« Is it true? | Heim | ESB - af hverju? »

Private.is og aðrar síður

Já, ég veit að það er langt síðan ég hef bloggað. Það hefur verið mikið að gera en ég segi frá því seinna.

Þegar vændiskaup voru bönnuð með lögum þá bloggaði ég um það. Þar kom fram ýmislegt sláandi að mínu mati og eiginlega beinlínis ógeðfellt.

Frétt DV um helgina um einkamálavefi og tilburði þeirra til barnavændis eru því engin ný sannindi fyrir mér. Ég hef skoðað alla þessa vefi fram og til baka sem og kynnt mér símalínurnar sem bjóða upp á símavændi. Þetta er gróðrarstía fyrir vændi og misnotkun. Ég hef séð auglýsingar þar sem karlar skrifa auglýsingar fyrir "konur" sínar og segja þær áhugasamar um að prófa að vera með öðrum körlum. Þegar grennslast er fyrir um það hvað er á seyði þá kemur í ljós að það er ekki bara það að konan skulu sænga hjá öðrum heldur skal taka gjald fyrir það. Einn aðili sem auglýsti svona sagði mér að ef mér líkaði hún ekki þá "þekkti" hann aðrar sem gætu komið í staðinn.

DV var ekkert fyrst með fréttirnar... þeir ná bara til stærri hóps heldur en ég.

Besserwissaðu