Afmælisdagurinn var æðislegur, Atli var ekkert smá glaður með þessa gjöf frá mér og kunni sko vel að meta hana. Hann svaf í 1 og 1/2 tíma í hvíldarstofunni þarna með hægindastólunum og arninum, ótrúlega kósí.
En við prufuðum svona flestar gufurnar og fórum nokkrar ferðir í heita pottinn, pöntuðum okkur mat og drykki, og fórum í allskonar böð, t.d. fossa og fötu böð, bara gaman.
En Atla fannst þetta þvílíkt æðislegt og ætlar sko að nota þennan stað til að bjóða "vinkonum" sínum á skemmtileg afslappandi stefnumót :)
Um kvöldið komu svo nokkrir vinir hans í kaffi og voru kökurnar bara allt í lagi hjá mér, Davíð borðaði allavega 5 eða 6 sneiðar svo hún getur ekki hafa verið svo vond hjá mér hí hí.
En annars er ég aftur komin með kvef, var hóstandi í alla nótt og er búin að gefast upp og ætla til læknis í dag kl 15:00 og láta skoða mig, var orðin nokkuð góð um helgina en svo í gærkvöldi heltist þetta í mig aftur þannig að ég er búin að vera meira og minna kvefuð í að verða 3 vikur og er ekki að nenna því lengur.
Já og svo eru bara 4 dagar í að elskulega mamma mín komi heim og ég bara get ekki beðið, er farin að þrífa herbergið hennar og undirbúa komu hennar á heimilið :)
Knús á ykkur
Comments (3)
Mikid er hann Atli nú heppinn ad eiga tig fyrir systur....og reyndar thu ad eiga hann fyrir bródur :) og ég heppnust af ollum ad eiga svona yndisleg born. Hlakka mikid til ad koma heim og knúsa ykkur. Er annars ad leggja drog ad tví ad fá hús handa okkur í Son Bou naesta vor....byrjid ad safna :)knús mamman
ps.búin ad vera í einkasundl.í mestallan dag:O
Posted by mamman | 10.09.07 19:21
Jei hljómar rosalega vel ég er byrjuð að safna ;)
knús og kram
Posted by Sigga Ásta | 10.09.07 19:25
Pant þú vera systir mín ;)
Ég missti af kökunum þínum :(
Smári þurfti að vinna aukalega og ég að skúra :(
ömó, en við komum sko pottþétt næst,enda fretti ég af heimsins bestu ;) haha..!!
Ekki nógu gott með þetta kvef, vonandi gefur læknirinn þér e-ð við þessu, ómögulegt að vera svona :)
Posted by Auður | 11.09.07 19:17