Amfetamínverksmiðja finnst í Hafnarfirði. Höfuðpaurinn virðist vera maður sem ég hélt að væri kominn á réttu brautina eftir að hafa átt aðild að líkfundarmálinu stóra. Jónas Ingi Ragnarsson söng með mér í Kór Menntaskólans við Hamrahlíð í gamla daga og gott ef ekki í Hamrahlíðarkórnum líka. Við vorum ágætis mátar og spjölluðum oft um daginn og veginn. Nýverið óskaði Jónas eftir því að gerast vinur minn á Mundskinnu (Facebook) og ég þáði það gjarnan þar sem ég hafði séð virðulega mynd af honum fyrir nokkru þar sem hann var jakkafataklæddur og snyrtilega til hafður fyrir utan hegningarhúsið á Skólavörðustíg og hann hafði þá nýverið stofnað fyrirtæki sem hjálpar föngum við að fá vinnu eftir afplánun. Góður málstaður og sjálfsbjargarviðleitni. En nú er illa komið fyrir honum Jónasi. Ég sé að honum er alls ekki treystandi og hann verður alltaf samur við sig. Hann sækir í undirheimabrask og þegar menn hafa sokkið svona djúpt þá held ég að það verði ekki aftur snúið. Ég hef ekki hitt Jónas í mörg ár en þegar Líkfundarmálið kom upp þá fékk maður sjokk... ég þekki mann sem hefur átt þátt í stórglæp og nú þekki ég mann sem hefur átt þátt í gríðarlega stórum glæp. Það finnst mér ekki eftirsóknarvert! Ég tók Jónas af Facebook listanum mínum í kvöld.


