« Helgin góð! | Heim | Hvar eru peningamennirnir núna? »

Glitnir ríkisbanki

Glitnir hét eitt sinn Íslandsbanki. Íslandsbanki var sameining Alþýðubanka, Verslunarbanka, Útvegsbanka og Iðnaðarbanka. Nú er ég ekki klár á því hvort þessir litlu, gömlu, bankar voru einkareknir að öllu leiti eða að hluta en þarna hefur verið fyrirtæki sem fólk hefur litið upp til sem fyrirmyndareinkafyrirtækis. Nú hefur heldur betur harnað á dalnum og nú súpa landsmenn seyðið af fjármálafylleríi Glitnis. Mér þykir líklegt að Glitnir hafi tekið hvað mesta áhættu til að halda sjó og sú áhætta hafi ekki skilað sér sem skyldi og því fór sem fór. Vonandi verður sú aðgerð Seðlabanka að leggja 84 milljarða til rekstursins til þess að laga ástandið eitthvað á hlutabréfa- og gjaldeyrismarkaði hérlendis. Mér finnst það líklegt að aðrir bankar fari fram á einhvern stuðning en þó er það ekkert víst. Lárus Welding fékk um leið mikla traustsyfirlýsingu með því að fá beiðni um að halda starfi sínu áfram sem bankastjóri. En hvað gerist nú? Jójóið er á fullri ferð og er líklega enn á leiðinni niður.

Fyrir all nokkru síðan bloggaði ég á moggablogginu mínu um að við þyrftum hið snarasta að ganga í ESB og taka upp Evruna á meðan ástandið væri bærilegt. Ég fékk skít og skömm fyrir þau ummæli þar sem menn sögðu að það yrði ekki hörð lending. Ef þetta er ekki hörð lending þá skal ég hundur heita. Ef við hefðum farið í aðildarumræður og farið alla leið þá hefði ástandið ekki orðið svona slæmt og við værum ekki að kaupa banka.