Heim

Annað Gamalt

Fimmtudagur 28. ágúst 2008

Mikill meistari fallinn frá.

Sigurbjörn Einarsson, biskup, er látinn. Sigurbjörn hefur verið holdgervingur hins góða í Íslensku samfélagi um áratugaskeið. Með honum er horfinn á braut maður sem hafði gríðarlega góða nærveru og mikla útgeislun, jafnvel þó svo hann væri orðinn þetta aldraður, 97 ára. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að herra Sigurbjörn predikaði í skírninni minni austur á Hornafirði 1970. Ég votta öllum ættingjum Sigurbjörns samúð mína. Sigurbjörn lifir áfram í hugum Íslendinga.

Laugardagur 6. september 2008

Að blogga...

Ég var að hugsa um eitthvað áðan sem ég var svo ákveðinn í að skrifa eitthvað skelfilega gáfulegt um en svo auðvitað þurfti ég að gera eitthvað annað og viti menn... ég var búinn að steingleyma því sem ég ætlaði að blogga um... Dæmigert!

Mánudagur 8. september 2008

Yfirlýising

Tilefni gafst til að ég kæmi fram með eftirfarandi yfirlýsingu.

Það skal tekið fram að ég skrifa dálítið glæfralega um sjálfan mig, eiginkonu og börn. Það er allt í góðu og telji einhver að ég sé að niðurlægja konu mína og börn og í raun hvern sem er þá er það mikill misskilningur. Stundum ratast manni rangt orð á munn og fullsterkt en í flestum tilvikum læt ég það standa nema viðkomandi hafi samband við mig og þá geri ég viðeigandi breytingar og ráðstafanir á blogginu.

Ég ítreka að ég segi stundum hluti sem kunna að virðast mjög niðurlægjandi en það er í góðu gríni og ég man ekki til þess að hafa ekki gefið góða ástæðu fyrir því að segja svona hluti en þá í góðu gríni eins og áður segir.

Hafi einhver eitthvað við minn ritstíl að athuga þá má við komandi endilega hafa samband við mig á hallur@mikkivefur.is.

Föstudagur 12. september 2008

Helvítis pestir alltaf hreint

Eftir svaðilfarir sunnudagsins þá lögðust stelpurnar mínar í smá lasleika... líklega hafa þær bara verið svo þreyttar. Ég hins vegar fékk einhvern óþverra á mánudaginn og mætti því ekki í vinnu á þriðjudag og miðvikudag. Á fimmtudag mætti ég en fór heim um hádegi. Ég mætti svo í dag og vona að ég tóri daginn.
PASSIÐ YKKUR Á PESTINNI!

Miðvikudagur 24. september 2008

Þreyttur

Djöfull er ég þreyttur þessa dagana... enda er brjálað að gera hjá mér.

Þriðjudagur 30. september 2008

Vísa gærdagsins

Í gær birtist á vefsvæði einu vísa sem mér fannst mjög smellin. Höfundur kallar sig hlewagastiR.

Melding

Hlýði fólk á mína melding:
í morgun laust hér niður elding.
Okkar býður ógn og gelding.
Undirritað: Lárus Welding.

Ég vona að ég hafi mátt birta þetta...

Föstudagur 3. október 2008

Sjávarútvegssýningin

inj.jpg
Ég þurfti vinnu minnar vegna að skreppa á sjávarútvegssýninguna með dót vegna vinnunnar. Á bás Tækniskólans er m.a. skiphermir sem fólki gefst kostur á að prófa.

Á bás D40 er tengdapabbi með fyrirtækið sitt, Atlas. Þar var myndin hér að ofan tekin. Þarna er verið að mála nakta konu. Ég hvet ykkur endilega til að fara á sýninguna og skoða m.a. þessar dömur sem verið er að mála.

Um Annað

Þessi síða inniheldur skrá yfir allar færslur skráðar á Urr í Annað flokkinum.

Almennt urr er flokkurinn á undan.

Grín urr er næsti flokkur.

Margar fleiri er hægt að finna á aðalsíðunni eða með því að þvælast í gegnum gamalt.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 5
Gestir í gær: 6
Þennan mánuð: 49

Færslur: 46
Álit: 103

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme