« október 2009 | Main | janúar 2010 »

desember 2009 Archives

desember 27, 2009

Sum sár gróa aldrei

Ung stelpa átti í mestu vandræðum með skapið og var sífellt að tapa sér, stríða og láta öllum illum látum. Mamma hennar var orðin verulega þreytt á ótuktaskapnum. Dag einn rétti hún dóttur sinni box með stórum nöglum og sagði við hana: ,,Í hvert sinn sem þú missir stjórn á skapi þínu eða stríðir einhverjum áttu að fara út í garð og negla nagla í girðinguna.“

Stelpan hlýddi móður sinni og fyrsta daginn negldi hún 37 nagla í girðinguna, brjáluð í skapi. Síðan liðu dagar og vikur og sífellt fækkaði nöglunum sem stelpan þurfti að berja í girðinguna. Hún áttaði sig nefnilega á því að það var mun auðveldara að hafa stjórn á skapinu og hætta að stríða en að negla þessa risanagla í girðinguna.

Kvöld eitt gekk stelpan stolt upp að mömmu sinni og sagði: ,,Ég hef algjörlega passað skapið í dag og ekki strítt neinum.“ Mamman var verulega stolt af dóttur sinni og gekk með henni út í garð.

,,Þú hefur staðið þig vel og tekið miklum framförum. Núna skaltu draga einn nagla úr girðingunni fyrir hvern dag sem þú missir ekki stjórn á þér.“

Að kvöldi hvers dags gekk stelpan út í garð og dundaði sér við að draga nagla úr girðingunni. Það tók sinn tíma. Eftir nokkrar vikur, eftir að stelpan var algjörlega búin að ná tökum á skapi sínu og hætt að stríða, var hún búin að draga alla naglana úr girðingunni. Hún gekk stolt til mömmu sinnar og sagðist hafa lokið áætlunarverkinu.
,,Ég er mjög stolt af þér,“ sagði mamman. ,,En sjáðu girðinguna. Hún verður aldrei söm. Götin verða alltaf til staðar. Þannig er það líka þegar þú stríðir öðrum eða notar ljót orð um aðra. Sárin verða alltaf á sálinni. Ef þú stingur einhvern með hníf mörgum sinnum verða sárin alltaf sýnileg, alveg sama hversu oft þú segir fyrirgefðu. Mundu, dóttir góð, að vinir eru dýrgripir. Þeir fá þig til að brosa, hvetja þig til dáða, hlusta þegar þú þarft á því að halda og eru alltaf tilbúnir að opna hjarta sitt fyrir þér. Þess vegna skaltu gæta þess hvað þú segir um þá og í návist þeirra.“

Jólin með nýju sniði á Hofteignum

Loksins loksins héldum við jól með barninu okkar, þvílík hamingja og þvílík gleði :)
Það sem maður má þakka fyrir þetta yndislega barn sem við fengum, hann er alltaf glaður og alltaf brosandi og bræðir mann gjörsamlega. Lífið er bara fullt af gleði og hamingju eftir að hann kom til okkar og var það nú gott fyrir. Að sjá þetta litla skott rífa í seríuna á jólatréinu og reyna að borða ljósin, vera gjörsamlega dáleiddan af pakkaböndum og rífa og tæta jólapappírinn af gjöfunum sínum, það er bara yndislegt.
Á jóladag fór hann svo að skríða hér um allt hús, foreldrunum til mikillar gleði og ánægju en kisurnar voru ekki eins sáttar við að litli brjálæðingurinn gæti allt í einu náð þeim :)
Ég hef ekki sofið eins mikið og ég er vön þessi jól og ég er ekki byrjuð á bókinni sem ég fékk þessi jólin, en ég hef bara verið upptekin við að njóta tímans með yndislega syni mínum sem er svo miklu betri en svefn eða góð bók.
Ég skrúbbaði ekki baðið fyrir jólin, óhreinatauið var ekki tómt og við vorum að ganga frá þvotti á aðfangadagskvöld þegar drengurinn var sofnaður, þrátt fyrir að ekki væri allt á sínum stað og ekki væri allt hreint og fínt komu jólin og þau voru þau bestu til þessa.

jolfjolsk.jpg


desember 31, 2009

2009 gleymi ég aldrei :)

Partur af mér vill ekki enda þetta ár, þetta ár hefur verið það besta í mínu lífi og ég er ekki tilbúin að sleppa taki af því. En á móti er ég líka rosalega spennt fyrir árinu 2010, árinu sem ég verð þrítug, drengurinn minn verður 1 árs og ég fer aftur að vinna.
Þegar ég horfi til baka og rifja upp þetta ár þá átta ég mig líka á því hvað það leið fáránlega hratt það er svo stutt síðan ég tók niður jólaskrautið ólétt og hugsaði til þess að næstu jól hefði ég loksins barnið mitt hjá mér líka. Ingi fæddist svo í apríl og breytti öllu, allt sem skipti máli áður en hann fæddist dofnaði einhvernveginn eftir að hann kom í heiminn. Ingi var og er númer eitt og mér finnst eins og við höfum alltaf þekkst og hann hafi alltaf verið með mér, þetta er skrítið en ég er viss um að flestar mæður og jafnvel feður vita hvað ég er að meina.
Ég horfi björtum augum til næsta árs og hlakka til að fá að njóta þess með strákunum mínum, fjölskyldunni allri og vinum okkar.
Gleðilegt nýtt ár allir saman.

About desember 2009

This page contains all entries posted to Sigga in desember 2009. They are listed from oldest to newest.

október 2009 is the previous archive.

janúar 2010 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.32