Á morgun birtist fyrsti jólasveinninn. Eins og ég hef áður sagt mun ég birta daglega brot úr jólasveinavísum Jóhannesar úr Kötlum ásamt myndum. Myndirnar held ég að komi á óvart. En sjáum hvað setur... En vísurnar um jólasveinana eru ekki bara um þessar sem þekktastar eru heldur er upphaf og endir á vísnabálki þessum og hér ætla ég að birta formálann að upptalningunni.
Jólasveinavísur
Segja vil ég sögu
af sveinunum þeim,
sem brugðu sér hér forðum
á bæina heim.
Þeir uppi á fjöllum sáust,
-eins og margur veit,
- í langri halarófu
á leið niður í sveit.
Grýla var þeirra móðir
og gaf þeim tröllamjólk,
en pabbinn Leppalúði,
-það var leiðindafólk.
Þeir jólasveinar nefndust,
-um jólin birtust þeir,
og einn og einn þeir komu,
en aldrei tveir og tveir.
Þeir voru þrettán
þessir heiðursmenn,
sem ekki vildu ónáða
allir í senn
Að dyrunum þeir læddust
og drógu lokuna úr.
Og einna helst þeir leituðu
í eldhús og búr.
Lævísir á svipinn
þeir leyndust hér og þar,
til óknyttanna vísir,
ef enginn nærri var.
Og eins, þó einhver sæi,
var ekki hikað við
að hrekkja fólk
- og trufla þess heimilisfrið.


