Í gær fór ég eftir vinnu að heimsækja mömmu. Það var eiginlega allt annað að sjá hana. Það er kominn litur á hana aftur og hún farin að tala meira. Hún verður mjög auðveldlega þreytt samt þar sem læknar, sjúkraþjálfarar og annað starfsfólk er að aðstoða hana. Svo koma gestir og spjalla við hana og þegar dagur er að kveldi kominn þá er hún bara alveg búin. Hún hins vegar gekk fram í setustofu með aðstoð sjúkraþjálfa. Þetta er allt að koma og áður en við vitum af verður hún farin að spila golf á ný.
Meðan ég var hjá henni þá hringdi gamall vinur í mig og fór að ræða yfirstandandi júróvisjónkeppni. Við erum hjartanlega sammála um það að hljómsveitin ELEKTRA sem spilar á laugardaginn er með besta lagið þetta árið. Kannski engin stórkostleg lagasmíð en mikið stemmningslag. Það fær atkvæði mitt á laugardaginn. Ég hafði skrifað tvær færslur um fyrri júróvisjónkvöld hér en það þriðja hafði ég ekki tíma til að skrifa um og það var eiginlega ekki þess virði að skrifa um það þar sem það var í besta falli ömurlegt. Lögin núna eru mun skárri og ELEKTRA nokkrum levelum fyrir ofan hin.
Eftir það fór ég heim og sökkti mér ofan í lokaverkefnið sem ég er að fara að vinna fyrir MCITP Server 2008 námskeiðið sem ég er á (hét áður MCSA). Ég er mjög kátur með framfarir mömmu og það er bara ástæða til bjartsýni. En ég ítreka það að það er best að hafa samband við mig eða pabba ef fólk ætlar að heimsækja hana því hún gæti verið of þreytt til að taka á móti fólki...



Besserwiss (3)
Gott að heyra, viltu skila kveðju til hennar frá okkur næst þegar þú ferð til hennar
Skráð af Védís | 30.01.09 14:54
Ekkert nýtt?
Skráð af Álfheiður | 01.02.09 19:22
Gott að heyra að konan er að braggast. Bið að heilsa...
Skráð af Önd | 02.02.09 16:24