Heim

Grín urr Gamalt

Þriðjudagur 26. ágúst 2008

maaaatur

Jæja... ætli það sé ekki best að fá sér í gogginn

Mánudagur 8. september 2008

Yfirlýising

Tilefni gafst til að ég kæmi fram með eftirfarandi yfirlýsingu.

Það skal tekið fram að ég skrifa dálítið glæfralega um sjálfan mig, eiginkonu og börn. Það er allt í góðu og telji einhver að ég sé að niðurlægja konu mína og börn og í raun hvern sem er þá er það mikill misskilningur. Stundum ratast manni rangt orð á munn og fullsterkt en í flestum tilvikum læt ég það standa nema viðkomandi hafi samband við mig og þá geri ég viðeigandi breytingar og ráðstafanir á blogginu.

Ég ítreka að ég segi stundum hluti sem kunna að virðast mjög niðurlægjandi en það er í góðu gríni og ég man ekki til þess að hafa ekki gefið góða ástæðu fyrir því að segja svona hluti en þá í góðu gríni eins og áður segir.

Hafi einhver eitthvað við minn ritstíl að athuga þá má við komandi endilega hafa samband við mig á hallur@mikkivefur.is.

Miðvikudagur 1. október 2008

Spaugileg mótsögn

Glitnir.gif
Ég rakst á þetta á www.mbl.is og skellti upp úr.

Þriðjudagur 14. október 2008

Breytingar á bankamarkaði

Nú hafa orðið miklar breytingar á bankamarkaði og ríkið neyðst til að yfirtaka alla stóru bankana. Í kjölfarið var ákveðið að breyta merkjum bankanna...

Glitnir
Kaupthing
Landsbankinn

Fimmtudagur 16. október 2008

Hvaða trölli stal jólunum?

trolli1.jpgtrolli2.jpg
Tilviljun? Ég veit það ekki...

Fimmtudagur 23. október 2008

Kreppuspé

Djók sem ég stal af martasmarta.blog.is

Hvernig skilgreinir þú bjartsýni í dag?
Bankastarfsmaður sem straujar fimm skyrtur á sunnudegi.


Afhverju eru fasteignasalar hættir að horfa út um gluggan fyrir hádegi?
Svo þeir hafi eitthvað að gera eftir hádegið.

Hver er munurinn á stjórnenda fjárfestingarbanka og dúfu?
Dúfan getur enn sett mark sitt á Ferrari-bíl.

Fjármálakreppan hefur komið mér aftur á lappirnar.
Það er búið að taka af mér bílinn.

Hvað segir þú við forstjóra vogunarsjóðs sem getur ekki selt neitt?
Ég ætla að fá einn Big Mac með frönskum.

Á bar í Wall Street: "Þessi fjármálakreppa er verri en skilnaður.
Ég haf tapað helmingi eigna minna en sit samt uppi með konuna.

Maður kemur að máli við bankastjóra sinn og segist vilja stofna smáfyrirtæki. Hvernig geri ég það?
"Einfalt," segir bankastjórinn. "Þú kaupir stórfyrirtæki og bíður svo aðeins.

Átak gegn bretum

Búið er að opna vefsíðu sem flytur umheiminum sannar fréttir af Íslandi en ekki eins og falsmiðlarnir mbl.is, visir.is, ruv.is og allir hinir. Þessi vefur heitir http://newiceland.net/.

Í framhaldinu legg ég til að Íslenskir tónlistarmenn sem hyggja á útrás hætti að yrkja á Ensku og fari að yrkja á Norsku, Dönsku, Sænsku, Finnsku, Færeysku, Grænlensku, Þýsku, Frönsku, Swahili, Zulumáli, Afrikaans, Serbnesku, Tékknesku, Flæmsku (ekki samt Hollensku því Noord Holland er búið að taka veð í annarri rasskinninni á Björgólfi Thor) og fleiri vinveittum málum. Gott er að eiga í bakhöndinni alla texta á öðru máli ef ske kynni að lönd skyldu fara í einhverja fýlu við okkur.

Laugardagur 25. október 2008

Tær snilld!

backup.jpg
---

Vísunin á myndina bilaði þannig að ég varð að laga...

Þriðjudagur 28. október 2008

Og eru menn hissa?

Rakst á þetta á mbl.is
andar köldu
Sko, auðvitað andar köldu þegar það er vetrarhátíð!

Fimmtudagur 26. mars 2009

Netmannavalsinn

Ég orti þetta um daginn eftir að Ásdís henti fram setningunni ÞAÐ GEFUR Á SÆSTRENG VIÐ SKOTLAND. Það eru rangir stuðlar í því þannig að ég breytti aðeins og svo vall þetta upp úr mér á hálftíma.

það gefur á sæstreng við Grænland
og gögnin þau komast ei neitt
en ekkisens hábölvað helvíti er
að haf'ekki reikninginn greitt

En fælar sem fljúga í austur
þeir finnast á vefsvæð'á mön
og sóttir þeir verða af sóðunum þeim
er síst hefur vaxið á grön

Sæktu vefsíður heim, sæktu vefsíður heim
og vírusinn hann fylgir með
Sæktu vefsíður heim, yfir hafið og heim
og hiti úr routernum rís...

Mánudagur 4. maí 2009

Einn góður í upphafi vikunnar...

Jónas 92 ára og Magga 89 ára búa á Grund og eru upp með sér að hafa ákveðið að gifta sig Þau fara í smá gönguferð til að ræða brúðkaupið og á leiðinni fara þau fram hjá Apóteki Austurbæjar. Jónas stingur upp á því að þau kíki þar inn, sem þau og gera.

Jónas heilsar manninum við afgreiðsluborðið og spyr hann hvort hann sé eigandinn. Maðurinn segir svo vera.

Jónas: Við erum að fara að gifta okkur. Selurðu nokkuð hjartalyf?
Apótekari: Að sjálfsögðu
Jónas: Hvað með blóðrásarlyf?
Apótekari: Allar tegundir
Jónas: Hægðalosandi?
Apótekari: Auðvitað
Jónas: Þarmaflóruleiðréttandi?
Apótekari: allar gerðir
Jónas: Lyf gegn minnistapi, elliglöpum og Alzheimer?
Apótekari: Mesta úrvalið í bænum!
Jónas: Hvað með vítamín, svefntöflur, tannlím og lyf sem slá á Parkinsons?
Apótekari: Jú, vissulega, allt af þessu... þetta er nú apótek.
Jónas: Lyf við brjóstsviða, bakflæði, þvagleka og saurleka?
Apótekari: Jú, allt við þessu
Jónas: En hjólastóla, hækjur, stafi, göngugrindur og svoleiðis?
Apótekari: Jú, allar stærðir og kraftmestu tækin.
Jónas: Fullorðins bleyjur?
Apótekari: Jamm
Jónas: Heyrðu, þá ætlum við að vera með gjafalistann okkar hjá þér...

Mánudagur 7. desember 2009

Jólin nálgast...

Þegar jólasveinarnir fara að þramma til byggða þá ætla ég að birta vísur Jóhannesar úr Kötlum um þá sveina ásamt vel völdum myndum. Fylgist spennt með.

Föstudagur 11. desember 2009

Jólasveinarnir - formáli

Á morgun birtist fyrsti jólasveinninn. Eins og ég hef áður sagt mun ég birta daglega brot úr jólasveinavísum Jóhannesar úr Kötlum ásamt myndum. Myndirnar held ég að komi á óvart. En sjáum hvað setur... En vísurnar um jólasveinana eru ekki bara um þessar sem þekktastar eru heldur er upphaf og endir á vísnabálki þessum og hér ætla ég að birta formálann að upptalningunni.

Jólasveinavísur

Segja vil ég sögu
af sveinunum þeim,
sem brugðu sér hér forðum
á bæina heim.

Þeir uppi á fjöllum sáust,
-eins og margur veit,
- í langri halarófu
á leið niður í sveit.

Grýla var þeirra móðir
og gaf þeim tröllamjólk,
en pabbinn Leppalúði,
-það var leiðindafólk.

Þeir jólasveinar nefndust,
-um jólin birtust þeir,
og einn og einn þeir komu,
en aldrei tveir og tveir.

Þeir voru þrettán
þessir heiðursmenn,
sem ekki vildu ónáða
allir í senn

Að dyrunum þeir læddust
og drógu lokuna úr.
Og einna helst þeir leituðu
í eldhús og búr.

Lævísir á svipinn
þeir leyndust hér og þar,
til óknyttanna vísir,
ef enginn nærri var.

Og eins, þó einhver sæi,
var ekki hikað við
að hrekkja fólk
- og trufla þess heimilisfrið.

 

Úr Jólasveinavísum Jóhannesar úr Kötlum.
Framsetning efnis og mynda skal líta á sem góðlátlegt sprell

Laugardagur 12. desember 2009

Stekkjastaur

Skuli-Helgason.jpg

Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
-þá varð þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
-það gekk nú ekki vel.

 

Úr Jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum

 

Þessa framsetningu ber að líta á sem góðlátlegt sprell
En engin pólitísk hugsun er á bak við myndavalið.

 

Sunnudagur 13. desember 2009

Giljagaur

Thrainn-Bertelsson.jpg

Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
-Hann skreið ofan úr gili
og skaust í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.

 

Úr Jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum

 

Þessa framsetningu ber að líta á sem góðlátlegt sprell
En engin pólitísk hugsun er á bak við myndavalið.

 

Mánudagur 14. desember 2009

Stúfur

Thor-Saari.jpg

Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.

 

Úr Jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum

 

Þessa framsetningu ber að líta á sem góðlátlegt sprell
En engin pólitísk hugsun er á bak við myndavalið.

 

Þriðjudagur 15. desember 2009

Þvörusleikir

Birgir-Armannsson.jpg

Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.

 

Úr Jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum

 

Þessa framsetningu ber að líta á sem góðlátlegt sprell
En engin pólitísk hugsun er á bak við myndavalið.

 

Miðvikudagur 16. desember 2009

Pottaskefill

Siv-Fri%F0leifsdottir.jpg

Sá fimmti Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
-Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku’upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti’ ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.

 

Úr Jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum

 

Þessa framsetningu ber að líta á sem góðlátlegt sprell
En engin pólitísk hugsun er á bak við myndavalið.

 

Fimmtudagur 17. desember 2009

Askasleikir

Gudfridur-Lilja-Gretarsdottir.jpg

Sá sjötti Askasleikir,
var alveg dæmalaus.
- Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.

 

Úr Jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum

 

Þessa framsetningu ber að líta á sem góðlátlegt sprell
En engin pólitísk hugsun er á bak við myndavalið.

 

Föstudagur 18. desember 2009

Hurðaskellir

Johanna-Sigurdardottir.jpg

Sjöundi var Hurðaskellir,
-sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.

 

Úr Jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum

 

Þessa framsetningu ber að líta á sem góðlátlegt sprell
En engin pólitísk hugsun er á bak við myndavalið.

 

Laugardagur 19. desember 2009

Skyrjarmur

Sigmundur-David-Gunnlaugsson.jpg

Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o’n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
uns stóð hann á blístri
og stundi og hrein.

 

Úr Jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum

 

Þessa framsetningu ber að líta á sem góðlátlegt sprell
En engin pólitísk hugsun er á bak við myndavalið.

 

Sunnudagur 20. desember 2009

Bjúgnakrækir

Tryggvi-Thor-Herbertsson.jpg

Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.

 

Úr Jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum

 

Þessa framsetningu ber að líta á sem góðlátlegt sprell
En engin pólitísk hugsun er á bak við myndavalið.

 

Mánudagur 21. desember 2009

Gluggagægir

Atli-Gislason.jpg

Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.

 

Úr Jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum

 

Þessa framsetningu ber að líta á sem góðlátlegt sprell
En engin pólitísk hugsun er á bak við myndavalið.

 

Þriðjudagur 22. desember 2009

Gáttaþefur

Alfheidur-ingadottir.jpg

Ellefti var Gáttaþefur
-aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.

 

Úr Jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum

 

Þessa framsetningu ber að líta á sem góðlátlegt sprell
En engin pólitísk hugsun er á bak við myndavalið.

 

Miðvikudagur 23. desember 2009

Ketkrókur

Arni-Pall-Arnason.jpg

Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag.
- Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.

 

Úr Jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum

 

Þessa framsetningu ber að líta á sem góðlátlegt sprell
En engin pólitísk hugsun er á bak við myndavalið.

 

Fimmtudagur 24. desember 2009

Kertasníkir

Arni-Johnsen.jpg

Þrettándi var Kertasníkir,
-þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.

 

Úr Jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum

 

Þessa framsetningu ber að líta á sem góðlátlegt sprell
En engin pólitísk hugsun er á bak við myndavalið.

 

Föstudagur 25. desember 2009

Jólasveinarnir - eftirmáli

althingishus.jpg

Á sjálfa jólanóttina,
-sagan hermir frá,
- á strák sínum
þeir sátu og störðu ljósin á.

Svo tíndust þeir í burtu,
-það tók þá frost og snjór.
Á Þrettándanum
síðasti sveinstaulinn fór.

Fyrir löngu á fjöllunum
er fennt í þeirra slóð.
-En minningarnar breytast,
í myndir og ljóð.

 

Úr Jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum

 

Þessa framsetningu ber að líta á sem góðlátlegt sprell
En engin pólitísk hugsun er á bak við myndavalið.