Sunnudagur 7. febrúar 2010
Tyrknesk baunasúpa
Baunasúpa frá Tyrklandi Fyrir 2-4
- 2 dl rauðar linsubaunir
- 1 meðalstór kartafla
- 2 gulrætur
- 1 laukur
- 2 grænmetisteningar
- 1 dós tómatpuré
- Mynta, þurrkuð eða fersk
- salt og pipar
Fimmtudagur 14. janúar 2010
Mexikósúpa
- 4-5 kjúklingabringur, skornar í teninga
- 1 lítill blómkálshaus og 1 lítill brokkolíhaus (hægt að kaupa saman í pakka í Bónus)
- 1 poki gulrætur
- 1 dósLite kókosmjólk
- 1 dós mild salsasósa
- 1 dós medium salsasósa
- 1 stór laukur
- 2 hvítlauksgeirar
- 1/2 dós tómatpúrra
- 1 1/2 líter vatn
Þriðjudagur 3. nóvember 2009
Kjúklingasúpa
- ca 3-4 kjúklingabringur (uþb 1 kg.)
- 2 stk rauðar paprikur
- 1 stk púrrulaukur
- 1 dl (+/-). Sweet chilli sause
- 4 stk. gulrætur
- 6 msk gular baunir
- 1 askja rjómaostur (400 gr)
- 6-7 dl kjúklingasoð (vatn + 1-2 teningar kjúklingakraftur)
- 1 peli rjómi
- 2 msk karrý
- 0,5- 1 tsk pipar
Fimmtudagur 22. október 2009
Grænmetissúpa
- 4 súputeningar
- ½ l vatn
- 3 msk ólífuolía
- ½ laukur
- 1-2 cm engifer
- ½ tsk. chili pipar eða chayenne
- 5 hvítlauksrif
- 1 pk grænmetissúpa
- 1 l vatn
- 1 ds. brytjaðir tómatar
- 200 g kjúklingakjöt
Þriðjudagur 7. júlí 2009
Æðisleg grænmetissúpa
- 3 dósir hakkaðir tómatar
- 1 rauð paprika
- 2 sætar kartöflur ( meðal stærð)
- 1 laukur
- 4 hvítlauksrif
- 1 lítill brokkolíhaus
- 7 gulrætur ( meðalstærð)
- krydd að vild
Fimmtudagur 29. janúar 2009
Góð og einföld grænmetissúpa
- 1 stk laukur
- 8 stk gulrætur
- 8 stk kartöflur
- 1/2 blómkálshaus
- 3 rif hvítlaukur
- 3 stk grænmetiskraftur
- 2 dósir niðursoðnir tómatar
- 1 dós tómatpúrra
- 3 dl pasta
Fimmtudagur 10. janúar 2008
Grænmetissúpa
- Sveppir
- Blaðlaukur
- Blómkál
- Gulrætur
- 100 gr hveiti
- 1 ½ l vatn eða soð
- 100 gr smjör
- Kjötkraftur
- 1 dl rjómi
Laugardagur 21. október 2006
Kjúklingasúpa með kartöflum og blómkáli
- Kjúklingaleggir með læri - 3 - 4 stk.
- 2 vænar bökunarkartöflur með hýði - bútaðar
- 1 lítið blómkálshöfuð - bútað
- 1 þumall engifer, saxað
- 6-12 feitir hvítlauksgeirar - saxaðir
- 2 vænir laukar - saxaðir
- 1 msk cumminfræ - steytt
- 1 msk corianderfræ - steytt
- 1/2 sítróna - safinn
- 2 lítrar vatn + soðteningar (kjúklinga)
- 1/2 lófi arborio hrísgrjón (til þykkingar)
- (Gamlir sveppir - 1-2 box - ef þú átt þá til)
- (Ferskur chili í því magni sem þér hentar - ef vill)
Sunnudagur 9. júlí 2006
Kjúklingabaunasúpa
- 2 blaðlaukar, skornir í helming, (á lengdina), skolaðir og skornir í smátt
- 1 dós ósaltaðar, niðursoðnar kjúklingabaunir (þyngd u.þ.b. 400 gr með vatninu, hellið vatninu af).
- 1-2 hvítlauksgeirar eða hvítlauksduft.
- 1 stór grænmetis teningur (kjúklingateningur fyrir þá sem það vilja).
- 6-8 dl sjóðandi vatn.
- 1 stór lúka nýrifinn parmesanostur.
- 1 msk ólífuolía og smá vatn
- pipar
- salt
Föstudagur 12. maí 2006
Sveppasúpa með blómkáli
- 2 bollar kjúklingasoð
- 1 bolli vatn
- 2 bollar þurrt og súrt hvítvín (El Coto Rioja er gott og ódýrt)
- 600 gr. blómkál
- 100 gr. laukur
- 200 gr. sveppir
- 4 hvítlauksrif
- rósmarín
- tímían
- 1/2 chillialdin, saxað
- smjör
- olía
Miðvikudagur 22. mars 2006
Frönsk hvítlaukssúpa
- 8 sneiðar af beikoni, skornar í bita
- 2 vænir laukar, þunnar sneiðar
- 20 hvítlauksrif, grófsöxuð
- 6 bollar af kjúklingasoði
- ½ bolli af þurru hvítvíni
- 1 lárviðarlauf
- ¼ tsk. af salti
- 4 ristaðar franskbrauðssneiðar
- 4 msk. af rifnum Parmesanosti
- 1 msk. af saxaðri steinselju
Steikið beikonið svo það verði stökkt og setjið í pott. Látið laukirnn og hvítlaukinn meyrna við lágan hita í 15 mínútur eða svo. Notið til þess u.þ.b. 1 matskeið af beikonfitunni.
Setjið laukinn og kjúklingasoðið, vínið, lárviðarlaufið og saltið í pottinn með beikoninu. Látið suðuna koma upp og síðan malla við lágan hita í hálftíma.Sskömmu áður en súpan er borin fram þarf að þekja hverja brauðsneið með einni matskeið af Parmesanosti og bregða brauðinu í ofn eða undir grill þar til osturinn bráðnar. Ausið súpunni í skálar eða á diska og setjið eina brauðsneið ofan á. Skreytið með steinselju.
Sunnudagur 5. mars 2006
Lúðusúpa
- 1 kg lúða
- 1 ltr. vatn
- 1 msk edik
- 2 lárviðarlauf
- salt
- 1 msk smjör
- 1 msk hveiti
- 50 g sveskjur
- safi úr 1/2 sítrónu
- 1 msk sykur
Þetta er bara hefðbundið allt í pott og baka síðan upp með smjöri og hveiti.
Mánudagur 27. febrúar 2006
Baunasúpa
Þessu er svolítið gamaldags.
- 2 l.vatn
- 1/2 kg. kjöt
- 200 gr. baunir
- 1 tesk. salt
- 1/2 kg. jarðepli
- 20 gr. laukur
- 1/2 kg. rófur
Baunirnar eru þvegnar og lagðar í volgt vatn yfir nóttina. Baunirnar og vatnið, sem þær hafa legið í, er látið í pott, hitað og hrært er í, þar til sýður. Froðan er tekin vel ofan af. Bezt er, að kjötið sé vel feitt, og má nota hvort heldur er saltað kjöt eða nýtt. Sé það saltkjöt, er það afvatnað og baunirnar ekki saltaðar. Bezt er svínakjöt í baunir. Laukurinn er flysjaður og látinn út í í heilu lagi ásamt kjötinu. Soðið í 1 klst. Jarðeplin og rófurnar eru flysjaðar og látnar út í. Gott er að hafa hvítkál. Soðið í hálftíma. Kjötið tekið upp á fat, og rófum og jarðeplum raðað utan um. Saltað að vild.
Ath. Séu baunirnar mjög grófar, er gott að nudda þeim í gegnum gatasigti og hita þær aftur.
"Lærið að matbúa"
Fimmtudagur 23. febrúar 2006
Ungversk gúllassúpa
- 500 gr smátt saxaður laukur
- 250 gr paprika (rauð eða græn)
- 100 gr gróf saxaðar gulrætur
- 2 l vatn
- 1 kg gúllaskjöt
- 50 gr tómatpurrée
- 150 gr niðursuðoðinn tómat í bitum
- 15 gr kúmen
- 15 gr coriander
- 2 stk smátt saxað hvítlauksrif
- kjötkraftur
- smjörbolla eða hveitijafningur
Kjötið er brúnað í potti, vatni hellt síðan yfir og soðið við vægan hita í ca. 1 ½ tíma. Laukurinn, paprikan, gulræturnar, tómatpurrée, kúmen, coriander og hvítlaukurinn er léttsteikt á pönnu við hægan hita og bætt útí pottinn. Allt sett saman, þykkt aðeins, bragðbætt eftir þörfum með kjötkrafti og síðan soðið í ½ tíma lengur.
Miðvikudagur 22. febrúar 2006
Saltkjöt og baunir
- 300 g gular baunir
- 2 l vatn
- 1 laukur
- 100 g beikon
- 1 tsk. tímían
- 1 lárviðarlauf
- nýmalaður pipar
- 1,5 kg saltkjöt
- 600 g gulrófur
- 300 g gulrætur
- 500 g kartöflur
Setjið baunirnar í pott og hellið köldu vatni yfir. Hitið að suðu og fleytið froðu ofan af. Saxið laukinn og skerið beikonið í bita og setjið út í, ásamt tímíani, lárviðarlaufi og pipar. Látið malla við fremur hægan hita í u.þ.b. klukkustund. Setjið 1-2 bita af saltkjöti út í en sjóðið hitt sér í potti. Sjóðið kjötið í u.þ.b. 1 klst. Afhýðið á meðan rófurnar og skerið í bita. Skafið eða afhýðið gulræturnar og skerið þær í bita. Afhýðið kartöflurnar og skerið þær í bita ef þær eru stórar. Setjið grænmetið út í þegar u.þ.b. 25 mínútur eru eftir af suðutímanum og látið malla þar til það er meyrt. Bætið við svolitlu vatni ef súpan er mjög þykk.
Þriðjudagur 21. febrúar 2006
Saltkjöt og baunir
- 1½ l vatn vatn
- 1 kg saltkjöt
- 750 g gulrófur
- 200 g gularbaunir
- 50 g hvítkál (má sleppa)
- 2 stk gulrætur (má sleppa)
- 1 stk laukur
Sjóðið baunirnar í 1 1/2 til 2 tíma. Saxið laukinn og sjóðið hann með (sumar baunir eru fyrst lagðar í bleyti í 2-3 klst). Sjóðið 1-2 saltkjötsbita í súpunni síðasta klukkutímann. Sjóðið restina af kjötinu í sér potti í u.þ.b. 1 klst.
Skerið gulrófurnar í bita og sjóðið með súpunni síðustu 30-45 mín. Skerið gulræturnar í sneiðar og hvítkálið í ræmur og sjóðið hvorttveggja í súpunni síðustu 15-20 mín. Þynnið baunirnar með soðinu af saltkjötinu eða með vatni, sé soðið of salt.
Fimmtudagur 9. febrúar 2006
Gulrótar og kartöflumauksúpa
- 5-6 stk. meðalstórar gulrætur
- 5-6 stk. meðalstórar kartöflur
- 1 stk. laukur
- 3 msk. sítrónusafi
- ½ knippi ferskur kóriander
- 2 msk. gerlaus grænmetiskrafur (ef ekki grænmetissoð)
- vatn (grænmetissoð)
- salt og nýmalaður svartur pipar
Aðferð:
Gulrætur, laukur og kartöflur eru afhýddar og skornar í littla teninga. Grænmetið er léttsteikt- þar til það er orðið meyrt í stórum potti. Þá er vatninu og grænmetiskraftinum (grænmetissoð) bætt útí og látið sjóða í ca. 15. mín. Þá ætti grænmetið að vera orðið það meyrt í gegn að sprullari (töfrasproti) ætti að ráða við að fullmauka súpuna. Eftir að hún hefur verið maukuð er hún bragðbætt með hvítvíni (þarf ekki), sítrónusafa og salti og pipar. Látin malla við vægan hita í 5 mín eftir að hafa verið bragðbætt. Ferskur rifinn kóriander er settur yfir rétt áður en súpan er borin fram og varla þarf að nefna það að nýbakað heimalagað speltbrauð er það eina sem þarf með réttinum.
Föstudagur 3. febrúar 2006
Humarsúpa að hætti meistarans
Þessi humarsúpa er ættuð frá humarhátð á höfn, örugglega afar ljúffeng.
- 500 g humar í skel
- 3 stk fiskiteningar
- 3 stk meðalstórar gulrætur
- 2 stk hvítlauksrif
- 2 l vatn
- 1 stk laukur
- 1 stk paprika, græn
- 1 l rjómi eða matreiðslurjómi
- ljós sósuþykkir
- smjör
Skelflettið og hreinsið humarinn, Brúnið skelina í potti ásamt hvítlauknum við vægan hita, Bætið vatni, gróft skornum lauk, papriku og gulrótum út í og látið krauma í 10 tíma.
Sigtið soðið og bætið fiskikrafti út í. Þykkið soðið með ljósum sósuþykki eftir smekk og bætið svo rjómanum saman við. 15 mín áður en súpan er borin fram er humarinn settur út í. Passið að súpan sjóði ekki eftir það, humarinn á bara að hitna í gegn. Berið þessa ljúffengu súpu fram með hvítlauksbrauði sem fengið hefur að hitna í ofni á meðan humarinn verður til. Hægt er að útbúa soðið með nokkrum fyrirvara og geyma í frysti.
Mánudagur 17. október 2005
Grænmetissúpa
Þessi súpa er góð í vetrarkuldanum, hún er holl og hitar mann upp.
Uppskriftin dugar í ca. 6 skammta.
- 8 tómatar, með hýði.
- 1 dós niðursoðnir tómatar
- 1 msk tómatpurré
- 1 gúrka
- 15 baby gulrætur
- 2 paprikur (gott að hafa græna og rauða)
- 1 dós kjúklingabaunir
- 1 dós nýrnabaunir
- Lófafylli af steinselju
- Salt og pipar
Byrjið á að hakka tómatana í matvinnsluvél, bæði fersku og niðursoðnu.
Bætið purréinu (og tabasco sósunni ef hún er notuð) við, hakkið aðeins meira og setjið í stórann pott.
Grófhakkið gulræturnar, paprikurnar og gúrkuna og bætið í pottinn.
Steinseljuna verður að hakka vel til að hún blandist sem best við súpuna.
Skolið nýrna- og kjúklingabaunirnar og bætið út í. Kryddið eftir smekk.
Látið malla í 30 mínútur.
Miðvikudagur 17. ágúst 2005
Tómatsúpa
- 500 g þroskaðir tómatar
- 100 g laukur
- 1 l vatn
- Súpujurtir
- Lárviðarlauf
- Maizenamjöl, ca 3 msk
- Salt og pipar


