« ágúst 2009 | Heim | desember 2009 »

október 2009 Gamalt

Miðvikudagur 7. október 2009

Auglýsingar...URR!

Það eru tvær auglýsingasyrpur sem ég bókstaflega haaaaata!

Önnur er runnin undan rifjum ágæts kunningja mins en mér finnst hann hafa floppað duglega þar. Það er auglýsingaherferðin sem er best þekkt undir frasanum "ESSASSÚ?". Þetta var ekki byrjað að birtast fyrr en allir voru komnir með þetta á heilann.

Hin auglýsingaherferðin er með honum Sveppa, Suzuki. Hann spyr m.a. í einni hvort það megi ekki bjóða fólki að kaupa ódýran bíl. Ég spyr á móti hvort einhver hafi lyst á því að kaupa sér dýran bíl núna?

Mér finnst það þurfi að vanda betur til verka.

Laugardagur 17. október 2009

Icesave í höfn?

Jæja, þá hafa tjallarnir og túlípanarnir skilað áliti sínu á Icesave samningnum.

Þeir vilja að við höldum áfram að borga eftir 2024 ef skuldin er ekki að fullu greidd, að mínu mati mjög eðlileg krafa enda væri annað rippoff. Fari Icesave fyrir dóm þá falli ekki niður greiðsluskylda heldur verði sest aftur að samningaborðinu. Ákvæði Ragnars Hall um forgangsröð krafna er enn í samningnum en fellur úr gildi ef eftirlitsstofnun EFTA og ESA að þeirri niðurstöðu að það stangist á við evrópskan rétt þá fellur það ákvæði úr gildi, óháð því hvernig Hæstiréttur Íslands dæmir.

Ég held að nú sé ráð að segja játakk og skrifa undir. Ef við segjum nei við þessu þá er einboðið að viðskiptaþvinganir verða settar á Ísland og við verðum blásnauð þjóð næstu áratugina. Þeim er í raun bara andskotans sama um eitthvert smápeð norður í ballarhafi. Okkar helsta haldreipi er að vera aðili að EES samningnum og því verði erfitt að sniðganga okkur algerlega. En geti Bretar og Hollendingar sannfært aðra sem aðilar eru að EES um að við séum bara helvítis slúbbertar í norðurhöfum sem svífumst einskis þá er alveg möguleiki á að EES sé úr sögunni hjá okkur. Það yrði þeim þó kostnaðarsamt og yrði unnið sem prinsipp gæluverkefni en ekki sem stórkostlegt fjárhagsmunamál.

Eitt sem mér finnst merkilegt með alla þessa Icesave umræðu. Skuldin er 300 milljarðar. Jújú, brjáluð upphæð. En þetta er innan við 10% af heildarskuldum ríkisins vegna hrunsins. Af hverju er verið að gera svona mikið vesen út af þessu?

Hagfræðingar og stjórnmálafræðingar hafa sagt að ef við samþykkjum ekki Icesave strax þá verði skuldin tvö- og jafnvel þrefölduð með einu fjandans pennastriki! Það þarf að samþykkja þetta eins og það liggur fyrir og reyna svo síðar að semja upp á nýtt. Það verður hægt með því að skjóta samningnum til dómstóla og vona að samningurinn sé ólögmætur. En þá er ferlið komið í gang og minna mál að lagfæra og leiðrétta.

Ég óska þess að þeir þingmenn sem hafa tafið þetta sjái að sér og samþykki Icesave samninginn sem lausn út úr ákveðnum vanda. Með því að skrifa ekki undir þá erum við að samþykkja okkar eigin dauðadóm!