Heim

Íþrótta urr Gamalt

Föstudagur 22. ágúst 2008

Norrænir hnefaleikar með og án atrennu - undanúrslit

Í dag horfði ég á norræna hnefaleika í sjónvarpinu. Þar voru boxarar frá Spáni teknir í trompetinn af Íslenskum boxurum. Blessaðir drengirnir hafa nú öðlast hærri stall í þjóðarsálinni en Gunnar á Hlíðarenda, Njáll á Bergþórshvoli, Gísli Súrsson og jafnvel Geir Ólafsson.

En svona án gríns þá þykir mér mjög gaman að vera sófasportisti og glápa á nokkra menn á nærfötunum henda milli sín bolta og líka þegar þeir fara að sparka honum. Leikurinn í dag var alveg frábær og ég hef aldrei séð íslenskt handboltalandslið leika svona vel. Á sunnudaginn er svo úrslitaleikurinn á ókristilegum tíma og verður þá öll þjóðin líklega límd við skjáinn að glápa. Ég ætla alla vega að reyna að vera ekki of fullur á laugardagskvöldið svo ég geti horft með góðri samvisku... eða kannski ekki orðinn edrú... eða eitthvað.

Áfram Ísland!

Mánudagur 25. ágúst 2008

Fálkaorðan fyrir að sprikla á náttfötunum?

Nú hafa allir fengið að prófa að vera borgarstjórar nema ég og á miðvikudaginn verða allir nema ég búnir að fá fálkaorðuna. Jújú, þessir menn léku sér og fengu verðlaun fyrir. Ég fór oft í kappakstur með Matchboxbílana mína í gamla daga og vann frænda minn. Ég fékk aldrei verðlaun fyrir, ekki einu sinni fálkaorðu.

Miðvikudagur 17. desember 2008

Qatar og Lýbía

fifa.gif
Jæja... þá er kominn nýr FIFA listi og við erum aldeilis í góðum félagsskap á þeim lista. Við erum komin í 83. sætið og erum á sömu slóðum og Qatar og Lýbía. Væri ekki ráð að leggjast í landsleikjaferðalög og skora á þessi lið? Mér finnst alltaf gaman að sjá hvar við í raun erum á heimslistanum á móti því hvað landsliðið okkar er rosalega mistækt. Gengi landsliðsins er svolítið eins og gengi krónunnar... sveiflast upp og niður eins og jójó.

Um Íþrótta urr

Þessi síða inniheldur skrá yfir allar færslur skráðar á Urr í Íþrótta urr flokkinum.

Grín urr er flokkurinn á undan.

Pólitískt urr er næsti flokkur.

Margar fleiri er hægt að finna á aðalsíðunni eða með því að þvælast í gegnum gamalt.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 3
Gestir í gær: 4
Þennan mánuð: 59

Færslur: 89
Álit: 179

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme