« VARSJÁRBANDALAGIÐ Á RÓSENBERG KL 22.00 Í KVÖLD! | Heim | Kyrrsetning eigna - hvað gerist? »

Lýðræði og bananar

Djöfull er ég reiður! Það er verið að traðka á málfrelsinu. Ríkisútvarpið hefur verið að flytja fréttir úr lánabókum Kaupþings undanfarið en í dag fékk Kaupþing því framgengt að lögbann yrði sett á fréttaflutning RÚV af þessu. Maður hefði skilið ef Gamla Kaupþing væri paranoid yfir þessu og heimtaði lögbann en þegar Nýja RíkisKaupþing styður þetta og berst með Gamla Kaupþingi þá er eitthvað skítugt á seyði. Þegar bankarnir voru yfirteknir þá var því lýst yfir að allt skyldi upp á borðið. Hvað er þá í gangi núna?

Nú er ég verulega farinn að íhuga flutning viðskipta minna til MP banka eða Byrs. ÉG þarf bara að sjá hvor býður betur.

Við búum í mesta bananalýðveldi sem til er!

http://wikileaks.org/leak/kaupthing-bank-before-crash-2008.pdf

Reynið að setja lögbann á alla bloggara, facebook og aðra tjáningu, þið losnið aldrei undan þessu!

Besserwissaðu


Um

Þessi síða inniheldur aðeins eina grein sem rituð var þann 1. ágúst 2009 19:52.

Síðasta færsla á þessu bloggi var VARSJÁRBANDALAGIÐ Á RÓSENBERG KL 22.00 Í KVÖLD!.

Næsta færsla á þessu bloggi er Kyrrsetning eigna - hvað gerist?.

Margar fleiri er hægt að finna á aðalsíðunni eða með því að þvælast í gegnum gamalt.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 3
Gestir í gær: 1
Þennan mánuð: 17

Færslur: 141
Álit: 258

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme