Fimmtudagur 8. júlí 2010
Indverskur chilli kjúklingur
- 1 kg beinlaus kjúklingur (skorinn í litla bita)
- 2 laukar (meðalstórir)
- 3-4 tómatar
- 3-4 ferskt chili (brytjað smátt)
- 3 dl rjómi ( eða gríska jógúrt þá er þetta orðið meinhollt )
- 1 tsk salt
- 3-4 hvítlauksrif
- 1cm engiferrót
- 1 tsk cumin
- 1 tsk coriander
- ½ tsk karrý duft
- 1 tsk garam masala
- ½ tsk chilli duft
- 2-3 msk steiktur laukur (notist ef sósan er þunn)
- 1 dl olía
Meira um: "Indverskur chilli kjúklingur"
Byrjið á því að skera laukinn smátt. Setjið hvítlauk, engifer og tómata saman í matvinnsluvél og maukið.
Setjið olíu á pönnuna og steikið laukinn í olíunni þangað til hann er orðinn gylltur á litinn og mjúkur. Þá er maukinu bætt út í og það látið malla í tvær mínútur.
Kjúklingurinn er settur úr í á þessu stigi málsins. Þegar kjúklingurinn er farinn að hvítna má bæta kryddinu út í, eða öllu nema ferska chilli piparnum. Látið þetta malla í sirka fimm mínútur og hrærið stöðugt í pottinum á meðan.
Lækkið hitann og bætið rjómanum og ferska chillinu saman við. Hræði vel saman og látið malla í þrjár til fjórar mínútur.
Ef sósan er ekki þykk þá má bæta steiktum lauk saman við. Lækkið hitann ennþá meira og setjið lok á pönnuna og látið réttinn eldast í fimm mínútur til viðbótar.
Berið fram með hrísgrjónum og salati.
Rétturinn inniheldur mikinn hvítlauk og mikið af ferskum chilli pipar. Hvítlaukur er klárlega pensillín fátæka og getur komið í veg fyrir kvef, flensu, lækkað blóðþrýsting og vörn gegn hjartasjúkdómum.
fela aftur
Fimmtudagur 1. júlí 2010
Tikka Masala kjúlli ( holl útgáfa )
Fyrir 4
- 700 gr kjúlli skorin í bita
Marinering :
- 4 dl létt ab mjólk
- 4 msk sítrónusafi
- 4 tsk cumin
- 4 tsk cayenne pipar
- 4 tsk svartur pipar
- 2 tsk kanill
- 2 tsk salt
- ca 4 cm bútur engifer rifinn eða maukaður
Sósa :
- 2 tsk olía
- 2-4 hvítlauksgeirar
- 2 st grænn pipar
- ferskur kóríander
- 2 tsk cumin
- 2 tsk paprikuduft
- 2 tsk garam masala
- 1 tsk salt
- 2 dósir niðursoðnir tómatar hakkaðir
- 100 gr grísk jógúrt eða eftir smekk
Meira um: "Tikka Masala kjúlli ( holl útgáfa )"
Leggja kjúkling í marineringu í amk klst, jafnvel betra yfir nótt.
Veiða kjúklinginn uppúr marineringunni og baka í ofni í eldföstu við 200° í 25 mín. (marineringunni er hent).
Mauka tómatana með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Fræhreinsa piparinn og hakka með hvítlauknum, steikja pipar-hvítlauksjukkið síðan í 1 mín upp úr olíu á pönnu og bæta síðan kryddum og tómötum útá. Láta sósuna malla í 15 mín. Bæta kjúkling útá og hræra grískri jógúrt útí í lokin.
fela aftur
Miðvikudagur 21. apríl 2010
Kjúklingaréttur frá Afríku
- 6 kjúklingabringur
- 2 msk matarolía
- 2 hvítlauksgeirar
- 1 ½ tsk salt
- 1 ½ bolli smátt saxaður laukur
- 6 - 8 tsk cummin (ekki kúmenduft heldur skrifað cummin)
- ¼ tsk paprikuduft
- ¼ tsk kanill
- 1 ½ tsk lárviðarlauf (má sleppa)
Sósuhluti réttar:
Innihald:
- 2 dósir niðursoðnir tómatar (nota bara safann úr annarri)
- 5 - 6 msk soja sósa
- 2 tsk edik
Þekjan á réttinn:
Innihald:
- 4 msk kókosmjöl (má vera bæði fínt eða gróft)
- 1 ½ banani (niðursneiddur)
- 2 paprikur, ein rauð og önnur græn skorin í strimla
- 1 tsk salt
- 1 tsk pipar
- 1 ½ dós hrein jógúrt
Meira um: "Kjúklingaréttur frá Afríku"
Aðferð:
• Bringurnar eru hlutaðar niður í c.a. 20 – 30 bita það er c.a. 5 bitar úr hverri bringu.
• Laukur og hvítlaukur smátt saxaðir og steiktir á pönnu við vægan hita í olíunni.
• Þegar búið er að mýkja laukinn ekki brúna er öllu kryddinu blandað útí og blandan þurrsteikt. Þessi blanda er svo sett í skál og kæld.
• Því næst á að hræra 4 msk af olíu saman við 2 msk af púðursykri og því blandað saman við lauk og kryddblönduna.
• Kjúklingabitarnir sem eru ósteiktir eru settir útí blönduna og þeir látnir standa í henni í c.a. 20 mínútur.
• Kjúkklingabitarnir eru því næst steiktir við vægan hita á pönnu þar til þeir hafa náð brúnum gljáa. Muna að steikja vel.
• Síðan setur maður alla laukblönduna úr skálinni á pönnuna með og lætur steikjast með í lokin.
Sósuhluti :
• Tómatarnir í dósinni skornir þ.e. ef þeir eru ekki maukaðir eða skornir í dósinni.
• Vökvanum og tómatabitunum hellt yfir kjúklingabitana á pönnunni ásamt kryddinu, sojasósunni og edikinu.
• Látið sjóða í 20 – 30 mínútur.
• Jógúrtinni er hellt útí þegar búið er að sjóða réttinn í 20 – 30 mínútur.
• Sett í eldfast mót og þekjan borin á og hitað í ofni í c.a. 10 mínútur í 180° heitum ofni.
Þekjuhluti :
Aðferð:
• Kókosmjölið er þurrsteikt á pönnu þar til það hefur náð gullnum lit.
• Banani sneiddur niður og paprika skorin í strimla.
• Þessu þrennu er blandað saman og hellt yfir réttinn.
Borið fram með kældu hvítvíni, nanbrauði, hrísgrjónum og fersku salati með niðurbrytjuðum döðlum. Ekki er verra að bera smá mango chutney sultu fram með þessu.
fela aftur
Þriðjudagur 9. mars 2010
Teriyaki kjúklingaleggir
- Kjúklingaleggir – ca. 12 til 20!!!
- 1 flaska teriyaki sósa
- 2 þumlungar ca. ferskur engifer
- 3 hvítlauksrif
- 2 stk vorlaukur
- 1 sítróna
- Hrásykur eða hunang - verður að smakkast til
- 1 rauður ferskur chili pipar
- 1 tsk sesam olía
- Koriander, alveg heill hellingur, niðurskorið
Meira um: "Teriyaki kjúklingaleggir"
Skera engifer smátt eða rífa á rifjárni. Saxa niður hvítlauk eða pressa í hvítlaukspressu. Skera niður smátt engifer, hvítlauk og chili (muna að taka fræin úr chili piparnum).
Skera hvíta hlutan af vorlauknum smátt niður, en græna hlutan gróft
Blanda saman teriyaki, pressaðri sítrónu, sykri, sesamolíu og blanda í engiferi, hvítlauk og chili pipar. Nugga þessu vel inn í kjúklinginn og láta standa allavega í hálf tíma.
Setja í ofnfast fat og strá yfir vorlauk en bara hvíta hlutanum, baka í 200 gr. í ca. 40 mín. Passa að vökvinn hverfi ekki alveg, setja þá álpappír yfir ef þarf.
Strá svo koriander og græna hlutanum af vorlauknum yfir.
Þetta getur ekki klikkað!!!
(ég hef notað heilt búnt af koriander og ca. eina matskeið af hunangi, en þetta fer eftir smekk)
fela aftur
Föstudagur 8. janúar 2010
Mexíkó Lasagna
- 5-6 kjúklingabringur
- ½ laukur
- 2 rauðar paprikur eða 1 stór
- Eitt bréf Burrito kryddmix, og má vera taco kryddmix.
- 2 dósir af salsa sósu
- ½ líter matarrjómi
- 6 tortilla pönnukökur
.
Meira um: "Mexíkó Lasagna"
Kjúklingabringurnar eru skornar í teninga, laukurinn skorinn smáttog paprika í teninga.
Laukur steikur ásamt paprikunni, kjúklingum bætt útí og kryddmixinu blandað við, láta krauma þangað til kjúklingurinn er steiktur, og þá bæta salsa sósu og matarrjómanum útí, láta malla í smá stund.
Eldfastmót, þekja þarf botnin af burrito pönnukökum, klippa til pönnukökurnar, svo er kjúklingarétturinn og pönnukökurnar sett til skiptis, kjúklingurinn þarf að vera efst, svo er settur gratíneraður ostur yfir og látið vera inní þangað til osturinn er bráðnaður og smá brúnn
fela aftur
Sunnudagur 29. nóvember 2009
Kjúklingaréttur
- 1 poki grjón (ég nota tilda basmati pokagrjón)
- 1 vegetable rice í gulum pakningum ( fæst í bónus)
- 1pk frosið grænmeti (ég notaði sælkerablöndu allan pokann)
- 4 kjúklingabringur
- 1pk Toro kylling grýta Balí í fjólubláum umbúðum
- 1 matreiðslurjómi
- Pínu mjólk
- Rifinn ostur
Meira um: "Kjúklingaréttur"
Ég geri bæði grjónin tilbúin og set þau í botnin á eldföstu móti, steiki kjúklinginn og krydda með kjúklingakryddi. Kjúklingurinn settur ofan á hrísgrjónin og síðan sýð ég grænmetið í 3 mín og blanda því við kjúklinginn. Geri grýtuna nema ég nota ekki leiðbeiningarnar á henni heldur blanda ég henni saman við rjómann og set pínu mjólk með til að fá meiri sósu, helli henni yfir allt og set álpappír yfir og set í ofn við 200c í 20 mín tek þá álpappírinn af og set ost yfir og haf í aðrar 10 mín. Gott með brauði og fersku salati.
fela aftur
Föstudagur 16. október 2009
Kjúklingaréttur
- 1 dl. aprikósumarmelaði
- 50 gr. púðursykur
- 25 gr. smjörlíki
- 1 dl. barbequesósa
- 1/2 peli rjómi
- 1/2 dl. sojasósa
Meira um: "Kjúklingaréttur"
Hita þetta, ekki sjóða. Hella yfir kjúklingabringurnar gott að merenera bringurnar aðeins áður. Steikt í ofni í 1 klst.
Uppskrift barst í gegnum
facebook.
Sendandi: Gudrun Juliusdottir
fela aftur
Miðvikudagur 14. október 2009
Sterkur kjúklingaréttur
4 kjúklingabringur kryddaðar eftir smekk og brúnaðar á pönnu til að loka þeim.
Hræra saman í skál:
- 3 dl tómatsósa
- 3-4 hvítlauksrif kraminn út í tómatsósuna
- 1 peli rjómi
- 2-3 msk. Bavaria karrý
- Salt + pipar
.
Kjúklingabringurnar settar í eldfast mót og blöndunni úr skálinni hellt yfir.
Bakað í ofni.
Meira um: "Sterkur kjúklingaréttur"
Miðvikudagur 2. september 2009
Kjúklingaréttur Jöggu
- Bringur
- Kjúklingakrydd
- Harður ostur (t.d. piparostur)
- Rautt pestó
- Rifinn Mozzarella ostur
- Sveppir, laukur og paprika eða annað grænmeti t.d. paprika, spínat og zucchini
- Rjómi
Meira um: "Kjúklingaréttur Jöggu"
Bringurnar kryddaðar með kjúklingakryddi (arabískt frá pottagöldrum er gott), skornir í þær vasar og sneiðum af osti stungið inn í.
Bringurnar brúnaðar á pönnu, settar í eldfastmót og rauðu pestói smurt yfir.
Grænmetið svissað á pönnu og sett ofan á bringurnar.
Slatta af rjóma hellt meðfram bringunum og bakað í ofni á 180°c í 30-40 mín.
Borið fram með hrísgrjónum og salati.
fela aftur
Mánudagur 10. ágúst 2009
Góður kjúklingaréttur
- 4-6 bringur
- Olive olía til steikingar
- 4-6 hvítlauksrif
- Svartur pipar
- 200-300 gr ferskir sveppir
- 1 stk. Kjúklingakraft
- 150 gr. Sólþurrkaðir Tómatar (mér finnst gott að hakka þá í mixer)
- 1 peli af rjóma.
Meira um: "Góður kjúklingaréttur"
Kjúkl. Skorinn og steiktur ásamt hvítlauk og svörtum pipar. Sveppir steiktir sér á pönnu og svo allt sett saman, sólþ. Tómatar ásamt smá af leginum , kj.ten og Rjóma sett útí og látið malla í minnst 20 mín.. Borið framm með fersku sallati, Hrísgrjónum og brauði.
fela aftur
Miðvikudagur 5. ágúst 2009
Kjúklinur m/ólífum og salthnetum
- 2 dollur Sacla Paté di Pomodori pestó (Sólþurrkaðir tómatar) fæst í Bónus
- 1 dl Hlynsíróp (notum Steve's Maple Syrup, en allt Maple gengur)
- Svartar Ólífur, 1 lúka af skornum í þrjá bita eftir smekk
- Hvítlauksgeirar, við höfum notað geira í olíu, 5-6 eftir smekk
- Salthnetur, 1 lúka er fínt
- 4 bringur skornar í bita
Meira um: "Kjúklinur m/ólífum og salthnetum"
Hrærir öllu saman í eldfast mót, setur hráan kjúklingin í bitum ofan í og blandar honum í löginn og hendir öllu saman inn í ofn og bakar við 200 gráður í 40-45 mínútur
fela aftur
Japanskur kjúllaréttur
- 4 bringur, skinnlausar.
- 1/2 bolli olía
- 1/4 bolli Balsamic edik
- 2 msk sykur
- 2 msk soyasósa
- 1 poki núðlur (instant súpunúðlur) - ekki krydd.
- möndluflögur (3-4 matskeiðar) eða eftir smekk
- sesamfræ (1-2 matskeiðar) eða eftir smekk
- Sweet hot chillisósu
- Salatpoki
- kirsuberjatómatar
- 1 þroskað mangó
- 1 paprika
Meira um: "Japanskur kjúllaréttur"
olían, balsamic,sykurinn og soyað soðið saman í ca 1 mín og hrært í annað slagið meðan kólnar (ef ekki hrært skilur sósan sig)
Núðlur, möndlur og sesamfræ ristuð á pönnu, núðlurnar brotnar í smáa bita og þær ristaðar fyrst því þær taka lengstan tíma síðan möndlurnar og fræin. Kælt. (ath. núðlurnar eiga að vera stökkar).
Kjúklingabringur skornar í ræmur og snöggsteiktar í olíu gott að krydda með kjúllakryddi til dæmis. Sweet hot chillisósu hellt yfir og látið malla í smá stund.
Allt sett í fat eða mót. Fyrst salatið, síðan núðlugumsið ofan á svo balsamic blandan yfir og að síðustu er heitum kjúklingabringuræmunum dreift yfir.
fela aftur
Fimmtudagur 11. desember 2008
Camenbert Bringur í rjómasósu
- 4 Kjúklingabringur
- Ferskir sveppir u.þ.b. einn kassi
- camenbertostur
- rjómi
Búið til vasa úr bringunni og setjið ostinn inní.Skerið sveppina niður.Kryddið kjúklinginn með season all. Hitið pönnuna vel og steikið þannig að hann verði fallega brúnn . Steikið sveppina og setjið með kjúklingnum. Hellið síðan rjómanum yfir og látið krauma þar til tilbúið.
Einnig má bragðbæta bringurnar með því að vefja beikoni utan um þær.
Austurlenskur kjúklingaréttur
- 300 gr Kjúlla bringur
- 2 msk. sojasósa
- 25 gr smjör til steikingar
- 1 meðalstór gulrót
- 125 gr broccoli
- 125 gr agúrka
- 2-3 blaðsellerístilkar
- 1/2 dl sojasósa
- 1-2 tsk. hunang
- Sítrónusafi
Meira um: "Austurlenskur kjúklingaréttur"
Fjarlægið skinn og bein (ef eru) af kjúklingabringunum og skerið kjötið í strimla. Steikið kjötið í olíu á stórri pönnu eða wok-pönnu. Snúið kjötinu oft á meðan á steikingu stendur og dreypið á það sojasósu. Takið kjötið af pönnunni.
Skerið grænmetið í jafnstóra strimla. Steikið grænmetið í smjöri á pönnunni í þessari röð: gulrætur fyrst, þá kemur blaðsellerí, því næst broccoli og síðast gulrætur.
Bætið steiktum kjúklingabitum saman við grænmetið á pönnunni og hitið vel. Bragðbætið með sojasósu og hunangi eða púðursykri.
Kreistið að lokum sítrónusafa yfir réttinn. Þetta er svo borið fram með hrísgrjónum.
fela aftur
Sítrónukjúklingur
- 800 g kjúklingabitar
- 3 sítrónur
- 2 msk ólífuolía
- 2 msk glært hunang
- 2 hvítlauksrif
- 4 stilkar ferskt rósmarín eða 2 tsk þurrkað
- 50 g svartar ólífur
- 2 1/2 boli hrísgrjón (jasmín eða hýðishrísgrjón)
Meira um: "Sítrónukjúklingur"
Kreistið safa úr tveimur sítrónum í stóran pott og hitið. Bætið ólífuolíu og hunangi saman við. Saxið hvítlauksrifin og mýkið í pottinum ásamt rósmaríngreinunum.
Hitið ofninn í 200°c. Steikið kjúklingabitana í blöndunni og snúið þeim nokkrum sinnum.
Raðið bitunum að því loknu í eldfast mót. Skerið eina sítrónu í báta og raðið í fatið í kringum bitana ásamt ólífum. Bakið í 200°c heitum ofni í 45-50 mínútur. Ausið vökvanum af og til yfir réttinn á meðan hann bakast.
Berið fram með jasmín- eða hýðishrísgrjónum og fersku salati ásamt brauði.
fela aftur
Miðvikudagur 10. desember 2008
Kjúklingur vafinn í parmaskinku með fetaostsfyllingu
- 4 stk meðalstórar kjúklingabringur
- 4 sneiðar parmaskinka
Fylling:
- 4 msk ristaðar furuhnetur
- 4 msk Dalafeta með sólþurrkuðum tómötum
- 125 gr rjómaostur með svörtum pipar
Aðferð:
Skerið vasa í kjúklingabringurnar og setjið fyllinguna inn í teskeið. Vefjið parmaskinkunni utan um og setjið í eldfast mót smurt með olíu. Steikið í ofni við 170° í 30-40 mín fer eftir stærð bringnanna
Fimmtudagur 4. desember 2008
Steiktur kjúklingur (Jamie Oliver)
- 300 g sellerírót
- 300 g kartöflur,
- 125 g smjör
- 4 msk ólífuolía
- 6 stk heilar tímíangreinar
- 5 stk sneiðar parmaskinka (má nota beikon)
- 1 stk hvítlauksrif
- 1 stk hvítlaukur
- 1 stk sítróna
- 1 stk stór kjúklingur
- ½ stk búnt tímían
- salt og nýmalaður svartur pipar
Meira um: "Steiktur kjúklingur (Jamie Oliver)"
Aðferð
1. Saxið hvítlauksrifið, skerið parmaskinkuna (beikonið) í litla bita, flysjið þetta gula af sítrónunni og saxið. Rífið timíanið af stilkunum og saxið. Blandið þessu öllu saman í skál og kreistið smjörið saman við. Saltið og piprið.
2. Losið varlega um bringuhúðina á kjúklingnum, passið að hún rifni ekki.
3. Komið meirihluta kryddsmjörsins undir húðina og jafnið því á bringuna.
4. Skerið í lærin niður að beini tvo skurði, ef vill. Þannig verður kjötið mjög mikið eldað á þessu svæði og mjög ljúffengt að margra mati. Nuddið kryddsmjöri í skurðina og á lærin.
5. Sneiðið sítrónuna og komið sneiðunum fyrir í kviðarholinu.
6. Skerið sellerírótina og kartöflurnar í bita. Blandið þeim saman í skál ásamt heilum hvítlauksrifum, timíangreinum og ólífuolíu. Saltið og piprið og komið þessu fyrir í kringum kjúklinginn í ofnskúffunni. Bætið endilega við fersku grænmeti s.s gulrótum, rófum o.þ.h,
7. Steikið á 220°C í 40-45 mín. fyrir hvert kíló. Látið fuglinn standa í 10-15 mín. áður en hann er skorinn.
fela aftur
Fylltur kjúklingur á ítalska vísu
- 200 g spínat
- 60 g hvítlaukssmjör
- 50 g smjör
- ½ dl rjómi
- 7 stk stórar kartöflur
- 4 stk kjúklingabringur
- 1 stk sítróna
- basil (1 búnt)
- Parmaskinka 4 góðar sneiðar
- salt og pipar
Meira um: "Fylltur kjúklingur á ítalska vísu"
Kjúklingabringurnar eru fylltar með hvítlaukssmjörinu og Parmaskinkunni. Brúnaðar á pönnu ca. 1 mín hvor hlið, síðan bakaðar í ofni í 10 mín við 180 gráður.
Spínatið er steikt á pönnu með smá smjöri, salti og pipar. Kartöflustappan er búin til úr soðnum kartöflunum, smjöri, rjóma, salti, pipar og basil eftir smekk. Gott er að kreista sítrónu yfir kjúklingin áður en hann er borinn fram.
fela aftur
Ritz-kjúklingaréttur
- 1 ferskur Kjúlli (þyngd fer eftir fjölda og aldri þeirra sem borða)
- 1 Ritz-kexpakki (eða eftir smekk)
- Smjör
- Sterkur ostur
Meira um: "Ritz-kjúklingaréttur"
Kjúklingurinn er hlutaður niður (eða keyptur í bitum). Ritz-kexið sett í poka og mulið vel með kökukefli. Smjörið brætt í potti og kjúklingabitunum velt upp úr því. Síðan er þeim velt upp úr kexmulningnum.
Bitarnir því næst settir í eldfast mót og mikið af rifnum sterkum osti dreift yfir. Þetta er bakað í 50 mínútur við 200 gr.C og er borið fram með hrísgrjónum og sojasósu eða karrysósu með laukbitum og fersku salati.
fela aftur
Kjúklingur handavinnukennarans
- Kjúklingabringur
- Rjómaostur m .sólþurrkuðum tómötum.
- Pestó krukka m. sólþurrkuðum tómötum
- 1 peli rjómi
Meira um: "Kjúklingur handavinnukennarans"
Ég hef stundum skorið smá vasa á bringurnar og sett rjómaost með sólþurkkuðum tómötum inní og lokað fyrir með tannstöngli. Skelli svo á þær pestó með sólþurrkuðum tómötum og set í eldfast mót. Set einn pela af rjóma í pott ásamt smá rjómaostinum og læt það bráðna saman og helli yfir allar bringurnar. Svo set ég þetta í ofninn í svona 30-40 mín á 200°C, passa að bringurnar séu eldaðar í gegn. Vona að þetta komi að einhverjum
fela aftur
Brjálæðislega auðveldur kjúlli
- 2½ dl rjómi
- 1 msk kálfakraftur frá Fond
- 1 msk Dijon sinnep
- 2 tsk estragoni, þurrkað
- 2 tsk bernesessens
- 4 stk kjúklingabringur án skinns
Meira um: "Brjálæðislega auðveldur kjúlli"
Matreiðsla
Steikið bringurnar á pönnu saltið og piprið eftir smekk. Takið bringurnar af pönnunni hellið rjómanum út á pönnuna og látið restina af hráefninu út í. Setjið síðan bringurnar aftur út á sósuna á pönnunni og látið sjóða við vægan hita uns kjúklingurinn er fulleldaður. Nammi namm!
Þetta er borið fram með fersku salati og hrísgrjónum.
fela aftur
Beikonvafðar kjúklingabringur
- Kjúklingabringur
- Beikonbréf
Kjúklingabringur skornar langsum í ca. 3 bita. Beikoni vafið utan um, gott að tylla beikoninu með tannstöngli. Grillað á útigrillinu. Alveg hægt að steikja líka eða setja í eldfastmót inn í ofn.
Sósa
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- Glassera þetta á pönnu.
- 2 dl tómatsósa
- 1 dl HP sósa
- sojasósa
- svartur pipar
- 2 msk Worchestersósa
- ca. 2 dl appelsínusafi
- 1 msk edik.
Allt sett út á pönnuna (pottinn) og hrært saman.
Borið fram með hverju sem er.
Mango-kjúklingur
- 5-6 bringur
- salt/pipar
- 4 rif hvítlaukur (má sleppa fyrir Bubba)
- 1 peli rjómi
- ½ krukka Mangochutney
- 1 msk karrý
Meira um: "Mango-kjúklingur"
Kjuklingurinn skorinn niður í litla bita, kryddaður með salt og pipar, steiktur á pönnu. Þegar kjúklingurinn er alveg að verða steiktur er lauknum og öllu dótinu hellt út á og hrært saman. Látið malla í svona 15 mín. Borið fram með með hrísgrjónum og brauði.
fela aftur
Mánudagur 21. apríl 2008
Kjúklingur í karmellusósu.
4-5 kjúklingabringur skornar í tvennt, kryddaðar með kjúklingakryddi og lokaðar á pönnu - smá vatn sett út í, lok yfir og soðið í ca. 10 mín.
1 pk sveppir, gróft skornir og steiktir á pönnu.
Bringurnar settar í eldfast fat, sveppirnir yfir og síðan sósan yfir allt og sett í ofn í ca 30-40 mín við 190 - 200 °C Gera má ráð fyrir 1 bringu á mann og e.t.v. meira ef um matargöt er að ræða - því þetta er mikið lostæti.
Sósan: (allt soðið saman í potti við vægan hita)
- 1 pk matreiðslurjómi
- 1/3 flaska Barbeque-Sósa (Brown Sugar)
- 1 dós smurostur m/sólþurrkuðum tómötum
- 4 msk púðusykur
- 4 msk soya-sósa
- sósujafnari til að þykkja
Meira um: "Kjúklingur í karmellusósu."
Borið fram með:
2 sætar kartöflur stórar - afhýddar og skornar í frekar þykka báta
3 bökunarkartöflur skornar í báta (ekki afhýða)
1 rauðlaukur skorinn gróft
Smá olía yfir (nú eða hvítvín ef þið eruð ekki búin úr
flöskunni)
Gróft salt og pipar
Bakað í ofni við 200 °C í 40-50 mín.
Fékk þessa senda einhverntíman í email.
fela aftur
Sunnudagur 20. apríl 2008
Grillaðar kjúklingabringur
(Fyrir 3)
Hráefni:
- 3 kjúklingabringur
- 4 bollar vatn
- 1 msk salt
- 1/2 tsk Cayenne pipar
- 1 tsk kóríander
- 1/2 tsk kanill
Meira um: "Grillaðar kjúklingabringur"
Blandið saltinu út í vatnið og setjið í lokað ílát.
Látið kjúklingabringurnar marinera þar í 3-6 tíma.
Skolið kjúklinginn og þerrið eftir saltvatnsbaðið.
Blandið saman öllum kryddunum og veltið kjúklingabringunum upp úr blöndunni.
Grillið.
Berið fram með Kolagrilluðum paprikum (frá Sacla), bulgum og góðu brauði.
fela aftur
Föstudagur 13. júlí 2007
Kjúklinga Quesedilla
- 1,5 bollar niðurskorinn kjúklingur (steiktur)
- 8 stórar tortilla kökur
- 2 bollar niðurrifinn ostur
- Salsasósa
- Sýrður rjómi
- 1 bolli saxaður grænn chilli (valkvætt)
Meira um: "Kjúklinga Quesedilla"
Hitið ofninn í 180°c. Setjið olíu á aðra hlið fjögurra af tortillakökunum.
Setjið kökurnar á smjörpappírsklædda bökunarplötu með olíu hliðina niður.
Dreifið kjúkling og osti (og chilli ef þið notið hann) yfir kökurnar. Setjið hinar 4 tortilla kökurnar yfir og smyrjið með olíu.
Bakið þar til osturinn hefur bráðnað. Skerið í þríhyrninga og berið fram með salsasósu og sýrðum rjóma.
fela aftur
Miðvikudagur 24. janúar 2007
Fylltar kjúklingabringur
- 4 kjúklingabringur
- 1/2 poki spínat, eða um 150g
- 2 msk. góð ólífuolía
- 4 msk. Dukkah
- 5 msk. fetaostur í olíu
Steikið spínatið á pönnu í örlítilli olíu þar til það er mjúkt. Kreistið úr því mesta safann og blandið fetaosti og dukkah saman við (stappið til að þetta verði svolítið maukkent). Skerið vasa á bringurnar og setjið fyllinguna í. Gott er að loka sárinu með tannstönglum svo fyllingin leki ekki út.
Penslið bringurnar með olíu af fetaostinum og stráið örlitlu salti yfir (við slepptum þessu og það kom alls ekki að sök).
Setjið bringurnar í 180c heitan ofn og bakið í 20-25 mín., fer eftir stærð.
Gott er að setja 2-3 fetaostbita og strá dukkah yfir hverja bringu í lokin á eldunartímanum og setja grillið á í smá stund (slepptum þessu líka, en ég prufa þetta sko næst).
Berið fram með risotto eða ofnbökuðum kartöflubátum (við notuðum kartöflubáta og krydduðum þá með nutmeg, karrý og salti, það var 'bjúttifúll' :-)
Fimmtudagur 18. janúar 2007
Tandoori kjúklingur
- 1 kjúklingur brytjaður
- 1/2 ltr matreiðslurjómi
Sósa
- 5 dl tómatsósa
- 2-3 msk tandoori masala
- 1 1/2 tsk karrí
- 1 1/2 tsk pipar
- 1 tsk salt
Meira um: "Tandoori kjúklingur"
Allt hrært saman og helmingnum smurt á kjúklingabitana, setja í eldfast mót og inn í ofn í 40 mínútur á 200°C. Hræra rjómanum saman við hinn helminginn af sósunni, hella yfir kjúklinginn og hafa áfram í 30 mínútur, ausa nokkrum sinnum yfir. Borið fram með hrísgrjónum og salati.
fela aftur
Laugardagur 15. júlí 2006
Kjúklinga og baunasalat
- 300 g kjúklingakjöt
- 1 dl rauðar nýrnabaunir
- 1 dl hvítar baunir
- 1 ananas (ferskur)
- 1 búnt salat eftir smekk
- 1/2 búnt steinselja
- 1 rauðlaukur
- 1/2 dl hvítvínsedik
- 1 tsk natrímskert salt
- 1 tsk nýmalaður pipar
Meira um: "Kjúklinga og baunasalat"
Leggið baunirnar í bleyti í kalt vatn í a.m.k 12 klst. (ath. hvora tegund fyrir sig.)
Hellið vatninu af baununum og sjóðið þær skv. leiðbeiningum á pakka (hvora tegund fyrir sig). Bætið örlitlu salti út í vatnið. Kælið.
Skerið soðið eða grillað kjúklinga- eða kalkúnakjötið í strimla. Afhýðið ananasinn og skerð í teninga.
Saltið og piprið hvítvínsedikið. Saxið rauðlaukinn smátt og hellið edikblðndunni yfir.
Skolið salatið og rífið niður í skál ásamt kjúklingastrimlum og ananas. Blandið kældum baununum saman við. Hellið rauðlauksedikinu og grófsaxaðri steinselju yfir.
Berið fram með grófu brauði.
isfugl.is
fela aftur
Sunnudagur 9. júlí 2006
kjúklingasalat m. melónu og valhnetum
- 1/2 hunangsmelóna
- 2 bollar grillaður kjúklingur
- 1/2 bolli rauðlaukur, smátt saxaður
- 1/3-1/2 bolli vinaigrette
- 6 bollar blandað salat og baby spínat
- 1/2 bolli valhnetur, gróft saxaðar
Meira um: "kjúklingasalat m. melónu og valhnetum"
Skerið melónuna í bita og setjið í stóra skál. Blandið kjúklingi og lauk saman við. Dreypið vinaigrette yfir. Lokið skálinni og setjið í ísskáp í a.m.k. 15 mín. Bætið þá salati og valhnetum við, blandið vel og berið fram. Ef vill má setja meira vinaigrette saman við.
tilefni.is
fela aftur
Fimmtudagur 15. júní 2006
Tælenskur kjúklingapottréttur
- 1/2 stk laukur
- 3 stk gulrætur
- 1/2 stk sætar kartöflur (teningar)
- 800 g úrbeinaðar kjúklingabringur
- 2 dl kókosmjólk
- 2 msk sweet chilli-sósa
- 1 msk soya sósa
- 2 tsk túrmerik
- 1 tsk broddkúmen
- cayennepipar
- ferskur kóriander (smátt saxaður)
- extra virgin olía til steikingar
- maldonsalt og nýmulinn pipar
Meira um: "Tælenskur kjúklingapottréttur"
Kjúklingabringurnar eru skornar í þunna strimla og steiktar á pönnu, kryddað með salti og pipar. Þær eru svo lagðar til hliðar á meðan sósan er löguð.
Smátt skorinn laukurinn, sætar kartöflur í teningum, ásamt gulrótum í teningum er svissað í olíu og kúrkúma kryddi, á pönnu þar til grænmetið er orðið meyrt. þá er kókosmjólkinni hellt saman við og látið ná suðu. Sósan er svo krydduð til með sweet chilli sósunni, tamari sósunni, broddkúmeni, cayennepipar og salti og pipar. Sósan þarf ekki að sjóða nema litla stund áður en kjúklingastrimlunum er blandað saman við en þá er rétturinn tilbúinn. Þegar rétturinn er borinn fram er nauðsynlegt að skreyta með ferskum nýrifnum kóriander. Bon appetit .
fela aftur
Miðvikudagur 9. nóvember 2005
Kjúklingalasagna
Uppskrift fyrirr 6
- 500 gr. brytjaður kjúklingur
- 1 dós (16 oz) niðursoðnir tómatar
- 1 dós (6 oz) tómat púrra
- 1 ½ msk söxuð steinselja
- 1 ½ tsk salt
- 1 tsk basil
- u.þ.b. 200 gr Lasagna plötur
- 2 dósir kotasæla, hrein
- 1 egg, slegið saman
- ¼ tsk pipar
- 180 gr Mozzarella ostur
- ¼ bolli Parmesan ostur
Meira um: "Kjúklingalasagna"
Matreiðsla
Setjið kjúklinginn á meðalheita pönnu og hrærið af og til í 6 mínútur. Setjið niðursoðnu tómatana, tómatpúrruna, ½ tsk af steinseljunni og 1 tsk af saltinu í blandara og hrærið vel saman. Hrærið blöndunni saman við kjúklinginn á pönnunni og látið malla í u.þ.b. 20 mínútur. Blandið saman í skál afganginum af steinseljunni, afganginum af saltinu, kotasælunni, egginu og pipar.
Setjið nú allt í eldfast mót. Fyrst kjúklinginn, þá kotasælublönduna , mozzarella ost, og síðan lasagna plöturnar, aftur kjúkling og síðan parmesan ost. (eða blandið eins og hverjum þykir best)
Mjög gott er að geyma í ísskáp yfir nótt áður en eldað en ekki nauðsynlegt. Setjið í 190° heitan ofn og eldið í 30 mínútur. Látið standa í 10 mínútur áður en borið fram.
fela aftur
Miðvikudagur 19. október 2005
Kjúlli með appelsínum og möndlum
Uppskrift fyrir fjóra:
- 4 kjúklingabringur
- 50 gr. möndluflögur
- 3 appelsínur
- 2 msk. strásykur
- Paprikuduft
- Ólífuolía
- Salt og nýmalaður svartur pipar
Hitið ólífuolíuna á pönnu, bætið síðan möndlunum út í og steikið þar til þær verða gylltar að lit. Fjarlægið af pönnunni og leggið til hliðar. Kryddið kjúklinginn eftir smekk með salti, pipar og paprikudufti. Setjið síðan út á pönnuna og steikið á báðum hliðum. Setjið lok á pönnuna og látið malla í 30 mín., eða þar til kjúklingurinn er tilbúinn. Á meðan, kreistið safann úr tveimur appelsínum. Skerið þá þriðju í bita, passið að taka alla steina úr. Færið kjúklinginn af pönnunni og í eldfast mót sem hefur verið hitað upp. Setjið appelsínusafann, appelsínubitana og sykurinn út á pönnuna og sjóðið í 2 mín. Hellið blöndunni síðan yfir kjúklinginn. Að lokum stráið möndlunum yfir kjúklinginn og berið fram strax.
Sunnudagur 11. september 2005
Piri Piri Kjúklingur
Þetta er einginn sérstök uppskrift en ég hef svona spilað eftir eyranu og eftir 3-4 ára reynslu held að eg hafi fundið upp bestu leiðina.
- kjúklingur
- Piri piri krydd frá Pottagöldrum
- Ein sítrona
- Olivuolia
Hafa bara nóg kjukling. Passa að nota ekki of mikið af piri piriinu. Taka kjuklinginn og skera hann í litla bita taka kryddið og setja sma á kjuklinginn hafa það mjög litið setja bara í teskeð first og nudda því vel a kjötið þangað til hann verður svona pinu rauður og lata þá liggja í smá stund. Hita pönnuna setja bara litið of oliu. Steikja kjuklinginn í svona 5 min eða þangað til að það se hægt að yta honum í sundur auðveldlega. Gott er að hafa hann í tortillas eða með salati og syrðum rjóma og guomole
Mánudagur 5. september 2005
Kjúklingur með Doritos
- 4 kjúklingabringur
- Ostasósa (mexíkönsk)
- Salsa sósa
- Ostur
- 1 poki Doritos snakk
Kjúklingabringurnar eru skornar í bita, steiktar á pönnu og kryddaðar vel eftir smekk. Doritos snakk (aðeins mulið)er sett í botn á eldföstu móti. Ostasósan þar ofaná og síðan Salsa sósan. Síðan eru steiktar kjúklingabringurnar settar þar ofaná og síðan ostur.
Sett inn í ofn í 15-20 mín á ca 200C
Meira um: "Kjúklingur með Doritos"
Meðlæti
Hrísgrjón, salat og svo er ómissandi að hafa sýrðan rjóma og quacamole.
fela aftur
Miðvikudagur 27. apríl 2005
BBQ kjúlli
2 kjúklingar í bitum
sósa
- 2 dl Hunts grillsósa
- 1 dl soyjasósa
- 1 dl aprikósumarmelaði
- 100 gr púðursykur
- 50 gr smjör
Þetta er allt saman brætt saman í potti. Kjúklingi raðað í eldfast mót og sósunni hellt yfir. Haft í ofni í 40 -60 mín. á ca. 200 gráðum.
Mánudagur 11. apríl 2005
Pestó-kjúklingur
2 bringur
3-4 tómatar
4 msk grænt pestó
2 msk olía
fetaostur
salt og pipar
Pestó, olía salt og pipar hrært saman í eldföstu móti. Kjúllanum velt upp úr því, tómötum raðað ofan á í sneiðum og fetaostur muldur yfir. Inn í ofn í ca. 45 mín á 200.
Mango-kjúklingur
5-6 bringur
salt/pipar
4 rif hvítlaukur
1 peli rjómi
½ krukka Mangochutney
1 msk karrí
Kjuklingurinn skorinn niður í litla bita, kryddaður með salt og pipar, steiktur á pönnu. Þegar kjúklingurinn er alveg að verða steiktur er lauknum og öllu dótinu hellt út á og hrært saman. Látið malla í svona 15 mín. Borið fram með með hrísgrjónum og brauði.
Fimmtudagur 13. nóvember 2003
Agadir kjúklingur
fyrir 4-6
- 2 kjúklingar (12-20 bitar)
- 1/2 bolli rauðvínsedik
- 1/2 bolli Oregano
- 1/2 bolli púðursykur
- 1/2 bolli vín e. smekk (má sleppa)
- 250 ml græn ólífuolía
- 250 gr steinlausar sveskjur
- 1 dós grænar ólífur (safi líka)
- 1 dós kapers (safi líka)
- 10-12 hvítlauksrif (skera í þrennt)
Hér er á ferðinni ótrúlega góður kjúklingaréttur. Namminamm...
Ég hef ekki haft tækifæri til að elda þetta sjálfur, en þetta var boðið uppá í vinnuni þar sem starfsmenn fá stundum að vera gestakokkar. En svona er farið að:
Blandið saman vökvanum í poka eða steikarpott. Hrærið púðursykrinum og oregano saman við. Bætið ólífum, sveskjum, kapers og hvítlauk út í. Hrærið aðeins í og setjið kjúklinginn í löginn
Látið marinerast í kæli í a.m.k. 6 klst. Bakið við 200° í mest 1 klst.
Borið fram með góðu rauðvíni og grófu brauði (t.d. ólífubrauði).
Miðvikudagur 6. ágúst 2003
Sinnepslegnar kjúklingabringur
Fyrir 4
- 4 vænar bringur
- Dijonsinnep
- Matarolía
- Muldar hnetur
Ég elska einfalda rétti. Og þessi er engin undantekning.
Fyrsta vers er að hræra c.a. 1 matskeið af matarolíunni út í eina krukku af Dijon sinnepi. Og bringunum velt uppúr, eða smurðar með því. Gott að gera þetta daginn áður og láta liggja í. Síðan má strá muldu hnetunum yfir alla bitana og grilla þá. Ekki flókið :o) en mjög gott.
Föstudagur 1. ágúst 2003
Kjúklingabringur með gráðosti
Fyrir 4
- 4 úrbeinaðar kjúklingabringur
- 50 g rjómaostur
- 50 g gráðostur
- ljóst brauðrasp
- 2 egg
- Salt, pipar, hvítlaukur og olía til steikingar.
Fletjið úrbeinaðar kjúklingabringurnar þunnt með buffhamri. Blandið saman rjómaostinum og gráðostinum. Setjið 25 grömm af ostablöndunni á hverja kjúklingabringu, brjótið þétt saman um miðju og festið með tannstönglum. Þeir sem eru lagnir með hníf geta skorið rauf á kjúklingabringurnar og sett ostinn þar inn í. Hrærið eggin og setjið kryddið út í. Veltið bringunum upp úr eggjum og raspi. Steikið í olíunni þangað til að þær eru fallega brúnar beggja megin. Berið fram með kryddsmjöri, hrísgrjónum og fersku salati.
Þetta er sérréttur á la Erla og ég myndi helst vilja borða þetta daglega.