« Vegna framboðs | Heim | Hvað viljum við og hvað getum við? »

Stefnumálin

Hallur_Gudmundsson_web_4s.jpg Mín stefnumál eru eftirfarandi:
Betrumbætur á tómstundastyrkjakerfinu.
Efling menningar og lista í Hafnarfirði og aukið mannlíf.
Efling þjónustustofnana á borð við söfnin (bóka og byggða)
Gera upp Bæjarbíó og nýta það miklum mun meira.

Útskýringar og rökstuðningur:
Hvað varðar tómstundastyrki þá vil ég meira jafnræði í þeim málum. Styrkirnir eru mjög einbeitt miðaðir við íþróttastarf en margt annað látið fljóta með. Betrumbæturnar sem ég vil gera er að þeir nemar Tónlistarskóla Hafnarfjarðar sem eru innan þess aldurs sem styrkirnir ná til og eru ekki í neinu öðru styrkhæfu tómstundastarfi eigi rétt á niðurgreiðslu til jafns við þá styrki sem fara til íþróttafélaganna. En um leið og viðkomandi hefur skráð sig í aðra tómstundariðju þá falli styrkurinn þangað. Börn eiga rétt á þessu og þetta hlýtur að rúmast þ.a.l. innan fjárheimilda bæjarins.

Efling mannlífs í miðbæjum byggir á því að efla byggðasafn, bókasafn og þjónustu við þá sem koma í bæinn. Til að byrja með mætti fjölga uppákomum í bænum sem þurfa ekki að kosta mikið. Enn fremur vil ég að fyrirtæki sem hefja rekstur í miðbæ Hafnarfjarðar fái einhvers konar ívilnanir til að hvetja þau til að halda sínu striki. Gera þarf upp Bæjarbíó eins og ég sagði. Það þarf að skipta um sæti til að kvikmyndasýningar verði þægilegri. En til að húsið virki sem fjölnotamenningarhús eins og ég vil þá þarf að setja upp lýsingu fyrir sviðið, það þarf að gera búningaaðstöðuna bærilega þar sem hún er ekki neinum bjóðandi eins og staðan er í dag.

Nú spyr vafalaust einhver hvaðan peningarnir eigi að koma. Mér finnst kominn tími á að hætta þessum endalausa peningaaustri í íþróttafélögin. Sveitarfélagið hefur á undanförnum árum veitt þvílíkum fjármunum í uppbyggingu fyrir þá sem eru í íþróttum á meðan listir, menning og menningarstofnanir hafa setið mikið á hakanum. Fjárheimildir flæða í íþróttir meðan menningin þarf að skera niður og það ríflega.

Það ber að geta þess samt að núverandi meirihluti hefur gert vel við íþróttir og staðið vel við bakið á þeim félögum sem eru í Hafnarfirði en lífið snýst ekki bara um íþróttir. Hafnarfjörður á að vera fjölmenningabær en ekki Latibær.

Besserwissaðu


Um

Þessi síða inniheldur aðeins eina grein sem rituð var þann 16. janúar 2010 02:01.

Síðasta færsla á þessu bloggi var Vegna framboðs.

Næsta færsla á þessu bloggi er Hvað viljum við og hvað getum við?.

Margar fleiri er hægt að finna á aðalsíðunni eða með því að þvælast í gegnum gamalt.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 3
Gestir í gær: 8
Þennan mánuð: 55

Færslur: 166
Álit: 260

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme