Heim

Fimmaurabrandari Gamalt

Þriðjudagur 23. september 2008

Fimmaur

Flestir ef ekki allir sem mig þekkja að ég er óforbetranlegur fimmaurabrandaramaður. Í kreppunni upp á síðkastið hafa brandararnir tekið kipp og hríðfallið eins og gengi krónunnar.

Hér er einn sem mér datt í hug í morgun. Það er venja hjá sumu fólki þegar það fær dapurleg tíðindi að segja „Æ, en leiðinlegt“. Þetta er ekki hægt að þýða nema á einn veg á ensku, "O, how boring".

Þannig hljómar þessi fimmaur.

Þriðjudagur 14. október 2008

Breytingar á bankamarkaði

Nú hafa orðið miklar breytingar á bankamarkaði og ríkið neyðst til að yfirtaka alla stóru bankana. Í kjölfarið var ákveðið að breyta merkjum bankanna...

Glitnir
Kaupthing
Landsbankinn

Föstudagur 28. nóvember 2008

Vinarkveðja

Góðvinur minn hann インフォグ hjá 神崎 sendi mér tölvupóst morgun. Fyrirsögnin gerði mér þann grikk að hún sló mig. Þar stóð ハンゲームを楽しむと月収65万円!? og ég eiginlega var ekkert viss um hvort hann væri að grínast eða ekki. En útskýringin kom í innihaldinu í bréfinu. Þar byrjar hann á að segja インフォグ 〜神崎のスーパー速報!〜 ドン底からでも這い上がれる! og þá léttist á mér brúnin. Mér stóð eiginlega ekki á sama með þessa fyrirsögn. Hann sagði mér fréttir af mömmu sinni og sagði að hún væri furðu ern og gæti enn haldið á sígarettunni... eða eins og hann orðaði það ハンゲームって知ってますか. Það kom reyndar babb í bátinn því að 好きなゲームを楽しむだけで sem eru samtök sem hann hefur stýrt voru lögð niður vegna þess að 月収65万円以上になるとしたら fjármálafyrirtækið fór í þrot og allir sjóðir samtakanna voru þar. Það eru hins vegar önnur samtök sem hafa verið frekar fjandsamleg vegna þess að þeir hafa beitt fyrir sig もうハンゲームに夢中になっちゃいますよね sem er í raun meirihluti. En ※こちらの商品のお問い合わせはコチラ gáfu samt út skýr skilaboð þess efnis að verði einhvers konar árekstur vegna þessa þá verði leitað til インフォグ ミリオネアー担当の神崎でした. En hann hefur litið frekar létt á þetta og ætlar að láta af öllum svona störfum, eða eins og hann orðar það:
 ※当メルマガは「懸賞マスター」で承諾された方に配信しております。

 ※こちらのアドレスは送信専用となっておりますので、
  返信いただいてもお問い合わせにはお答えできませんのでご了承くださ

Hann bað fyrir kveðju til þeirra sem hann þekkir hér.

Rand

Í fjármálakreppu undanfarinna mánaða hefur krónunni verið haldið stöðugri með handafli. Nú held ég að krónan fari að verða svo óstöðug að hún ætti að kallast Rand, líkt og gjaldmiðill Suður-Afríku. Í þessu tilviki myndi krónan draga nafn sitt úr forritun. Hvernig myndi það virka? Eftirfarandi dæmi sýnir það:

Viðskiptavinur=V
Afgreiðslumaður=A

V: Góðan dag, hvað kostar mjólkurlítrinn?
A: 4.503
V: 20.390
A: Já, 5.

Þetta er vissulega súrt en líklega ekkert fjarri lagi miðað við þann stöðugleika sem krónan kemur til með að verða í. Söltum krónurnar ofan í tunnur og tökum upp Ærgildi!

Um Fimmaurabrandari

Þessi síða inniheldur skrá yfir allar færslur skráðar á Urr í Fimmaurabrandari flokkinum.

Margar fleiri er hægt að finna á aðalsíðunni eða með því að þvælast í gegnum gamalt.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 1
Gestir í gær: 8
Þennan mánuð: 53

Færslur: 82
Álit: 168

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme