« Ásgeir vinur minn í Haag | Heim | Dæmigert »

Tenerife, Hornafjörður, Haag

Nú er kerlingarálkan mín á leiðinni til Tenerife í dag. Hún lét ömmu sína og móðursystur plata sig út í að fara þessa ferð, þrátt fyrir að ég væri án vinnu og allt stefndi í tóma vitleysu í fjármálum þar sem atvinnuleysisbætur eru til þess fallnar að setja allt í tóma vitleysu. En á ögurstundu fékk ég vinnu og kerlingu var létt. Ekki mér hins vegar. Þar sem hún verður viku í úgglöddum þá fer hún ekki ásamt mér og dætrum okkar til Hornafjarðar á ættarmót um helgina. Ég er ekkert sérlega hress með það en ég hlýt að lifa það af þar sem ég er búinn að hóta að skreppa til Den Haag í Hollandi um páskana. Hún gat ekkert sagt við því og því ætla ég að skella mér. Ég á líka svo mikið af vildarpunktum og 1 stk. gjafabréf hjá Flugleiðum. Ekki amalegt það. En jæja... reyk... ég meina bloggpásunni er lokið.

Besserwiss (4)

Það verða fleiri makalausir um helgina, við skemmtum okkur bara betur fyrir vikið, það þýðir ekkert annað ;)

Segðu... vandamálið er að ég verð inni í sumarbústað...

Önd:

Já, það er nefnilega það. Ég er að fara til Tenerife í nóvember. Það verður gaman.

Sjáumst um helgina!