
Á málflutningi mínum undanfarið hefur mátt lesa að ég sé „antí-sportisti“. Svo er alls ekki. Ég hef gaman af íþróttum. Ég veit fátt skemmtilegra en að horfa á Formula 1, góða knattspyrnu og jafnvel æsilegan handbolta. Ég á það stundum til að segja hlutina full hreint út og því jafnvel misskiljast þeir.
Hafnarfjörður hefur stutt duglega við bakið á íþróttamönnum í gegnum tíðina og þó sérstaklega Haukum og FH. Önnur félög hafa vissulega hlotið stuðning en þó minni. En pólitíkin hefur mér þótt litast full mikið af því hvort menn eru Haukamenn eða FHmenn. Ég vil afstýra svona þróun. Ég hef alla tíð staðið utan þessa rígs einfaldlega vegna þess að mér líkar ekki þegar pólitíkin stjórnast af þessu.
Í Hafnarfirði má nefna að íþróttafélagið Fjörður er að vinna gríðar gott starf í þágu fatlaðra og finnst mér aldrei imprað nægilega á því. Bærinn hefur styrkt þau til ýmissa verka og hvatt til dáða en fókusinn er samt alltaf á risunum tveimur.
Nú er verið að klára stórglæsilegt frjálsíþróttasvæði í Kaplakrika og verið er að byggja áhorfendastúku á Ásvöllum. Hafnarfjarðarbær er vissulega í fremstu röð hvað þetta varðar. En á meðan hefur menningarlíf dálítið fengið að sitja á hakanum.
Fái ég umboð bæjarbúa til að setjast í fjórða sæti framboðslista Samfylkingarinnar mun ég berjast með kjafti og klóm fyrir því að listalíf Hafnarfjarðar verði eflt til muna.
Við eigum innan okkar raða listamenn á heimsmælikvarða og nægir þar að nefna Hjörleif Valsson sem hefur verið þess heiðurs aðnjótandi að fá að vera með Stradivarius fiðlu í sinni vörslu, og einungis þeim bestu er boðið það. Í Hafnarfirði eiga rætur sínar tónlistarmenn á borð við Guðmund "Papa Jazz" Steingrímsson, Margréti Eir Hjartardóttur og Botnleðju. Þetta er einungis pínulítið brot.
Myndlistarmenn eigum við í bunkum af öllum stærðum og gerðum. Langar mig þó
sérstaklega að nefna eina virtustu myndlistarkonu landsins, Sigrúnu Guðjónsdóttur - Rúnu. Hún var valin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2005. Hún hefur verið í fremstu röð íslenskra myndlistarmanna um árabil. Einnig njótum við myndlistarmanna á borð við Pétur Gaut og Alice Oliviu Clarke.
Það fólk sem ég hef hér nefnt er bara lítið brot af þeim listamönnum sem tilheyra okkur Hafnfirðingum. Þeir eru margir en við verðum að hlúa að þeim og veita þeim þá athygli sem þeir eiga skilið. Við þurfum þeirra hjálp til að efla miðbæinn okkar.
Það vill þannig til að miðbærinn ætti að vera þeirra heimavöllur, Thorsplanið þeirra stúka og Hellisgerðið þeirra frjálsíþróttasvæði. Ásvellir og Kaplakriki eru nefnilega ekki í miðbæjarkjarnanum í Hafnarfirði.


