« Hvað viljum við og hvað getum við? | Heim | Íþróttir og listir - hvort tveggja menning »

Fundurinn í kvöld

 

straeto.jpg
Æ og ó. Mér gekk skelfilega að flytja mín hjartans mál. Missti fókusinn á punktablöðin, stamaði, tafsaði og var eiginlega eins og kjáni.

 

En fall er fararheill og ég er ekki hættur. Þvert á móti. Nú ætla ég að skrifa, skoða og rétta minn hlut. Allir mótframbjóðendur mínir eru frábærir kandídatar í stöðu bæjarfulltrúa. Ég tel mig eiga fullt erindi þangað þrátt fyrir ógöngur kvöldsins.

Ég er mikill áhugamaður um bættar almenningssamgöngur. Mér finnst að sveitarfélögin sem standa að Strætó BS eigi að framkvæma tilraun sem miðar að því að hafa frítt í strætó, þétta leiðakerfið verulega og með því draga úr mengun sem og kostnaði við gatnaviðgerðir og gatnagerð. Þetta yrði fokdýr aðgerð en ef litið er til 10 - 15 ára þá gæti ég vel trúað að þetta myndi borga sig. Svona verkefni dugar ekki að reyna eitt kjörtímabil því svona verkefni þurfa tíma, langan tíma.

Það má svo sem vel vera að þetta sé óframkvæmanlegt eins og staðan er í dag en ég held samt að við verðum að skoða alla fleti á almenningssamgöngum. Fyrsta skrefið er að kenna börnum okkar að nota strætó en ekki skutla þeim allt sem þau þurfa að fara.

Besserwissaðu


Um

Þessi síða inniheldur aðeins eina grein sem rituð var þann 18. janúar 2010 23:06.

Síðasta færsla á þessu bloggi var Hvað viljum við og hvað getum við?.

Næsta færsla á þessu bloggi er Íþróttir og listir - hvort tveggja menning.

Margar fleiri er hægt að finna á aðalsíðunni eða með því að þvælast í gegnum gamalt.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 0
Gestir í gær: 2
Þennan mánuð: 5

Færslur: 168
Álit: 260

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme