Nú í haust hætti Icelandair að gefa mat með hverju sæti til og frá útlöndum og fór að selja hann dýrum dómum. Icelandair taldi sig því miður verða að hækka verðin á fargjöldunum.
Í dag var svo frétt á mbl.is þar sem segir frá því að nú geti aðrir Norðurlandabúar fengið 25% afslátt af almennum fargjöldum til Íslands og Bandaríkjanna. Það er ekki laust við að maður verði pirraður við tilhugsunina að þeir gefi manni ekki að éta og hækki fargjöldin bara til að aðrir geti ferðast með ódýrari hætti.
Mér finnst þetta bjánalegt!



Besserwiss (4)
Nú ætla ég ekki að verja það að Icelandair sé farið að selja matinn. Hins vegar langar mig að benda á að með því að lokka útlendinga hingað á þennan hátt er að auki verið að færa fjármagn til landsins. Þetta er ekki eins einhliða og þú vilt vera láta.
Skráð af Gunnar Freyr | 21.11.08 15:43
Látum nú vera að þeir séu að draga fólk hingað en að bjóða því svona feitan afslátt til ameríku finnst mér einfaldlega sívirða! Svo vil ég benda þér á að þú hefur ekki beinan hagnað af komu ferðamanna frekar en ég og því algerlega ástæðulaust að gleðjast mjög mikið yfir þessu. Hvað græðir almenningur á þessu? Ekkert!
Skráð af Hallur | 21.11.08 16:05
Get ekki sagt að ég gráti það mikið þó ég fái ekki þennan slepjulega flugvélamat.
Skráð af Dr. Ravenkill, sir | 21.11.08 17:06
heh, ekki eins og þetta sé eitthvað nýtt! Búið að viðgangast eins lengi og ég man eftir mér! Við hér heima búin að niðurgreiða Ameríku-Evrópuflugið. Á tímabili var hægt að kaupa flug frá Evrópu til BNA, mæta í flugið úti og sleppa svo leggnum KEF-JFK, en þeir föttuðu trikkið og það var skrúfað fyrir möguleikann (man ekki hvernig).
Sé ekki eftir ofsoðnu skinkunni og eggjahrærunni + blautu kartöfluteningunum, en ekki hætta þeir að svívirða okkur hér heima!
Skráð af hildigunnur | 22.11.08 01:16