Hitið ofninn í 180°c og smyrjið 24 cm lausbotna kökuform.
Sigtið hveitið, lyfitiduftið, saltið, kakóið og matarsódann í skál og hrærið hrásykrinum útí.
Bræðið smjörið og kókið saman við lagan hita í potti og bætið hægt og rólega við þurrefnin ásamt mjólkinni, eggjunum og vanilludropunum. Hrærið stanslaust.
Þegar öllu hefur verið blandað varlega saman, hellið í kökuformið og bakið í 40 mín. Eða þar til að prjónn kemur hreinn úr miðju kökunnar.
Látið kólna á ofngrind í 10 mínútur og takið þá úr forminu þá og látið kólna betur á ofngrindinni.
Kremið:
Bræðið smjörið í potti ásamt kókinu og kakó við lágan hita.
Sigtið flórsykurinn í skál og hellið smjörblöndunni hægt yfir og hrærið þar til mjúkt.
Smyrjið yfir kökuna og bíðið þar til kremið hefur jafnað sig.