Sigga kisumamma

Já hér er ég með öll sætu kisukrílin mín, mömmufang er sko best í heimi :)
En ég var að bæta myndum á myndasíðuna okkar.
Þessi mynd varð samt að fara á bloggið, það er ekki oft sem þær koma allar í einu til mín og kúra.
« nóvember 2007 | Main | janúar 2008 »

Já hér er ég með öll sætu kisukrílin mín, mömmufang er sko best í heimi :)
En ég var að bæta myndum á myndasíðuna okkar.
Þessi mynd varð samt að fara á bloggið, það er ekki oft sem þær koma allar í einu til mín og kúra.
Lísbet hringdi í okkur í dag og lét okkur vita að hún væri búin að gera skýrsluna okkar :)
Þannig að við fórum að hitta hana í síðasta sinn í dag til að lesa yfir skýrsluna. Við vorum rosalega ánægð með skýrsluna hún var mjög falleg og vel gerð. Þannig að núna fer þetta fyrir einhverja nefnd og þaðan til sýslumanns og svo loksins til ÍÆ.
En við erum búin að vera að safna gögnum í umsóknina okkar til Kólumbíu. Erum komin með fæðingarvottorð, hjúskaparvottorð, vottorð frá vinnuveitanda, passamyndir af okkur, sálfræðimatið og erum að bíða eftir læknisvottorðinu.
Þannig að þetta er allt að smella saman hjá okkur og alltaf styttist í að við fáum barnið okkar, því að hver dagur færir okkur jú nær barninu okkar og dagarnir fljúga áfram núna, sem er bara hið besta mál :)
Við vorum að spá í því um daginn að það er bara að verða komið hálft ár frá því að við byrjuðum í þessu ferli, ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða.
Knús og kram á ykkur sætulingar
ps bara 20 dagar til jóla :)
Linda vinkona frá Akureyri kom til mín í gær, hún verður hér fram á sunnudag. En hún er að setja hárlengingar í stelpur hér í Reykjavík, þannig að ég fékk að hafa hana hjá mér í gærkvöldi og svo gisti hún hjá okkur í nótt. Það var ótrúlega gaman hjá okkur í gær og vorum við að kjafta og skoða myndir fram á nótt. Ég fann eldgömul myndaalbúm og var mikið hlegið yfir þessum svakalega "töff" myndum af okkur. Við vorum ótrúlegar þegar við vorum litlar, vorum alltaf að taka einhverjar módel myndir af okkur og senda á módelskrifstofur, við skrifuðum sögu og fórum með á blaðaútgáfu heima á Ólafsfirði og vorum rosalega hissa þegar fólk vildi ekki fá okkur sem rithöfunda eða módel hí hí hí, vá hvað þetta var gaman. En það er allavega ekki hægt að segja annað en að við höfum fundið okkur eitthvað að gera, okkur leiddist allavega aldrei :)
Æi það var svo auðvelt að vera ungur og áhyggulaus, það voru allir dagar skemmtilegir hjá okkur og alltaf einhver ævintýri í gangi. Einu sinni skrifuðum við með risastórum stöfum Sigga hjarta Gísli á Sparisjóðinn heima og Valdi í Sparisjóðnum hringdi í mömmur okkar og við vorum látnar þrífa þetta af með vatn í fötu og einhverja svampa og drasl. Við vorum nú ekki sáttar við það, þannig að við hefndum okkar og náðum í hvíta krít og tómatsósu, ég lagðist á stéttina fyrir framan innganginn í Sparijóðinn og Linda teiknaði með hvítri krít útlínurnar mínar og svo klesstum við tómatsósu á hausinn. Þetta fannst okkur ótrúlega fyndið og daginn eftir þegar Valdi var með kúst að þrífa stéttina var þetta ennþá meira fyndið og okkur fannst við hafa jafnað málin við Sparisjóðinn hí hí hí. Bara svona til að taka það fram þá er ég ennþá í viðskiptum við Sparisjóð Ólafsfjarðar og vil alls ekki fara neitt annað :)
Æi það eru svo margar sögur af okkur og svo margar skemmtilegar minningar sem við eigum.
En Linda ætlar svo að skella í mig hárlengingu á sunnudaginn þannig að ég fæ að prufa að vera með sítt hár í fyrsta skipti, ég skal skella inn myndum af því á sunnudaginn þegar ég verð orðin fín og sæt.
knús á ykkur og góða helgi :)


Hvernig finnst ykkur svo ?

Vinnan mín er æðisleg þessa dagana. Í dag er svokallaður rauður dagur í vinnunni, þá mættu allir í einhverju rauðu. Einn kom í jólasveinabúning með skegg og allt, einn kom í víkingabúningi raðum, með sverð og allar græjur. Ein kom með rauða jólaseríu, rauðar slaufur á skónum og jólaeyrnalokka svo eru allskonar búningar í gangi. Yfirmaðurinn minn átti svo afmæli um daginn og fékk fjarstýrða þyrlu í gjöf, hann var að fljúga henni hérna um skrifstofuna í morgun og flaug hún utan í allt og datt í gólfið oft og mörgu sinnum.
Semsagt mjög gaman í vinnunni og alltaf eitthvað í gangi.
Þetta er stundum eins og The Office nema að minn yfirmaður er alveg ótrúlega skemmtilegur og hefur sko húmorinn í lagi.
Hann fór til útlanda í nokkra daga og á meðan skreytti skvísufélagið í vinnunni skrifstofuna hans, það er sko skreytt, sería límd meðfram borðinu hans og yfir tölvuskjáinn, jólakúlur hangandi fram af skrifborðinu, stofublóm er orðið jólatré og já þetta er bara ekkert nema jólaskraut þarna og minnir á einhverskonar jólahús eiginlega.
Þegar hann mætti í vinnu brjálaðist hann úr hlátri og honum dettur ekki í hug að taka þetta niður, nei nei þetta fær að hanga allt saman þarna og hann fer sko með viðskiptavini þarna inn á fundi hí hí hí , hvað ætli að fólk haldi !!!
Æi vinnan mín er bara æðisleg og fólkið sem ég vinn með er alveg yndislegt.
Ég og tengdó fórum saman á Frostrósartónleikana í gærkvöldi. Það var yndislegt að fara á þá, svo ótrúlega fallegur söngur og bara allt svo fallegt og hátíðlegt þarna. Við skemmtum okkur allavega rosalega vel :)
Annars var dagurinn í gær eitthvað svo ótrúlega skemmtilegur allur, ég og mamma skottuðumst aðeins í búðir og keyptum allskonar drasl. Fórum svo heim og Silla kom í kaffi til okkar þá var dregið fram allskonar dót sem var keypt á búðarápinu, lax, síld, hvítlauksbrauð og pestó :) nammi nammi namm. Andrea, Unnar og Björgvin komu svo í kaffi líka til okkar og um kvöldið komu Jói og Hildur í heimsókn. Bara gaman að hitta fullt af góðum vinum og skemmta sér á tónleikum á aðventunni. Ég mæli alveg með því að slaka á og gera eitthvað skemmtilegt :)



Í dag fengum við sko lang bestu og stærstu jólagjöf í heimi, við fengum forsamþykki fyrir ættleiðingu. Já loksins eftir nærri hálft ár þá er skýrslan komin inn um lúguna hjá okkur og við erum svo endalaust glöð að það er bara nærri eins og við höfum fengið barnið okkar sent til okkar í dag :)
Þetta er yndislegt og ég er búin að tárast svo yfir skýrslunni hún er bara svo falleg.
Núna er svo bara að koma þessu í þýðingu og svo til ÍÆ sem sjá um loka "fíneseringu" á þessu öllu og senda svo til Kólumbíu, jibbý jei við erum svo happy núna að það er yndislegt.
Semsagt lang lang besta og stærsta jólagjöf í öllum heiminum. :)
Þetta er sko risa skref í átt að barninu okkar vá ég brosi bara hringinn þetta er svo yndislegt.
knús og kram á ykkur sætulingar
Vá hvað við erum búin að hafa það gott, þetta er bara búið að vera yndislegt :)
Aðfangadagur var auðvitað bara æðislegur, geggjaður matur og gjafir fyrir 100 manns undir tréinu.
Ég fékk æðislegt hálsmen og armband frá ástinni minni og svo fékk ég 2 púslur, tösku, trefil, handmálaða skál frá mömmu, sjal, tvö gjafakort, jóla engla kúlur í æðislegu boxi, ilmkertastjaka, tvo geisladiska, Monopoli, hitakönnu, kerti og fl.
En á jóladag var svo matarboð hjá tengdó og þar hittum við allt fólkið hans Davíðs og það var mjög gaman og rosa góður matur. Um kvöldið var svo spilakvöld heima hjá okkur og svo var afmælisveisla og annað matarboð á annan í jólum.
Ég er búin að klára aðra púsluna sem ég fékk í jólagjöf en ætla að eiga hina eftir fyrir norðan.
Við förum norður á morgun og verðum hjá ömmu og afa yfir áramótin.
Ég bjó til svona borðstofu inni í barnaherberginu og við borðuðum þar á aðfangadag og það var bara alveg yndislegt, líka svona til að halda uppá að við erum búin að fá já hér heima þá fannst mér alveg við hæfi að borða í barnaherberginu svo krílið væri nú svona í hugum okkar allavega :)
En það sem var svona eitt af því yndislegasta við þessi jól var auðvitað allur þessi yndislegi snjór sem þakkti alla jörð og allt varð svo hvítt og fallegt, ég lá bara úti í glugga og horfði á þetta yndislega hvíta dót falla af himnum og brosti hringinn.
En annars óska ég öllum bara gleðilegs árs og þakka fyrir allt gamalt og gott.
Áramótaknús og kremjur á ykkur öll og takk fyrir okkur.
ps. set inn myndir í kvöld :)
This page contains all entries posted to Sigga in desember 2007. They are listed from oldest to newest.
nóvember 2007 is the previous archive.
janúar 2008 is the next archive.
Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.