« Allt gott | Heim | Framför... »

Afturför

Ég hef ekki komist til mömmu síðan síðasta fimmtudag vegna lokaverkefnis sem ég var í. Nú er ég búinn með námsferlið í MCITP Server 2008 og á bara eftir 4 gríðarþung próf sem ég samt tek þegar ég er tilbúinn til þess.

Af mömmu er það að frétta að í gær og í dag hefur henni hrakað. Hún er víst farin að rugla eitthvað og það setur okkur í smá ótta. Læknarnir vita ekki alveg hvað veldur þessu en telja að það gæti verið að þar sem blæðingin er að brotna niður þá hafi myndast bólgur sem þrýsta á ákveðnar stöðvar sem veldur þessari þróun. Við bíðum bara eftir því hvað næstu dagar bera í skauti sér. Krossum fingur.

Það skal tekið fram að þeir sem vilja heimsækja hana verða að gera það í samráði við mig og pabba og að gefnu tilefni verð ég að benda á að blóm eru bönnuð á deildinni þannig að gestir þurfa ekki að ómaka sig við að kaupa svoleiðis sem fer síðan til baka með þeim.

Besserwiss (3)

Allir puttar krossaðir hér!

Védís:

Líka hér.

Elfa:

Æ leiðinlegt að heyra. Við krossum fingur hér líka og vonum auðvitað það besta.
Kveðjur til allra
Elfa og fjölsk

Besserwissaðu


Um

Þessi síða inniheldur aðeins eina grein sem rituð var þann 4. febrúar 2009 22:47.

Síðasta færsla á þessu bloggi var Allt gott.

Næsta færsla á þessu bloggi er Framför....

Margar fleiri er hægt að finna á aðalsíðunni eða með því að þvælast í gegnum gamalt.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 1
Gestir í gær: 2
Þennan mánuð: 66

Færslur: 109
Álit: 216

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme