« Three kings... | Heim | Nýr stjórnmálaflokkur? »

Geggjuð helgi

Ég fór á árshátíð um helgina. Félagsskapur sem ég er í heldur alltaf árshátíð og þetta árið er þriðja skiptið sem ég er með hljómsveit. Í hádeginu á laugardaginn fór ég á Áslák í Mosó til að róta inn og setja upp græjur. Svo var gert sándtékk. Þetta tók u.þ.b. 2 klst. Á heimleiðinni hringdi síminn og var það rútubílstjórinn sem ætlaði að sækja allan mannskapinn á árshátíðina, hann forfallaðist. Ég tók mér smá umhugsunarfrest en ákvað að taka að mér aksturinn í hans stað. Ég fór heim og hjálpaði Ásdísi að gera klárt fyrir forpartýið okkar. Síðan sótti ég rútuna, fór með hana næstum heim, kom heim, fór í sturtu og sinnti gestunum sem voru komnir. Eftir góða stund fór ég og sótti rútuna og hóf yfirreið um höfuðborgarsvæðið. Þegar komið var upp í Áslák þá hófst ég handa við að gera klárt fyrir hljómsveitina og svo hófst spilamennskan. VIð lékum með hléum til miðnættis og þá tók við tiltekt á hljóðfærum og tækjum og þeim dröslað út í rútu. Eftir að hafa þurft að aðstoða fólk sem hafi drukkið aðeins of mikið var farið í að smala út í rútu og lagði ég af stað kl. 02.20 frá Ásláki. Þegar ég var búinn að skila öllum af mér, leggja rútunni og taka mesta ruslið var klukkan orðin 05.45 og ég fór áleiðis heim. Ásdís var með mér en samt ekki alveg í stuði til að hjálpa við tiltektina. Við komum við í sjoppu til að fá okkur pylsur og fórum svo heim, við vorum komin inn um 06.30. Ég settist niður og fékk mér einn bjór en sofnaði næstum ofan á tölvuna þannig að um kl. 07 fór ég loksins í bælið. Ég skemmti mér ágætlega en ég er enn alveg hræðilega þreyttur.

Besserwiss (5)

Eðal skemmtun sem tókst afar vel.

Dr. Ravenkill, sir:

Þú ert greinilega alveg fæddur rótari!!!

Já... kannski er ég sökka sem hljóðmaður í action.

Kristjan Gudmundsson:

Being sober is highly overrated :/

Takk fyrir dásamlega skemmtan.

Besserwissaðu