augun þegar ég las það. Ég vissi svo sem alveg að henni finnst við æðisleg og við sjáum ekkert nema gott við hvor aðra, enda erum við líka eins og systur. En að fá þetta svona á prenti til að láta fylgja með umsókninni okkar er ótrúlegt, öll þessi fallegu orð um okkur.
Við höfum jú þekkst allt okkar líf eða frá því að ég man eftir mér allavega og mömmur okkar eru bestu vinkonur líka og börnin okkar verða sennilega látin verða bestu vinir líka :)

Í dag fórum við mamma í Kringluna og Andrea kom að hitta okkur líka, ég er svo búin að hanga með Andreu í allan dag. Við vorum að ræða um skóla og hvað maður ætti nú að verða þegar maður verður stór :)
Ég er búin að vera að spá mikið í þessum málum með vinnuna og hvað ég ætti að gera ef ég ákveð nú að hætta í vinnunni. Á ég að skella mér í skóla eftir áramót, ná mér í stúdentspróf eða á ég að finna mér nýja vinnu. Ég veit ekkert hvað mig langar að læra en ég veit samt að mig langar að halda áfram í námi og ef ég fer ekki í dagskóla núna og klára eitthvað af þessu þá verð ég mjög lengi að klára það svona í fjarnámi. Ætti maður að nota tækifærið þegar ég er hvort eð er að breyta svona miklu og hætta í vinnunni eftir 5 ára starf og skella sér bara í skóla eða á ég að byrja uppá nýtt á nýjum stað og fara að vinna mig upp aftur þar.
Ég þyrfti auðvitað að fá mér einhverskonar vinnu með skólanum, maður er jú komin í smá skuldbingingar með fasteign, bíl, mótorhjól og sumarbústað, það þarf víst að borga af þessu öllu líka og svo getur maður reynt að spara líka og látið þetta ganga einhvernveginn.
Ég veit allavega að hann Davíð minn mundi gera allt til að ég kæmist í skóla, hann hefur jú hjálpað mér áður þegar ég fór í Viðskipta- og tölvuskólann :) ég á svo yndislegan mann, heppinn ég.
En svo er það málið hvað langar mig að læra, það er svo margt í boði og ég er ekki með neitt ákveðið takmark, ég veit ekkert hvar áhugi minn liggur og sé mig ekki fyrir mér í neinu ákveðnu starfi. Andrea sagði mér frá einhverju Strong prófi sem maður getur tekið til að sjá svona hvar maður á helst heima og kannski gæti ég komist eitthvað nær því að finna út hvað mig langar að gera með því að taka slíkt próf, það er spurning um að prufa það og sjá svo til.
Ég þarf allavega eitthvað að skoða þessi mál, ég verð jú mamma eftir þrjú ár :) svo það er kannski gott að klára eitthvað af þessu áður en litla krílið kemur svo ég hafi nógan tíma til að vera með því þegar það loksins kemur.
Knús á ykkur sætulingar

september 30, 2007

Skrifstofunám og hönnun

Ég fann þetta ótrúlega sniðuga nám hjá NTV sem heitir skrifstofunám og hönnun.
Þetta er tveggja anna nám og þarna er kennt fullt af spennandi hlutum, margt af þessu kann ég eftir að hafa unnið í 5 ár við skrifstofustörf en margt er nýtt og spennandi.
Þarna á að læra að hanna og útbúa hvers konar kynningaefni, bæklingagerð allt frá myndatöku að prentun. Kennt er á Illustrator teikniforrit, photoshop og imageredy, meðhöndlun lita og fleira skemmtilegt.
Þarna finnst mér ég loksins hafa fundið eitthvað sem ég væri til í að skoða, blanda saman tölvuvinnu sem er vel borguð við smá listsköpun sem mér finnst skemmtileg :)
Námið kostar 400.000 kr með öllu þá bókum og slíku og byrjar núna 15 okt.
Ég ætla að kanna þetta betur á morgun tala við núverandi yfirmanninn minn og ath hvort ég get samið við þá eitthvað um vinnutímann minn en skólinn er frá 8:30 til 12:30 alla virka daga til 12.des, svo ég þyrfti þá að semja eitthvað um vinnutímann minn og svo eftir áramót get ég tekið þetta á kvöldnámskeiðum á aðeins lengri tíma.
Þarna fengi ég líka svokallað ECDL tölvuskírteini eða The European Computer Driving licensen hí hí bara flott nafn, en það samanstendur af sjö prófum sem tengjast tölvufögum.
Lokaverkefnið er svo að hanna nafnspjöld, kveðjuspjöld, heilsíðuauglýsingu fyrir tímarit eða dagblað, 2 litlum auglýsingum (kálfa) og 2 vefauglýsingar (CIF hreyfimyndir).
Bara spennó, vonandi næ ég að díla við yfirmanninn minn og svo VÍSA hí hí.

Annars ein skemmtileg saga svona í lokin, Bogey Tinna frænka mín 9 ára kom með snilldar setningu í gær. Hún sagðist sko vera að fara eignast hálf frænku, Hlynur 9 ára frændi minn spurði þá afhverju hálf frænku, jú af því að Davíð og Sigríður Ásta eru að fara að ættleiða barn frá útlöndum og þá verður það hálf frænka mín. Ég hóaði svo í hana og spurði hana um þetta afhverju þetta yrði bara hálf frænka. Jú af því að barnið á aðra mömmu í útlöndum og er ekki skylt henni í alvörunni og þá er þetta bara hálf frænka. Börnin eru með svör við öllu og eru sko ekki að flækja hlutina. En ég veit hins vegar ekki hvernig hún komst að því að við fengjum stelpu því hún talaði aldrei um neinn hálf frænda, þannig að við sjáum til hvort kynið þetta verður :)

Knúa á ykkur og hafið það gott.

About september 2007

This page contains all entries posted to Sigga in september 2007. They are listed from oldest to newest.

ágúst 2007 is the previous archive.

október 2007 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.32