Finna uppskrift:




Flokkaðar


Alls uppskriftir: 324
Teljarinn

92449  
uppskriftir
Top 10 virkir notendur
admin 150

Póstar til notenda

Sunnudagur 7. febrúar 2010

Tyrknesk baunasúpa

Baunasúpa frá Tyrklandi Fyrir 2-4

  • 2 dl rauðar linsubaunir
  • 1 meðalstór kartafla
  • 2 gulrætur
  • 1 laukur
  • 2 grænmetisteningar
  • 1 dós tómatpuré
  • Mynta, þurrkuð eða fersk
  • salt og pipar

Allt grænmetið er saxað niður mjög smátt. Setjið 1 lítra af vatni í pott og bætið við grænmetinu. Gott er að sjóða grænmetið þar til að það maukast og bæta svo baununum við þar sem þær þurfa styttri tíma. Bíðið þar til suðan kemur upp, lækkið hitann og látið krauma í 20 til 40 mínútur. Tómatmaukinu er því næst bætt við og svo myntunni. Salt og pipar eftir smekk. Anna bendir á að einnig sé hægt að sleppa myntunni og setja 1½ dós af kókosmjólk út í ásamt kóríander og þá sé komin önnur góð súpa.

Fréttablaðið

admin permalink | red_print.jpg | email.gif | 17:07
Umsagnir

Skrá umsögn









Muna mig?








Vinsamlega smellið aðeins einusinni á senda.