Lísbet hringdi í okkur í dag og lét okkur vita að hún væri búin að gera skýrsluna okkar :)
Þannig að við fórum að hitta hana í síðasta sinn í dag til að lesa yfir skýrsluna. Við vorum rosalega ánægð með skýrsluna hún var mjög falleg og vel gerð. Þannig að núna fer þetta fyrir einhverja nefnd og þaðan til sýslumanns og svo loksins til ÍÆ.
En við erum búin að vera að safna gögnum í umsóknina okkar til Kólumbíu. Erum komin með fæðingarvottorð, hjúskaparvottorð, vottorð frá vinnuveitanda, passamyndir af okkur, sálfræðimatið og erum að bíða eftir læknisvottorðinu.
Þannig að þetta er allt að smella saman hjá okkur og alltaf styttist í að við fáum barnið okkar, því að hver dagur færir okkur jú nær barninu okkar og dagarnir fljúga áfram núna, sem er bara hið besta mál :)
Við vorum að spá í því um daginn að það er bara að verða komið hálft ár frá því að við byrjuðum í þessu ferli, ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða.
Knús og kram á ykkur sætulingar
ps bara 20 dagar til jóla :)
Comments (6)
Æðislegt, hlakka til að fylgjast með ykkur ;)
Hálft ár, vá hvað það er langur tími, mér hálf brá bara, ótrúlegt hvað þetta líður hratt, þið verðið farin að pakka niður fyrir kolumbíu ferðina áður en þú veist af ;)
Sendi þér smá knús
Auður
Posted by Auður | 05.12.07 15:12
Taka tvö:
Hæ Sigga Ásta:)
Gaman að kíkja á bloggið þitt:) Nú er þetta allt að smella hjá ykkur og ekki langt í að þið getið sent umsóknina ykkar út til Kólumbíu:) Það verður þvílíkur léttir, þá er þetta algjörlega úr ykkar höndum og ekkert að gera nema bíða "þolinmóður" eftir barninu langþráða:) Þið eruð bara rétt á eftir okkur þannig að við verðum samferða stóran hluta leiðarinnar:)
Bestu kveðjur til ykkar frá Akureyri,
Gígja.
Posted by Gígja | 06.12.07 09:04
ohh ég get ekki hætt að hugsa um smákökurnar nammmmm :P
Posted by Ása Unnur | 06.12.07 16:38
Takk fyrir kveðjurnar stelpur mínar og Ása komdu bara yfir það er til meira :) ..... og það má borða þær ;)
Posted by Sigga Ásta | 06.12.07 20:31
hihi, ég borðaði svo mikið síðast að ég held ég sé búinn með jólataxtan :)
Posted by Ása Unnur | 07.12.07 11:00
Hæ. Ég var með ykkur á námskeiðinu á Glymi. Gaman að fyljast með hjá ykkur. Við erum kominn aðeins styttra en þið í ferlinu til Kólombíu. Verðum í sambandi. Gangi ykkur rosalega vel og gleðileg jól
Posted by Aðalheiður | 12.12.07 14:39