« Jæja, þá er Icesave líklega búið... | Heim | Vegna framboðs »

Óska eftir 4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði

Hallur_Gudmundsson_web_4s.jpg Hér ætla ég að birta allt það efni sem ég kem til með að senda í blöð og aðra miðla með skrifum mínum í tilefni prófkjörsins sem haldið verður 30. janúar. Í þessum pistli koma helstu grunnupplýsingar.

Ég heiti Hallur Guðmundsson.
Ég fæddist á Höfn í Hornafirði árið 1970, þann 12. júlí. Foreldrar mínir eru Magnhildur Gísladóttir, þroskaþjálfi, og Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur. Stjúpfaðir minn er Þórólfur Árnason, fyrrum verslunarmaður.
Ég er giftur Ásdísi Huld Helgadóttur, bókasafns- og upplýsingafræðingi og eigum við dæturnar Hildi Þóru og Helgu Guðnýju. Ásdís og dætur okkar hafa alla tíð búið í Hafnarfirði.
Við búum miðsvæðis í Hafnarfirði.

Ég fluttist til Hafnarfjarðar 1996 þegar við hjónin höfðum verið saman í þrjá mánuði. Síðan hef ég búið í Hafnarfirði og kæri mig ekkert um að fara neitt aftur.

Ég er með sveinspróf í prentsmíð (hönnun) frá Iðnskólanum í Reykjavík og á að baki nám í Microsoft kerfisstjórnun sem og í notendaaðstoð við Microsoft hugbúnað. Ég er einnig með meirapróf.

Af mínum störfum má nefna að ég ók strætisvagn í tvö ár bæði innan Hafnarfjarðar sem og milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Ég starfaði í eitt og hálft ár hjá EJS við notendaþjónustu en vegna samdráttar þurfti ég að taka pokann minn og leita annað. Ég vann síðan í hálft ár hjá Tækniskólanum – Skóla atvinnulífsins við kerfisþjónustu sem og notendaþjónustu. Þar sótti kreppan að mér og ég varð því frá að hverfa. Enn fremur hef ég reynslu af verslunarstörfum, sendibílaakstri, hönnunarstörfum og félagsmálum.

Ég sat um tíma í umhverfisnefnd Hafnarfjarðar. Í dag sit ég í stjórn Foreldrafélags Kórs Lækjarskóla.

Ég leik á bassa og syng í hljómsveit sem kallast Varsjárbandalagið auk þess að vera meðlimur í Kammerkór Hafnarfjarðar.

Ég hef sinnt ýmsum störfum innan Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og sá um tíma um vefsíðu félagsins. Ég hef tekið að mér að setja upp blöð fyrir félagið og taka myndir.

Það er ósk mín að kjósendur velji mig í fjórða sæti listans því ég tel mig hafa margt fram að færa sem gæti komið bæjarbúum til góða. Þau gæði verða hins vegar tíunduð á dögunum fram að prófkjöri.

Hlakka til að sjá ykkur í prófkjörinu.

Besserwissaðu


Um

Þessi síða inniheldur aðeins eina grein sem rituð var þann 9. janúar 2010 03:03.

Síðasta færsla á þessu bloggi var Jæja, þá er Icesave líklega búið....

Næsta færsla á þessu bloggi er Vegna framboðs.

Margar fleiri er hægt að finna á aðalsíðunni eða með því að þvælast í gegnum gamalt.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 3
Gestir í gær: 8
Þennan mánuð: 55

Færslur: 164
Álit: 260

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme