« Hef nú sagt þetta all lengi... | Heim | Frægasta landi í heimi? »

Verða þetta ömurlegustu jól í manna minnum?

Svei mér þá ef þetta verða ekki einhver döprustu jól sem Íslendingar hafa upplifað. Gríðarlega margir hafa fengið uppsagnir og vita nákvæmlega ekkert hvað bíður þeirra handan við áramótin. Þetta er hreint skelfilegt ástand. Nú held ég að ríkisstjórnin verði að fara að tilkynna viðræður við ESB um aðild og að stefnt sé að upptöku Evru. Ef það gerist ekki þá stefnir þjóðin í áratuga kreppu. Ég nenni ekki að búa við svoleiðis ástand!

Besserwiss (4)

Ég hugsa nú ad margir hafi upplifad verri jól. Eftir súdarvíkur snjóflódid t.d. Fólk sem hefur nýlega misst ástvini! Fólk sem hefur nýlega greynst med banvænan sjúkdóm. Thrátt fyrir kreppu hafa flestir íslendingar thad langt betra en stærsti hluti heimsins. Munum ad vera thakklát fyrri thad sem vid hofum. Vid høfum, mat, husnædi, skola heilbrigdiskerfi, thad er hægt ad finna vinnu. Thad er margt jákvætt lika. :)

Það sem ég er nú að vísa í er þessi bölvaða óvissa sem þjakar fólkið sem hefur fengið uppsagnir. Það er mjög lítið um vinnu að fá. Hvernig er með t.d. hjón sem hafa bæði fengið uppsögn? Það get ég ekki ímyndað mér að verði skemmtileg jól hjá þeim vitandi ekkert hvað er framundan.

Ömurlegri jól í manna minnum hafa mögulega verið í kringum heimstyrjaldarárin, og fólk fætt 1920-1930 (eða fyrr) man áreiðanlega eftir einhverjum erfiðari tímum en þessum.

Auðvitað er það ömurlegt ef báðar fyrirvinnur / eina fyrirvinnan hefur misst atvinnu, en ég held ég myndi samt frekar vilja missa vinnu og íbúð en ástvini eða heilsuna. Það má ekki einblína á svartnættið, líkt og fjölmiðlar (og samstarfsfólk í sumum tilvikum....) virðast margir gera.

Aldrei er svo dimmt að ekki geti birt.

Auðvitað vill maður missa vinnu heldur en ástvini og heilsuna en þú veist að heilsan eða ástvinurinn er ekki fyrir hendi en þú veist ekkert hvort þú færð vinnu eða ekki í svona árferði. Það hefur mun verri áhrif á sálarlífið, fjölskyldulífið, allt saman. Þegar einhver missir heilsuna eða ástvinur fellur frá þá þjappar það fólki saman frekar en sundra því en ástand eins og nú hefur skapast er mun líklegra til þess að sundra fjölskyldum heldur en hitt.
En það er rétt að það er aldrei svo dimmt að ekki geti birt en það getur tekið djöfullega langan tíma.