Laugardagur 19. desember 2009
Kryddaðar hafrakökur
- 185 gr. smjör
- 155 gr. Dökkur púðursykur
- nokkrir vanilludropar
- 1 egg
- 60 gr sjálflyftandi hveiti
- saltklípa
- 1/2 tsk. natrón
- 3 tsk kanill
- 250 gr gróft haframjöl (valsaðir hafrar)
- Flórsykur (til að sigta yfir)
Þriðjudagur 1. desember 2009
Kornflakes kökur
- 200 gr hveiti 200 gr smjörlíki
- 150 gr sykur 150 gr púðursykur.
- 1-2 egg 1 tsk. natron
- 4 dl kornflex ½ tsk salt.
- 150 gr haframjöl .
- súkkulaðibitar
- Vanilla
Miðvikudagur 11. nóvember 2009
Tobleronekökur
- 125 gr Toblerone
- 100 gr Smjör
- 3 Egg
- 100 gr Flórsykur
- 50 gr Hveiti
Þriðjudagur 10. nóvember 2009
Söru Bernharðskökur
- 300 gr malaðar möndlur
- 6 dl flórsykur
- 5 stífþeyttar eggjahvítur
Smjörkrem
- 1½ dl sykur og 1½ dl vatn er soðið saman í sýróp, kælt aðeins.
- 5 þeyttar eggjarauður
- 300 gr smjör
- 2 msk kakó
- 2 ½ tsk kaffiduft
Mánudagur 9. nóvember 2009
Salthnetutoppar
- 4 stífþeyttar eggjahvítur
- 2 dl sykur
- 1 dl kókosmjöl
- 1 dl mulið kornflex
- 1 dl brytjað súkkulaði
- 1 dl brytjaðar salthnetur
- ½ tsk lyftiduft
Mánudagur 9. febrúar 2009
Vanilluhringir Þórhildar ömmu
- 500 gr. Hveiti
- 375 gr. Smjörlíki
- 250 gr. Sykur
- 1 egg
- 1/4 tsk. Hjartasalt
- 1/2 tsk. Vanilludropar
Mánudagur 15. desember 2008
Súkkulaðihrískökur
- 7 eggjahvítur
- 600 gr sykur
- 200 g rice chrispies
- 100 g súkkulaðispænir
- Súkkulaði til að dýfa í
þeytið saman eggjahvítur og sykur blandið rice chrispies og súkkulaðispónunum útí hræruna með sleif. Sprautið litlum toppum á plötuna og bakið við 190°C í 6-8 mín kælið og dífið síðan í súkkulaði.
Þessa uppskrift sendi Jóhannes Jörundsson á facebook
Bounty toppar
- 50 gr smjörlíki
- 1,5 dl sykur
- 2 egg
- 4 dl kókosmjöl
- 2 tsk kartöflumjöl
- 1 dl hveiti
- 4 pakkar bounty súkkulaði
Fimmtudagur 11. desember 2008
Sörur (Andrea)
Botnar:
- 600 gr. Möndlur
- 500 gr. Flórsykur
- 11 – 12 stk. Eggjahvítur
Krem:
- 11 – 12 stk. Eggjarauður
- 2 ¼ dl. Strásykur
- 2 ¼ dl. Vatn
- 500 gr. Smjör (mjúkt)
- 3 msk. Kakóduft
- 1 msk. Neskaffi
Amerískar súkkulaðibitakökur I
- 2,5 bollar hveiti
- 1 tesk. matarsódi
- 1. tesk salt
- 1 bolli smjör/smjölíki
- 3/4 bollar sykur
- 3/4 bollar púðursykur
- 1 tesk vanilludropar
- 2 egg
- 2 bollar súkkulaðibitar, best að nota eitthvað ekta súkkulaði...
- 1 bolli heslihnetur eða aðrar hnetur (má sleppa)
Sunnudagur 7. desember 2008
Sörur
- 600 gr Hýðismöndlur
- 500 gr flórsykur
- 10 Eggjahvítur
- 2 ¼ dl vatn
- 2 ¼ dl sykur
- 10 eggjarauður
- 500 gr smjör
- 3 tsk kakó
- 1 tsk skyndikaffiduft
- 8 plötur rautt opal hjúpsúkkulaði
Laugardagur 6. desember 2008
Hálfmánar
- 500 g hveiti
- 300 g smjörlíki
- 200 g sykur
- 2 egg
- 2 tsk. lyftiduft
- 2 tsk. hjartarsalt
- vanilludropar
- rabarbarasulta
Fimmtudagur 4. desember 2008
Lion bar kökur
- 100 gr Lion bar
- 100 gr saxað suðusúkkulaði
- 150 gr púðursykur
- 80 gr smjörlíki
- 1 egg
- 160 gr hveiti
- 1/4 tsk natron
- ½ tsk salt
- 1 tsk vanilludropar
Kornflexsmákökur
- 4 eggjahvítur
- 2 bollar púðursykur > stífþeytt.
- 4 bollar kornflex
- 2 bollar af kókosmjöli blandað saman við
- 100 gr af smáttsöxuðu suðusúkkulaði
- 1 tsk af vanilludropum
Sett með teskeið á bökunarpappirsklædda plötu í smá toppa. Bakað við 150 gráðu hita í ca 15 mín.
Miðvikudagur 3. desember 2008
Lakkrístoppar
- 3 eggjahvítur
- 200 gr. púðursykur
- 150 gr. rjómasúkkulaði
- 2 pokar súkkalaðihúðað lakkrískurl
Stífþeyta eggjahvítur og bæta sykri úti og þeyta áfram þar til sykur er alveg horfin.
Bæta þá söxuðu súkkulaði og lakkrískurli útí (hræra með sleif).
Sett með teskeið á plötu með bökunarpappír og bakað við 175 gráður í c.a 12-14 mín.
Sunnudagur 30. nóvember 2008
Minstrels smákökur
u.þ.b. 50 stykki
- 1 dl flórsykur
- 200 gr smjör
- 1 dl kartöflumjöl
- 4 dl hveiti
- 1 pakki Minstrels (225 gr)
1. Blandið saman flórsykri, smjöri, kartöflumjöli og hveiti og hnoðið.
2. Mótið litlar kúlur úr deiginu og raðið á bökunarplötu klædda bökunarpappír.
3. Setjið Minstrels á hverja köku og bakið í miðjum ofni við 175°c í u.þ.b. 8-10 mínútur.
Mánudagur 24. nóvember 2008
Engiferkökur
- 500 g púðursykur
- 250g smjörlíki
- 500 g hveiti
- 2 egg
- 1 tsk lyftiduft
- 1 tsk natron
- 1 tsk negull
- 1 tsk kanill
- 1 ½ tsk engifer
Hnoðað og búnar til kúlur, flattar aðeins með gaffli.
Fimmtudagur 20. nóvember 2008
Piparkökur
- 250 gr hveiti
- 2 tsk kanill
- 1 tsk negull
- 1 tsk engifer
- 1/8 tsk pipar
- 1 tsk matarsódi
- 90 gr smjörlíki
- 1 dl og 3 msk sykur
- 1/2 dl sýróp
- 1/2 dl mjólk
Öllu blandað saman - hnoðað - flatt út og mótaðar kökur.
Bakað í 175° í 10 mín.
Föstudagur 20. júlí 2007
Súkkulaði hlunkar
- 150 gr. smjörlíki
- 140 gr. púðursykur
- 140 gr. sykur
- 280 gr. hveiti
- 2 egg
- 5 gr. salt
- 5 gr. natron (matarsódi)
- 200 gr. súkkulaði
- 90 gr. hneturspænir (ef vill)
Þriðjudagur 28. febrúar 2006
Jógúrtkökur
- 3 egg
- 2 bollar sykur
- 220 gr smjörlíki
- 2,5 bollar hveiti
- 1 dós kaffijógúrt
- 1/2 tsk natron eða matarsódi
- vanilludropar
- 100 gr súkkulaðibitar
Egg og sykur er þeytt saman. Smjörlíkið og jógúrt bætt saman við, passa að ef smjörlíkið er brætt að það sé ekki of heitt þegar það er sett saman við og gott að setja fyrst saman smjörlíki og jógúrt og blanda því svo saman við eggin og sykurinn. Þá er þurrefnunum blandað saman við og að lokum súkkulaðibitunum. Sett í bréfform. Bakast í 20 mín. á 200°C
Sunnudagur 12. febrúar 2006
M og M muffins
12-14 stk.
- 3 dl hveiti
- 1 dl nýmjólk
- 1 dl sykur
- 50 g smjör, eða sjörlíki
- 45 g m&m
- 2 tsk lyftiduft
- 1 tsk vanilludropar
- 1 stk egg
Aðferð
Hitið ofninn í 175°C. Bræðið smjörlíkið við lágan hita. Saxið m&m´s. Blandið saman í hrærivélaskál sykri og bráðnu smjörlíki og hrærið vel. Setjið egg, mjólk og vanilludropa út í og hrærið. Sigtið hveiti og lyftiduft yfir, bætið söxuðu m&m´s við og blandið varlega.
Raðið pappírsmótum á bökunarplötu og hálffyllið þau með deigi. Bakið neðarlega í ofni í u.þ.b. 15 mín.
Miðvikudagur 1. febrúar 2006
Kanelsnúðar
Hér eru einfaldir kanelsnúðar.
- 1 kg hveiti
- 300 gr smjörlíki
- 300 gr sykur
- 2 egg
- 4 tsk lyftiduft
- 1 tsk hjartarsalt
- 2 1/2 dl mjólk
Laugardagur 7. janúar 2006
Amerískar súkkulaðibitakökur
- 1,25 bolli hveiti
- 1 tesk. matarsódi
- ½ tesk. salt
- ½ tesk. kanill
- 1 bolli smjör
- 3/4 bolli sykur
- 3/4 bolli púðursykur
- 2 egg
- 1 tesk. vanilludropar
- 3 bollar haframjöl
- 340 g. brytjað súkkulaði, best að nota gott ekta súkkulaði
Smjör, sykur, púðursykur, egg og vanilludropar er þeytt saman og þurrefnunum (nema haframjöli) bætt smám saman úti. Að lokum er haframjöli og súkkulaði blandað útí degið. Sett með teskeið á bökunarplötu (með pappír) þarf að hafa gott bil á milli því þær renna út. Bakað við 200 gráður í 8 mín, alls ekki lengur! þær eiga að vera mjúkar!
Fengið að "láni" hjá henni Rebekku
Sunnudagur 28. nóvember 2004
Piparkökur
-
2 Tsk Lyftiduft
500 Gr Hveiti
500 Gr Púðursykur
250 Gr Smjör
2 Stk Egg
2 Tsk Natron
2 “ Engifer
1 “ Negull
Allt hnoðað.
Bakað í miðjum ofni Ca. 15 mín við 190 °C
Föstudagur 22. ágúst 2003
Hinar frægu $250 súkkulaðismákökur
- 2 bollar smjör
- 4 bollar hveiti
- 2 tsk. matarsódi
- 2 bollar sykur
- 5 bollar haframjöl
- 24 oz. súkkulaðibitar
- 2 bollar púðursykur
- 1 tsk. salt
- 1 8oz. Hershey súkkulaði (rifið)
- 4 stk. egg
- 2 tsk. lyftiduft
- 3 bollar hakkaðar hnetur (að eigin vali)
- 2 tsk. vanilludropar/-sykur
Setjið haframjölið í blandara og blandið þannig að það verði að fínu púðri. Þeytið saman smjör, sykur og púðursykur þar til það verður létt og krem-kennt. Bætið eggi og vanilludropum út í; blandið hveiti, haframjöli, salti, lyftidufti og matarsóda saman við. Bætið súkkulaðibitunum, Hersheys súkkulaðinu og hnetunum út í. Hnoðið í kúlur og raðið á bökunarplötu með 5 cm. millibili.
Bakið í 10 mínútur við 375°F / 190°C. Þetta verða u.þ.b. 112 smákökur


