« október 2008 | Heim | desember 2008 »

nóvember 2008 Gamalt

Mánudagur 3. nóvember 2008

Glæfraleg ummæli eða rökrétt yfirlýsing?

Samfylkingin sendi frá sér yfirlýsingu um daginn þess efnis að flokkurinn lýsti vantrausti á núverandi bankastjórn Seðlabankans. Þá spyr maður sjálfan sig óneitanlega hvort þetta hafi verið glæfraleg ummæli eða rökrétt yfirlýsing. Ég hef lengi verið á þeirri skoðun að Seðlabankastjórnin ætti að fara frá en það kann að hljóma undarlega þegar ég segi að þessi yfirlýsing Samfylkingarinnar sé glæfraleg í meira lagi. Það er allt í lagi að rugga bátnum aðeins en að leggja hann á hliðina er gjörsamlega út úr öllu korti miðað við ástandið. Ég varð virkilega hissa á félögum mínum að gera þetta. Þetta hefði mátt koma fram í reykmettuðum bakherbergjum en ekki opinberlega!

Þriðjudagur 11. nóvember 2008

Bjarni setur öflugt fordæmi.

Bjarni Harðarson lét frá sér mjög óvarlega hluti í gær. Viðbúið var að mikið írafár yrði út af póstsendingu Bjarna og því tók hann rétta ákvörðun og var samkvæmur sjálfum sér og sagði af sér. Bjarni hefur alltaf barist fyrir því að menn axli ábyrgð og í eigin mistökum gerði hann það. Ég held að tími Bjarna sé ekki liðinn í íslenskum stjórnmálum. Hann á eftir að birtast aftur og þá jafnvel enn beittari. Mér finnst að íslenskir stjórnmálamenn megi íhuga þá stöðu sem Bjarni kom sér í og hvað hann gerði í framhaldinu. Það eru mjög margir sem hafa látið óvarleg og jafnvel ljót orð falla en aldrei axlað þá ábyrgð að segja af sér. Skál fyrir Bjarna bóksala!

Miðvikudagur 12. nóvember 2008

Aðventu- og jólatónleikar Kammerkórs Hafnarfjarðar

Kammerkór Hafnarfjarðar heldur tónleika 2. og 3. desember næstkomandi. Einsöngvari merð kórnum þetta sinnið verður Ragnheiður Gröndal. Píanóleikari er Anna Magnúsdóttir og stjórnandi í fjarveru Helga Bragasonar er Helga Loftsdóttir.

Kammer_jol_08_b.jpg

Föstudagur 14. nóvember 2008

Three kings...

Ég fékk ábendingu um smellna síðu um daginn, Húmor í kreppunni. Þar eru umslög ýmissa bíómynda skopstæld eða hreinlega nýjar myndir búnar til. Mér fannst hins vegar vanta eina mynd svo ég gerði það umslag...

Threekings.jpg

Mánudagur 17. nóvember 2008

Geggjuð helgi

Ég fór á árshátíð um helgina. Félagsskapur sem ég er í heldur alltaf árshátíð og þetta árið er þriðja skiptið sem ég er með hljómsveit. Í hádeginu á laugardaginn fór ég á Áslák í Mosó til að róta inn og setja upp græjur. Svo var gert sándtékk. Þetta tók u.þ.b. 2 klst. Á heimleiðinni hringdi síminn og var það rútubílstjórinn sem ætlaði að sækja allan mannskapinn á árshátíðina, hann forfallaðist. Ég tók mér smá umhugsunarfrest en ákvað að taka að mér aksturinn í hans stað. Ég fór heim og hjálpaði Ásdísi að gera klárt fyrir forpartýið okkar. Síðan sótti ég rútuna, fór með hana næstum heim, kom heim, fór í sturtu og sinnti gestunum sem voru komnir. Eftir góða stund fór ég og sótti rútuna og hóf yfirreið um höfuðborgarsvæðið. Þegar komið var upp í Áslák þá hófst ég handa við að gera klárt fyrir hljómsveitina og svo hófst spilamennskan. VIð lékum með hléum til miðnættis og þá tók við tiltekt á hljóðfærum og tækjum og þeim dröslað út í rútu. Eftir að hafa þurft að aðstoða fólk sem hafi drukkið aðeins of mikið var farið í að smala út í rútu og lagði ég af stað kl. 02.20 frá Ásláki. Þegar ég var búinn að skila öllum af mér, leggja rútunni og taka mesta ruslið var klukkan orðin 05.45 og ég fór áleiðis heim. Ásdís var með mér en samt ekki alveg í stuði til að hjálpa við tiltektina. Við komum við í sjoppu til að fá okkur pylsur og fórum svo heim, við vorum komin inn um 06.30. Ég settist niður og fékk mér einn bjór en sofnaði næstum ofan á tölvuna þannig að um kl. 07 fór ég loksins í bælið. Ég skemmti mér ágætlega en ég er enn alveg hræðilega þreyttur.

Fimmtudagur 20. nóvember 2008

Nýr stjórnmálaflokkur?

Á bloggi sínu segir Kjartan Valgarðsson eftirfarandi:

Spurning dagsins: Hvað gerist ef Davíð stofnar flokk og býður fram?

Svar: VG hverfur.

Þessu ku hafa verið stolið úr kaffispjalli með Lobba, sem er betur þekktur sem pabbi minn...

Ég er á því að Davíð eigi að gera þetta því þá myndast starf fyrir karl föður minn, hagfræðinginn... Hann skal í stól seðlabankastjóra!

Föstudagur 21. nóvember 2008

Fáránleiki Icelandair

Nú í haust hætti Icelandair að gefa mat með hverju sæti til og frá útlöndum og fór að selja hann dýrum dómum. Icelandair taldi sig því miður verða að hækka verðin á fargjöldunum.

Í dag var svo frétt á mbl.is þar sem segir frá því að nú geti aðrir Norðurlandabúar fengið 25% afslátt af almennum fargjöldum til Íslands og Bandaríkjanna. Það er ekki laust við að maður verði pirraður við tilhugsunina að þeir gefi manni ekki að éta og hækki fargjöldin bara til að aðrir geti ferðast með ódýrari hætti.

Mér finnst þetta bjánalegt!

Fimmtudagur 27. nóvember 2008

Framrúða?!?!

Á mbl.is er að finna eftirfarandi frétt:

Innbrot í Skipholti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í kvöld hendur í hári tveggja manna um tvítugt sem brutust inn í ljósmyndavöruverslun í Skipholtinu. Þeir gista nú fangageymslur.


Tilkynnt var um innbrotið til lögreglunnar og gaf vitni greinargóða lýsingu á mönnunum sem sáust hlaupa á brott eftir að hafa brotið framrúðu í versluninni.

Lögreglulið var þegar í stað kallað á vettvang og fann lögreglan svo tvo menn sem svöruðu lýsingunni við Stýrimannaskólann.

Þar voru þeir handteknir með ætlað þýfi, en á þessari stundu er ekki ljóst hvert verðmæti þess var.

Þeir munu gista fangageymslur lögreglunnar á Hverfisgötu í nótt.

Mér þætti vænt um að vita úr hvaða bíl þeir tóku framrúðuna til að brjóta á gólfinu í búðinni...

Föstudagur 28. nóvember 2008

Vinarkveðja

Góðvinur minn hann インフォグ hjá 神崎 sendi mér tölvupóst morgun. Fyrirsögnin gerði mér þann grikk að hún sló mig. Þar stóð ハンゲームを楽しむと月収65万円!? og ég eiginlega var ekkert viss um hvort hann væri að grínast eða ekki. En útskýringin kom í innihaldinu í bréfinu. Þar byrjar hann á að segja インフォグ 〜神崎のスーパー速報!〜 ドン底からでも這い上がれる! og þá léttist á mér brúnin. Mér stóð eiginlega ekki á sama með þessa fyrirsögn. Hann sagði mér fréttir af mömmu sinni og sagði að hún væri furðu ern og gæti enn haldið á sígarettunni... eða eins og hann orðaði það ハンゲームって知ってますか. Það kom reyndar babb í bátinn því að 好きなゲームを楽しむだけで sem eru samtök sem hann hefur stýrt voru lögð niður vegna þess að 月収65万円以上になるとしたら fjármálafyrirtækið fór í þrot og allir sjóðir samtakanna voru þar. Það eru hins vegar önnur samtök sem hafa verið frekar fjandsamleg vegna þess að þeir hafa beitt fyrir sig もうハンゲームに夢中になっちゃいますよね sem er í raun meirihluti. En ※こちらの商品のお問い合わせはコチラ gáfu samt út skýr skilaboð þess efnis að verði einhvers konar árekstur vegna þessa þá verði leitað til インフォグ ミリオネアー担当の神崎でした. En hann hefur litið frekar létt á þetta og ætlar að láta af öllum svona störfum, eða eins og hann orðar það:
 ※当メルマガは「懸賞マスター」で承諾された方に配信しております。

 ※こちらのアドレスは送信専用となっておりますので、
  返信いただいてもお問い合わせにはお答えできませんのでご了承くださ

Hann bað fyrir kveðju til þeirra sem hann þekkir hér.

Rand

Í fjármálakreppu undanfarinna mánaða hefur krónunni verið haldið stöðugri með handafli. Nú held ég að krónan fari að verða svo óstöðug að hún ætti að kallast Rand, líkt og gjaldmiðill Suður-Afríku. Í þessu tilviki myndi krónan draga nafn sitt úr forritun. Hvernig myndi það virka? Eftirfarandi dæmi sýnir það:

Viðskiptavinur=V
Afgreiðslumaður=A

V: Góðan dag, hvað kostar mjólkurlítrinn?
A: 4.503
V: 20.390
A: Já, 5.

Þetta er vissulega súrt en líklega ekkert fjarri lagi miðað við þann stöðugleika sem krónan kemur til með að verða í. Söltum krónurnar ofan í tunnur og tökum upp Ærgildi!