Mig langar alveg óheyrilega í kontrabassa. Löngunin er svo mikil að ég er alveg viðþolslaus. Þegar Helga Guðný fór að læra á selló þá tók ég aðeins í það (lítið selló) og fór að plokka það og varð alveg fárveikur í að fá mér kontrabassa. En þá er bara ein spurning lesandi góður... Hvar get ég keypt bærilegan kontrabassa fyrir ekkert of mikinn pening?



Besserwiss (8)
Hmmm... íbei?
Skráð af Gunnar Freyr | 19.09.08 12:53
Selt.is?
Skráð af albin | 19.09.08 14:38
Þetta er spurning númer 3. Þú verður að leysa 1 og 2 fyrst:
1) Redda pening
2) Redda plássi
;)
Skráð af Ásdís | 19.09.08 14:47
urrg, ég fæ ekki að kommenta hér, kerfið heldur að ég sé að spamma. :x
Skráð af hildigunnur | 19.09.08 22:55
heh, auðvitað komst þetta svo í gegn!
Allavega, ég er að kaupa selló handa Freyju og það kostar glás og helling...
Skráð af hildigunnur | 19.09.08 23:02
Keyptu þér bara blokkflautu, hún kostar miklu minna og tekur miklu minna pláss ;)
Skráð af Védís | 20.09.08 22:45
hildigunnur
Engin komment fá að fara í gegnum bloggkerfið, án þess að það sé fyllt út í þennan aukareit (Hér, Orsakavaldur).
En þú er náttúrulega búin að komast að því ;)
Ástæðan var náttúrulega sú að gríðalegt magn af spami flæddi inn í kerfið, á öll blogg. Eftir að þessum reit var bætt við, hef ég ekki séð eitt spam komment koma inn í kerfið, 7, 9, 13.
Skráð af albin | 20.09.08 23:44
Ég fyllti út í hann, sko! Það var ekki vandamálið. Skilaboðin sem ég fékk var að ég hefði sent of mörg skilaboð á of stuttum tíma. Sem ég hafði ekkert gert. Reyndar gerði ég þau mistök að forskoða, kannski tók kerfið það eins og ég hefði sent kommentið inn.
Skráð af hildigunnur | 21.09.08 22:28