Heim

Pólitískt urr Gamalt

Föstudagur 5. september 2008

Þarf silfurverðlaun?

Hvernig er það eiginlega, þarf að veita ljósmæðrum einhvers konar silfurverðlaun til þess eins að ríkisstjórnin meti þær að einhverjum verðleikum? Nóg var nú ausið í nokkra kalla sem leika sér í vinnunni þegar þeir komu frá Kína!

Miðvikudagur 17. september 2008

Evran á 135

Andskotanshelvítisdjöfulsins hagstjórnardjöfulsinshelvítisfábjánar. Þeir sem eru að stunda viðskipti við útlönd eru á góðri leið í gjaldþrot ef þeir eru á annað borð ekki farin þangað. Djöfull er ég feginn að ég hætti við að fara út í bissniss.

Miðvikudagur 24. september 2008

Kjánahrollur

Geir Hilmar Haarde, forsætisráðherra Íslands varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að loka NASDAQ markaðnum í kvöld. Hann var voða montinn og rogginn með þetta allt saman og virtist vera mjög snortinn af heiðrinum. Veistu... ég fékk alveg skelfilegan kjánahroll við þetta. Þetta var einhver mesti kjánahrollur sem ég hef fengið í áraraðir... eiginlega sá mesti síðan Ingvi Hrafn Jónsson las vísur eftir sjónvarpsáhorfendur meðan beðið var eftir Reigan og Gorbatsjoff hér um árið. Að fá að loka NASDAQ í lok dags finnst mér álíka merkilegt og ef Jói á hjólinu fengi að loka McDonalds í Kringlunni í lok dags og hananú!

P.S. Reyndar vil ég biðja Jóa á hjólinu afsökunar ef ég móðga hann með þessu.

Föstudagur 26. september 2008

Evran

Í dag klukkan 14:41 var staða Evrunnar eftirfarandi:
Kr. 140,902400 og Dollarinn var 96,200000

Sama dag árið 2007:
87,984000

2006:
89,006100

2005:
75,792700

2004:
87,742700

2003:
88,901200

2002:
85,845100

2001:
93,632000 - sama dag var dollarinn 101,360000

Það er eitthvað verulega mikið að núna, það hafa allir séð það. Davíð Oddsson heldur samt að það sé enn góðæri og Geir Haarde þorir ekki að trúa öðru. Hefur læknir kannað viðbragðsflýti þessara manna?

Mánudagur 29. september 2008

Glitnir ríkisbanki

Glitnir hét eitt sinn Íslandsbanki. Íslandsbanki var sameining Alþýðubanka, Verslunarbanka, Útvegsbanka og Iðnaðarbanka. Nú er ég ekki klár á því hvort þessir litlu, gömlu, bankar voru einkareknir að öllu leiti eða að hluta en þarna hefur verið fyrirtæki sem fólk hefur litið upp til sem fyrirmyndareinkafyrirtækis. Nú hefur heldur betur harnað á dalnum og nú súpa landsmenn seyðið af fjármálafylleríi Glitnis. Mér þykir líklegt að Glitnir hafi tekið hvað mesta áhættu til að halda sjó og sú áhætta hafi ekki skilað sér sem skyldi og því fór sem fór. Vonandi verður sú aðgerð Seðlabanka að leggja 84 milljarða til rekstursins til þess að laga ástandið eitthvað á hlutabréfa- og gjaldeyrismarkaði hérlendis. Mér finnst það líklegt að aðrir bankar fari fram á einhvern stuðning en þó er það ekkert víst. Lárus Welding fékk um leið mikla traustsyfirlýsingu með því að fá beiðni um að halda starfi sínu áfram sem bankastjóri. En hvað gerist nú? Jójóið er á fullri ferð og er líklega enn á leiðinni niður.

Fyrir all nokkru síðan bloggaði ég á moggablogginu mínu um að við þyrftum hið snarasta að ganga í ESB og taka upp Evruna á meðan ástandið væri bærilegt. Ég fékk skít og skömm fyrir þau ummæli þar sem menn sögðu að það yrði ekki hörð lending. Ef þetta er ekki hörð lending þá skal ég hundur heita. Ef við hefðum farið í aðildarumræður og farið alla leið þá hefði ástandið ekki orðið svona slæmt og við værum ekki að kaupa banka.

Hvar eru peningamennirnir núna?

Hvar eru allir þessir nafntoguðu peningamenn sem hafa verið að kaupa allt og ömmur þeirra upp á síðkastið? Varð þeim allt í einu skotaskuld úr því að fjármagna bankakerfið?

Enn um Glitni

Hefur einhver velt því fyrir sér að ríkisstjórnin hefur þráfaldlega hafnað því að taka upp evruna og ekki viljað ganga í ESB. Ríkisstjórnin má ekki heyra minnst á evruna og ekki má gera neitt við þann pening hér á landi. Svo á að bjarga Glitni og ríkisstjórnin kaupir 75 - 85% (þær upplýsingar eru á reiki) með því að leggja fram 600 milljónir EVRA... Þá er í lagi að nota evrur.

Þriðjudagur 7. október 2008

Rússar koma í veg fyrir Sovétástand?

Nú hefur Vladimir Putin staðfest að Rússar ætli að lána Íslenska ríkinu helvítis helling af peningum. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að Ísland þurfi að skipta um kennitölu og flytjast úr landi. Það má eiginlega segja að Rússar séu að bjarga Íslandi frá því að lenda í eins konar Sovétástandi skömtunar og eymdar. Húrra fyrir Rússum.

Djöfulsins drulluhalar og dusilmenni...

...eru orð sem fallið hafa undanfarið í garð ríkisstjórnar, seðlabankastjóra og fyrrverandi auðjöfra. Nú þegar þetta er allt komið upp á yfirborðið þá held ég að þessir menn séu hreinlega að gera eins og Geir Haarde sagði í gær, bjarga landinu úr öldurótinu og forða okkur frá þjóðargjaldþroti. Bíðum nú með gífuryrðin og leyfum þeim að reyna að bjarga okkur í friði. Ég veit að ég hef ekkert verið að vanda þeim kveðjurnar en vandinn er stærri en svo að einn aumur bloggari geti kallað þá illum nöfnum. Það gæti jafnvel haft betri áhrif að reyna að beita jákvæðninni á þetta allt saman. Bermudaskálarbrosið ætti að duga í bili. Verum ánægð meðan það er ekki stríð á Íslandi og í raun ekki styrjaldarástand í Evrópu. Ef svo væri þá gætum við allt eins kysst land og þjóð bless.

Fokkjú??!?

Nú er Össur farinn að hafa stór orð um ammríkanana... Í frétt á Vísi segir hann að kaninn hafi sýnt okkur fingurinn.

Össur... segir Bandaríkjamenn hafa sýnt Íslendingum fingurinn þegar leitað hafi verið eftir aðstoð bandarískra stjórnvalda

Nú bíðum við bara eftir að Geir svari þeim með orðunum BÍTTÍÐIG!

Fimmtudagur 9. október 2008

Ágúst Ólafur of yfirlýsingaglaður?

Ágúst Ólafur Ágústsson lýsti því yfir í fréttum, greinilega í uppnámi, að nú ætti öll bankastjórn Seðlabankans að segja af sér. Maður spyr sig hvort þetta sé réttmæt krafa eða hvort hann sé bara að skjóta sig í fótinn. Seðlabankastjórar reyna hvað þeir telja að sé best fyrir þjóðina en um leið hlýtur maður að draga í efa hvort þeir hafi gert það sem er rétt í raun og veru. Það verður gaman að fylgjast með því hvort Ágúst verður flæmdur burt eða hvort hann verði hafinn upp til meiri metorða. Með þessum ummælum tel ég að hann sé að stefna stjórnarsamstarfinu í stórhættu og við megum síst við stjórnmálakreppu í miðri fjármálakreppu.

Fífl og dóni...

Er Helgi Seljan fífl og dóni eða er Geir Haarde að missa stjórn á sér?

Fokið í flest skjól hjá Davíð Oddssyni?

Á blaðamannafundum undanfarið hafa fréttamenn ítrekað spurt bæði forsætis- og viðskiptaráðherra hvort bankastjórn Seðlabankans njóti enn trausts ríkisstjórnarinnar og ráðherrarnir hafa báðir eytt því tali án þess að segja af eða á. Magnaður andskoti.

Föstudagur 10. október 2008

Ný bankastjórastefna

Nú hefur kona verið ráðin sem bankastjóri Landsbankans hins nýja og allt bendir til þess að kona verði ráðin sem bankastjóri Glitnis. Nú bíðum við eftir því að tilkynnt verði að kona verði bankastjóri Kaupþings... Hreiðar Már er reyndar kellingalegur en samt ekki kona. En verði kona ráðin í Kaupþingi líka þá má leiða líkur að því að þróunin verði eins og í öðrum stéttum... þegar konur komast í meirihluta þá endar það sem láglaunastétt. Það hlýtur að vera stefna stjórnvalda til að eiga fyrir skuldum.

Laugardagur 11. október 2008

Útrásarkórinn

Davíð Oddsson sagði í Kastljósi um daginn að hann hefði aldrei sungið í þessum útrásakór sem hefur nú valdið því að viðskiptaveldið Ísland er hrunið, Það hafa margir vitnað í þetta og hneykslast á þessu. Það vita það allir eins vel og ég að Davíð sagði satt. Hann söng ekki Í útrásarkórnum... hann söng sóló með honum!

Þriðjudagur 14. október 2008

...á stærð við Coventry

Góðvinur minn, Snorri Hergill Kristjánsson sem starfar sem uppistandari í London ræddi við fréttamann Sky News á föstudaginn um efnahagsmál...

715

Nú er úrvalsvísitalan orðin 715 stig. Hún var rétt yfir 3000 stigum á miðvikudaginn þegar kauphöllin kviklæstist. Hvað gerist næst? Verður úrvalsvísitalan í mínus? Hvaða fyrirtæki eru eftir í téðri vísitölu eftir að bankarnir fóru til ríkisins? Einhverjar fréttir voru af því að einhver fyrirtæki hefðu lækkað aðeins í kauphöllinni... HVERNIG ER ÞAÐ HÆGT? Í Asíu, Evrópu og Ameríku hafa vísitölur tekið kipp upp á við en hér er allt á niðurleið. Gleymdist að setja mýkingarefni í vísitölurnar okkar?

Breytingar á bankamarkaði

Nú hafa orðið miklar breytingar á bankamarkaði og ríkið neyðst til að yfirtaka alla stóru bankana. Í kjölfarið var ákveðið að breyta merkjum bankanna...

Glitnir
Kaupthing
Landsbankinn

Miðvikudagur 15. október 2008

Ósammála

Nú er ég alveg bit á flokkssystkinum mínum. Það er gott og blessað að ætla sér í fyllingu tímans að ganga í ESB og taka upp Evruna en hvers vegma í grámygluðum glassúrsnúðum eru þá Samfylkingarliðar að keppast við það að tala niður krónuna? Við fáum ekki Evruna fyrr en krónan er komin í lag... já og við komin í ESB. Norska krónan er bara ávísun á vandamál!

Fimmtudagur 16. október 2008

Hvaða trölli stal jólunum?

trolli1.jpgtrolli2.jpg
Tilviljun? Ég veit það ekki...

Föstudagur 24. október 2008

Sökudólgur óskast

Þessi spöku orð runnu upp úr barka Björns Jörundar Friðbjörnssonar hér um árið. Þetta er eiginlega lýsandi fyrir ástandið á hálfri þjóðinni í dag. Á kaffistofum og fundarstofum rífast menn um hvort Geir beri ábyrgð eða Ingibjörg já eða Guðni. Davíð Oddsson nefndi það fyrstur manna að sökudólgana skyldi finna.

Hljómar vel... en...

Á útvarpi Sögu er ágætis spjall milli 9 og 11 á föstudögum. Þar eru Guðmundur Ólafsson hagfræðingur og Sigurður G. Tómasson Íslenskufræðingur að ræða um þjóðmálin. Þeir hafa komist að þeirri niðurstöðu að Davíð sé að leita að litlum grænum köllum sem komu þessu af stað. Í morgun varð niðurstaðan sú að það sé bara einn lítill grænn kall og hann er að leita að sjálfum sér.

Ég get alveg fallist á þetta. En samt þarf fleiri til að svona geti gerst. Það var nefnilega að koma tvennt í ljós í morgun. Annars vegar að einn lítill grænn aukakall sagði ekki alveg satt og að ein lítil græn ríkisstjórn setti Íslendinga sem fordæmi fyrir komandi skell.

Með öðrum orðum, Davíð leitar að blóraböggli og Bretar hafa þegar gert Íslendinga að Blórabögglum. Magnaður andskoti. Af hverju geta menn ekki reynt að laga ástandið í stað þess valda skaða hver á öðrum?

Miðvikudagur 29. október 2008

Hef nú sagt þetta all lengi...

Yfirlýsing um umsókn að ESB kemur til með að styrkja efnahagsástandið verulega. Þetta má lesa í frétt á Vísi.is samkvæmt orðum Greiningar Glitnis. ESB og Evran geta bjargað miklu!

Verða þetta ömurlegustu jól í manna minnum?

Svei mér þá ef þetta verða ekki einhver döprustu jól sem Íslendingar hafa upplifað. Gríðarlega margir hafa fengið uppsagnir og vita nákvæmlega ekkert hvað bíður þeirra handan við áramótin. Þetta er hreint skelfilegt ástand. Nú held ég að ríkisstjórnin verði að fara að tilkynna viðræður við ESB um aðild og að stefnt sé að upptöku Evru. Ef það gerist ekki þá stefnir þjóðin í áratuga kreppu. Ég nenni ekki að búa við svoleiðis ástand!

Fimmtudagur 30. október 2008

Frægasta landi í heimi?

Nú keppast allir við að fjalla um Ísland frá öllum köntum. Sigur-Rós, Björk, Bláa lónið hafa verið mikið í umræðunni erlendis undanfarin ár en í dag eru það ABC - umfjöllun... Airwaves, Bankar, Crisis (kreppa). Dætur mínar báðar orðnar frægar erlendis fyrir að vera á myndum á www.indefence.is og ég er svei mér að hugsa um að setja mynd af mér þar líka... ég gæti kannski oriðið frægur fyrir vikið og halað inn tekjur til að eiga frekar fyrir skuldunum.

Ein pæling

Ég hlustaði á Ármann Jakobsson í morgun á rás 2 og hann var með dálítið merkilega kenningu varðandi bankakerfið. Hann sagði að ráðgjafar í bönkunum væru í raun ekki þjónustufulltrúar sem bæru hag þinn 100% fyrir brjósti heldur sölumenn sem reyndu allt hvað af tók að koma fólki í viðskipti við bankann með allt sem ekki var þar. Maður fer virkilega að spá í þetta núna. En það ber kannski í bakkafullan lækinn við að maður nöldri þetta. Nóg hafa óbreyttir bankamenn þurft að þola í þessu ástandi. Ég held að ráðgjafarnir og þjónustufulltrúarnir hafi hreinlega trúað þessu sjálfir og því ráðlagt eftir bestu vitneskju og samvisku. Ég er á því að fólk eigi að koma við í bankanum og brosa framan í óbreytta starfsfólkið og með því jafnvel reyna að láta því líða ögn betur.

Mánudagur 3. nóvember 2008

Glæfraleg ummæli eða rökrétt yfirlýsing?

Samfylkingin sendi frá sér yfirlýsingu um daginn þess efnis að flokkurinn lýsti vantrausti á núverandi bankastjórn Seðlabankans. Þá spyr maður sjálfan sig óneitanlega hvort þetta hafi verið glæfraleg ummæli eða rökrétt yfirlýsing. Ég hef lengi verið á þeirri skoðun að Seðlabankastjórnin ætti að fara frá en það kann að hljóma undarlega þegar ég segi að þessi yfirlýsing Samfylkingarinnar sé glæfraleg í meira lagi. Það er allt í lagi að rugga bátnum aðeins en að leggja hann á hliðina er gjörsamlega út úr öllu korti miðað við ástandið. Ég varð virkilega hissa á félögum mínum að gera þetta. Þetta hefði mátt koma fram í reykmettuðum bakherbergjum en ekki opinberlega!

Þriðjudagur 11. nóvember 2008

Bjarni setur öflugt fordæmi.

Bjarni Harðarson lét frá sér mjög óvarlega hluti í gær. Viðbúið var að mikið írafár yrði út af póstsendingu Bjarna og því tók hann rétta ákvörðun og var samkvæmur sjálfum sér og sagði af sér. Bjarni hefur alltaf barist fyrir því að menn axli ábyrgð og í eigin mistökum gerði hann það. Ég held að tími Bjarna sé ekki liðinn í íslenskum stjórnmálum. Hann á eftir að birtast aftur og þá jafnvel enn beittari. Mér finnst að íslenskir stjórnmálamenn megi íhuga þá stöðu sem Bjarni kom sér í og hvað hann gerði í framhaldinu. Það eru mjög margir sem hafa látið óvarleg og jafnvel ljót orð falla en aldrei axlað þá ábyrgð að segja af sér. Skál fyrir Bjarna bóksala!

Fimmtudagur 20. nóvember 2008

Nýr stjórnmálaflokkur?

Á bloggi sínu segir Kjartan Valgarðsson eftirfarandi:

Spurning dagsins: Hvað gerist ef Davíð stofnar flokk og býður fram?

Svar: VG hverfur.

Þessu ku hafa verið stolið úr kaffispjalli með Lobba, sem er betur þekktur sem pabbi minn...

Ég er á því að Davíð eigi að gera þetta því þá myndast starf fyrir karl föður minn, hagfræðinginn... Hann skal í stól seðlabankastjóra!

Nýr stjórnmálaflokkur?

Á bloggi sínu segir Kjartan Valgarðsson eftirfarandi:

Spurning dagsins: Hvað gerist ef Davíð stofnar flokk og býður fram?

Svar: VG hverfur.

Þessu ku hafa verið stolið úr kaffispjalli með Lobba, sem er betur þekktur sem pabbi minn...

Ég er á því að Davíð eigi að gera þetta því þá myndast starf fyrir karl föður minn, hagfræðinginn... Hann skal í stól seðlabankastjóra!

Föstudagur 28. nóvember 2008

Rand

Í fjármálakreppu undanfarinna mánaða hefur krónunni verið haldið stöðugri með handafli. Nú held ég að krónan fari að verða svo óstöðug að hún ætti að kallast Rand, líkt og gjaldmiðill Suður-Afríku. Í þessu tilviki myndi krónan draga nafn sitt úr forritun. Hvernig myndi það virka? Eftirfarandi dæmi sýnir það:

Viðskiptavinur=V
Afgreiðslumaður=A

V: Góðan dag, hvað kostar mjólkurlítrinn?
A: 4.503
V: 20.390
A: Já, 5.

Þetta er vissulega súrt en líklega ekkert fjarri lagi miðað við þann stöðugleika sem krónan kemur til með að verða í. Söltum krónurnar ofan í tunnur og tökum upp Ærgildi!

Fimmtudagur 4. desember 2008

Á ég að hlæja núna?

Marteinn Mosdal er upp risinn í nýjum líkama. Davíð Oddsson er hinn nýi hýsill. Það eiginlega liggur í orðum hans að hann komi alltaf aftur.

Davíð hætti sem borgarstjóri en átti svo gríðarlega öflugt kombakk sem forsætisráðherra. Svo hætti hann sem forsætisráðherra en átti bærilegt kombakk sem Seðlabankastjóri. Nú hótar hann að eiga enn eitt kombakkið og það til baka í pólitíkina.

Það er ljóst að nú er Davíð orðinn of veruleikafirrtur til að sinna valdastöðu. Það er líka ljóst að ef hann kæmi aftur í pólitík þá yrði hann í stjórnarandstöðu... EF hann kæmist aftur á þing, sem ég þó efast um.

Davíð hefði átt að standa upp úr bankastjórastólnum þegar Glitnis málið kom upp og segja sig frá þessu, þá hefði hann líklega komið sæmilega út. En nú er það of seint.

Ég fór líka að velta því fyrir mér hvort Sjálfstæðisflokkurinn myndi almennt taka við honum aftur. Ég leyfi mér að efast um það. Hann myndi reyna að bola sjálfum sér í formannsstólinn aftur en ég efast um að Sjálfstæðismenn séu svo blindir að leyfa honum það.

Ef hann stofnar nýtt stjórnmálaafl þá fær hann bara holskefluna af öllum hinum yfir sig og hann snýr við með sært stolt, skottið milli lappanna og slóðina af hroka á eftir sér.

Ég hef sagt það áður að Davíð hefur í tíðina gert margt gott en líka margt vont. Hann er og verður alltaf umdeildur.

Ég skora á Davíð að setjast í helgan stein og þiggja rífleg eftirlaun sem hann á rétt á. Hann er ágætis penni og ætti bara að fara út í að skrifa greinar og jafnvel sinna lögfræðistörfum. Hann gæti jafnvel gefið út enn eina bókina.

Þú talar og talar en segir ekki neitt...

ég þoli þett'ekki lengur
og mér þykir það leitt

þett'er talandi dæmi,
talandi dæmi,
talandi dæmi og ég viss'að það kæmi að mér...
---
Þessi orð KK eiga rosalega vel við í dag um Davíð Oddsson.
Hann lýsir yfir endurkomu í pólitík ef hann verður rekinn úr bankanum og svo neitar hann að gefa yfirmönnum sínum upplýsingar og ber fyrir sig bankaleynd. Hann hefur sagt að hann viti ástæður þess af hverju bretar settu herlög á okkur en það sé bankaleyndin sem hamli honum að segja frá því.

HVAÐ HAFA HERLÖG BRETA MEÐ BANKALEYND Á ÍSLANDI AÐ GERA?

Mér þætti vænt um það að einhver útskýrði fyrir mér hvernig það tengist og hvernig honum er stætt á því að bera fyrir sig bankaleynd.

Miðvikudagur 10. desember 2008

Bæn Sjálfstæðismanns sem fór flatt á útrásinni

Stjóri vor,
þú sem stýrir öllu
helgist þitt nafn
til komi þitt veldi
verði þinn vilji
svo í banka sem og ríki
gef oss í dag vort daglegt hrun
og fyrirgef oss vora útrás
svo sem vér og fyrirgefum vorum lánardrottnum
eigi leið þú oss í gjaldþrot
heldur vernda oss frá skuldum
því að þitt er ríkið,
bankinn og dýrðin
að eilífu
Davíð

Föstudagur 12. desember 2008

Alþingi á villigötum

Á MBL.IS hefst frétt á eftirfarandi hátt:

Alþingi afgreiddi í gær lög um hækkun gjalda á áfengi, tóbaki, olíu og bifreiðum auk kílómetragjalds og vörugjalds af ökutækjum og eldsneyti. Viðbótartekjur ríkisins af þessu nema ríflega 3,5 milljörðum króna. Í fjárlagafrumvarpinu var gert ráð fyrir að þessi gjöld hækkuðu um 11,5% á næsta ári, en lagabreytingin tekur gildi strax í dag og nemur 12,5%.

Nú er ég hræddur um að Alþingi sé komið á villigötur. Þegar áfengi snarhækkar þá minnkar salan gríðarlega. Þegar tóbak snarhækkar þá hætta margir að reykja. Þegar bensín hækkar þá vill fólk hætta að keyra bílinn sinn og tekur strætó. Þegar olíu- og kílómetragjald hækkar þá fækkar strætóferðum og fargjaldið hækkar.

Ég er svo sem ekki hagfræðingur eða yfirleitt sérmenntaður í þessum málum en ég tel mig vita að ef ríkisstjórnin hefði t.a.m. lækkað áfengisgjald, þó ekki væri nema um 5% þá hefði sala aukist og virðisauki af áfengi hefði skilað talsvert meiru. Spurning með farartækjagjöldin hvort það hefði frekar átt að lækka það til að auka sölu og þar af leiðandi innkomu ríkisins í formi virðisaukaskatts og þeirra gjalda sem var verið að hækka.

Ég fékk einfalda hagfræðikennslu þegar ég var í menntaskóla og það er eitt lögmál sem á dálítið vel við núna. Það er lögmálið um framboð og eftirspurn með hliðsjón af verði. Þegar eftirspurn er framboð hlutfallslega lítið og verð þá líklega viðráðanlegt. En þegar verð hækkar þá minnkar eftirspurnin og framboðið eykst. Birgjar sitja þá uppi með lager, söluaðilar með fullar hillur og neytendur skítblankir geta ekki keypt. Og í kjölfarið minnkar innkoma ríkissjóðs í formi skatta og gjalda. Þetta er það ástand sem ég held að sé að renna upp að okkur núna.

Ég hvet ríkisstjórnina til að endurskoða þessa aðgerð sem mér virðist vera mjög vanhugsuð og í besta falli fjótfærnisleg.

Sunnudagur 28. desember 2008

Heimskasti pólitíkusinn!

Ég bara verð að deila þessu með ykkur, þetta er alvöru viðtal!
Varúð, þetta er hryllilega fyndið!

Þriðjudagur 6. janúar 2009

Gummi Denna skiptir um lið

Nú er Guðmundur Steingrímsson ekki lengur með mér í liði. Hann átti ansi góða spretti í Samfylkingunni og setti mjög skemmtilegan svip á flokkinn. Það reyndar þótti sæta miklum tíðindum þegar hann ákvað að ganga í Samfylkinguna í stað þess að nota erfðarréttinn og fara beint í forystu Framsóknarflokksins. Hann veit að nú getur hann labbað sig beint í framlínu Framsóknar og orðið voða fínn kall þar. Með þessu er Guðmundur að treysta málstað Framsóknar í sessi, tækifærismennska og stefnuleysi í raun. Guðmundur veit hins vegar og ég og þú lesandi góður að það verður mikil uppstokkun í öllum flokkum á næstu mánuðum og í raun ógerlegt að segja hver verður í hvaða flokki. En Guðmundur var einn af þessum mönnum sem ég sá fyrir mér sem framtíðarmann í Samfylkingunni.

Miðvikudagur 7. janúar 2009

ESB eða ekki ESB?

Ég átti spjall við vin minn um daginn sem tilfallandi starfar dálítið mikið að ESB málum í sinni vinnu. Hann sagði mér dálítið merkilegt. Ef lög í ESB stangast á við lög nýs aðildarlands þá eru settir viðaukar við lög ESB um að lögin virki öðruvísi í nýja aðildarlandinu. Enn fremur taldi þessi vinur minn að þær þjóðir sem kvörtuðu hvað hæst undan því að ESB hafi stolið fiskveiðiheimildunum hafi hreinlega samið svo skelfilega frá sér. Það hefur aldrei gengið þjóð í ESB sem hefur átt jafn mikið undir einni auðlind og Íslendingar eiga undir fiskveiðum. Hins vegar vildi hann ekkert fullyrða hvernig reynt yrði að semja við ESB um fiskveiðiheimildir en ég sló fram því að við fengjum 70% aflaheimilda og hann taldi það ekkert fráleita tölu en samt án ábyrgðar.

En þetta með að viðaukar yrðu settir við lög ESB til að aðlagast nýja aðildarlandinu... þetta finnst mér alger snilld. Ég segi bara að við eigum að sækja um strax í gær!

Laugardagur 17. janúar 2009

Vígin falla

Glöggir lesendur hafa eflaust lesið það úr skrifum mínum að ég er hlynntur því að stjórnvöld fái að ganga til samninga um inngöngu Íslands í ESB. Þess vegna gladdi það mig mikið í gær að Framsóknarmenn skyldu samþykkja ályktunina um ESB í gær. Þar féll eitt vígi sem ég hélt að væri mjög andsnúið ESB. Svona er maður nú mikið að fylgjast með öðrum flokkum. Ætli það sé ekki best að draga hausinn undan sænginni og hlusta betur.

Fréttaflutningur af þessu er hins vegar mjög misvísandi á MBL.IS. Þar segir að Framsóknarmenn vilji ganga í ESB. Það er ekki rétt. Það sem samþykktar ályktanir stjórnmálaflokkanna um þetta efni segja okkur er að landsfundir flokkanna gefa þingmönnum fullt leyfi og jafnframt óska eftir því að farið verði á fullt með að kanna allar forsendur, kosti og galla þess að ganga í ESB og jafnframt fullt leyfi til að ganga til samninga um aðild að ESB. Umræður þær sem farið yrði í gætu svo oriði til þess að allt sigldi í strand og ekki einu sinni Samfylkingin sætti sig við þá skilmála sem kæmu frá ESB.

Það er alveg hægt að ganga í ESB án þess að semja um það og láta bara allt yfir sig ganga án þess að setja nokkur skilyrði. Án þess að ég viti það þá grunar mig að nokkur ríki hafi gert það án þess að átta sig á sínum sérhagsmunum. Ekki fyrir löngu síðan skrifaði ég um þetta mál og Haraldur nokkur hjá Ríkisskattstjóra kommentaði hjá mér. Hann er greinilega mjög andsnúinn ESB og telur að það verði valtað yfir okkur frá degi 1. Það er hans skoðun en ég tel það alrangt. Þó svo ESB þurfi að samþykkja lög og reglugerðir sem við ætlum að innleiða hér þá þarf það ekki að þýða að það verði drepið allt saman niður. Þetta verður til þess að löggjafarvaldið verður að vanda sig miklu betur í því sem það er að gera. Í mjög mörgum tilvikum þarf aðeins að bæta eftirfarandi tveimur orðum í lagafrumvörpin Á ÍSLANDI á nokkrum stöðum svo að lögin fari ekki að hafa áhrif annars staðar. Þannig er hægt að koma all miklu í gegn án þess að það hafi nokkur áhrif annars staðar í ESB nema um sameiginleg auðlinda- eða milliríkjamál sé að ræða. Þess vegna væri til dæmis hægt að setja lög sem hétu t.d. Útvarpslög á Íslandi eða Lög um ferðamenn á Íslandi.

Bílstjórar sem keyra langar leiðir á stórum bílum hafa löngum haft horn í síðu ESB vegna vökulaga. Það sem geris þegar við verðum komin í ESB þá verður settur viðauki við lögin þar sem þau eru sveigð til á Íslandi vegna langra leiða milli staða. Það getur meira að segja verið að sótt verði fast að viðaukinn verði á þá leið að á Íslandi gildi lögin sem voru í gildi fyrir inngöngu í ESB. Og þess skal getið að viðaukar við svona lög falla ekki úr gildi nema landið sjálft fari fram á það og þá að undangengnum kosningum á ESB þinginu. Það gæti því orðið þrautin þyngri að losna við viðauka sem rýmka lögin okkur í hag.

Svo ég árétti það sem ég sagði í upphafi þá miða ályktanir stjórnmálaflokkanna vegna aðildar Íslands að ESB að því að fara í samningaviðræður og sjá hvert það leiðir okkur. Þetta yrði aldrei hrá innganga í ESB þó svo margir haldi það.

Við verðum að nálgast ESB með opnum hug eins og ESB nálgast okkur.

Miðvikudagur 21. janúar 2009

Krafan um kosningar

Fyrir all nokkru kröfðust ráðherrarnir Þórunn Sveinbjarnardóttir og Björgvin G. Sigurðsson kosninga. Í gær sagði þingmaður Samfylkingarinnar ekki styðja ríkisstjórnina og í dag segir Ágúst Ólafur Ágústsson að það verði að kjósa í vor. Miðað við það að þingfundur hefur verið felldur niður í dag þá má búast við því að ríkisstjórnin sé að undirbúa afsögn... eða það vonar maður eiginlega. Stjórnin hefur haldið skelfilega á málunum og allar líkur á því að mótmæli verði aftur í dag og jafnvel af sama krafti. Þau höfðu reyndar verið boðuð klukkan 11 í morgun en þá var víst enginn kominn. En í hádeginu voru nokkrir komnir við Jón Sigurðsson.

Ég er Samfylkingarmaður... í Hafnarfirði. Ég styð ekki þessa ríkisstjórn lengur. En jú, ég vil ganga í ESB en meðan stjórnin hagar sér svona þá vil ég það ekki því það eru allar líkur á því að það verði samið út í loftið ef samningaviðræður verða á sömu nótum og ríkisstjórnin hefur hegðað sér.

Segið af ykkur strax, boðið til kosninga og sjáum svo hverjir standa uppréttir eftir þær.

Enn um stjórnmál

Mér var að berast sú kjaftasaga að þingi verði frestað til 4. febrúar. Ennfremur sögðu sömu heimildir að stjórnin væri fallin og það væri því stutt í kosningar. Ég sel þetta nú ekki dýrara en ég keypti en í stöðunni held ég að þetta sé besta lausnin. Á einhverju bloggi var því haldið fram að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir væri orðin það veik að hún ætti ekki afturkvæmt í stjórnmál. Það er kjaftasaga sem engar staðfestingar eru til um opinberlega. Hitt er annað mál að sú staðreynd að læknar við Karólínska sjúkrahúsið vildu halda henni lengur gefur það sterklega til kynna að það sé eitthvað meira að en áætlað var í fyrstu.

Ef allar þessar kjaftasögur eru sannar þá verður að segjast eins og er að það eru spennandi tímar framundan í íslenskum stjórnmálum. Hitt er annað mál að það er ekkert spennandi að Ingibjörg Sólrún sé svona veik, það er erfitt fyrir hana og alla sem í kringum hana eru.

Sjáum hvað setur.

Til hamingju Ísland!

Samfylkingarfélagið í Reykjavík samþykkti á fundi áðan að slíta beri stjórnarsamstarfinu tafarlaust. Ég er sammála því. Svo má hreinsa til.

Fimmtudagur 22. janúar 2009

Kjánalegur málflutningur

Á síðum dagblaða, í fréttatímum ljósvakamiðlanna og í vefmiðlum hefur bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði farið mikinn í að gagnrýna meirihlutann. Nú síðast las ég á vefsetrinu www.visir.is grein eftir téðan bæjarfulltrúa. Þarna hjakkar bæjarfulltrúinn í sama farinu og síðustu 20 skipti. Ég hef grun um að þetta sé sama greinin alltaf en umorðuð í hvert sinn sem birta þarf að nýju. Þetta er eins og rispuð vínilplata.

Málflutningur bæjarfulltrúans er á þann veg að meirihluti Samfylkingar hafi hikað við sölu á hlut bæjarins í Hitaveitu Suðurnesja og misst þar af leiðandi af 7,5 milljörðum og í staðinn tekið 3 milljarða lán til framkvæmda. Nú sé þetta lán orðið 6 milljarðar. Það getur vel verið að þetta sé allt satt. Hitt ber þó að taka fram að það þarf alla vega tvo til að standa í viðskiptum og í þessu tilviki var það háð samþykki samkeppnisyfirvalda að Orkuveita Reykjavíkur fengi að kaupa hlut Hafnarfjarðar í HS. Það hringdu viðvörunarbjöllur hjá samkeppnisyfirvöldum og því var því slegið á frest að selja hlutinn meðan farið væri yfir málin. Mikið var deilt um þetta mál og þegar rekspölur var að komast á málin þá hrundi efnahagur ÞJÓÐARINNAR - ekki bara Hafnarfjarðarbæjar. Lánið sem bærinn tók á hagstæðum kjörum var upp á 3 milljarða en vegna gengisþróunar er það orðið 6 milljarðar en það er enn á nokkuð hagstæðum kjörum. Það gat enginn séð það fyrir að þetta færi svona. Heimilin eru í sama vanda. Þeir sem voru með 3 milljóna króna myntkörfulán skulda núna 6 milljónir. Ég er viss um að téður bæjarfulltrúi sé líka í þeirri súpu. 400 milljóna lánið hefur síðan verið tekið til að brúa eitthvað bil og meðal annars borga bæjarfulltrúum laun. Ég efast um að bæjarfulltrúinn vilji afsala launum sínum og býst ég við að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hefðu gert allt nákvæmlega eins og meirihluti Samfylkingarinnar. Þessa hluti þurfti að gera.

Gagnrýnin á framkvæmdagleðina á svo sem rétt á sér en hitt er annað mál að í bæjarfélagi sem hefur stækkað eins mikið og Hafnarfjörður þá verður að framkvæma - það verður að viðhalda ákveðnu þjónustustigi. Ef skólar og þjónusta byggjast ekki með nýjum hverfum þá verða bæjarbúar óánægðir og þeir flýja aftur bæinn. Sjálfstæðismenn hefðu gert allt nákvæmlega eins, það var engin önnur leið í boði.

Ég held að bæjarfulltrúinn verði aðeins að skoða málin í þessu samhengi. Það er líka mjög gott að gagnrýna en í pólitík 101 er kennt að það sé árangursríkt að koma með tillögur á móti gagnrýninni. Rekstur sveitarfélags er alls engin dans á Rósum en það er reynt að gera eins vel og hægt er, óháð pólitískum línum, samkvæmt almennri skynsemi.

Ég hvet bæjarfulltrúann til að koma með tillögur að úrbótum í stað þess að nöldra sífellt um sama hlutinn sí og æ sem ekki var hægt að sjá fyrir.

Mánudagur 26. janúar 2009

Stíga forystumenn ríkisstjórnarinnar til hliðar?

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sagði í viðtali áðan að henni þætti ekkert óeðlilegt að hún og Geir Haarde, forsætisráðherra, myndu stíga til hliðar. Ég held að það gæti verið góð lausn. En þá vantar eitthvert gott sameiningartákn. Mér dettur í hug Guðmundur Ólafsson hagfræðingur...

Stjórnarslitin fara víða...

telegraaf.gif
Geir Haarde er á forsíðum fréttamiðla um víða veröld í dag. Hann var á AFTENPOSTEN, BBC, CNN, SPIEGEL og TELEGRAAF (í Hollandi). Á vef Telegraaf hafa menn kommentað og spurt hvaða stjórn falli næst. Þar eru komnar fram kröfur um að Hollenska stjórnin segi af sér. Ísland var fyrst að fá skell fjármálakreppunnar og Íslenska stjórnin var sú fyrsta til að falla. Nú er að sjá hvort Hollendingar séu sannspáir. Einhver stakk reyndar upp á því að Hollendingar yfirtækju Ísland...

Önnur pæling. Hagfræðingar segja að stríð sé gott fyrir hagkerfið. Í ljósi sögunnar þá gætum við allt eins átt von á því að heimsstyrjöld brytist út. En þetta er samt of mikil svartsýni finnst mér...

Miðvikudagur 4. mars 2009

Prófkjör Samfylkingar í Suðvesturkjördæmi

Ég ætlaði í prófkjör. En þar sem farið er að þrengja að í fjármálunum þá hætti ég við. Þáttökugjaldið er 40.000 krónur fyrir hvert framboð. Flokkurinn minn, jafnaðarmannaflokkurinn, er sem sagt að segja það að þeir sem eigi peninga séu jafnari en hinir sem ekki eigi þá. Mér finnst kapítalistahugsjónin vera orðin fjandi sterk ef þetta er raunin. Mér finnst að í svona prófkjörum þurfi flokkurinn að standa á bak við þáttökugjöld. Mér finnst enn fremur að auglýsingar í prent-, ljósvaka- og netmiðlum eigi að vera bannaðar en þó sé mönnum leyft að blogga eða vera með opinbera heimasíðu og koma fram í viðtölum. Svona þáttökugjöld hindra menn eins og mig í að vera með í prófkjöri. Í stað þess að punga út 40.000 krónum í prófkjör þá ætla ég að helga Lúðvík Geirssyni pólitíska krafta mína fram að prófkjöri, svona þegar ég má vera að...

Mánudagur 9. mars 2009

Prófkjör, forval, uppstilling.

Um þessar mundir er verið að setja upp framboðslista stjórnmálaflokkanna í öllum kjördæmum. Margt áhugavert er að gerast þar. Það sem mesta athygli vekur, og er það vel, að konur koma mjög sterkar inn í baráttuna. En nú er svo komið að þær konur sem hafa barist hvað harðast fyrir kynjakóta, fléttulistum og allt í þeim dúr eru heldur betur að súpa seyðið af þessu. Allt í einu er farið að færa karla upp á listum vegna kynjastefnu. Af hverju má ekki listinn standa eins og fólkið valdi? Fólkið hefur talað og látið í ljós vilja sinn. En nei, það þarf víst að pota einhverjum kallfauskum upp sem ekki eiga það einu sinni skilið þar sem þeir lentu neðar í kjörinu. Því lík ekkisens endemis steypa! Kynjakvóti er eitthvað svo mikið 1950! Af hverju 1950? Jú, vegna þess að þetta var reynd með svarta og hvíta í Bandaríkjunum en mistókst herfilega. En svona grínlaust þá eru komnar svo margar frambærilegar konur í stjórnmálin og tróna á toppi listanna að ég tel óþarft að vera með einhverja forneskjulega kvóta á kynin. Sjáið bara efstu menn Vinstri Grænna í Reykjavík fyrir næstu kosningar, Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir. Ég skora á stjórnmálaflokka að láta af þessari fásinnu sem kynjakvóti og fléttulisti er því þá gætum við farið að fækka konum aftur á listum. Þetta dregur úr vilja fólks til að taka þátt í prófkjörum.

Föstudagur 20. mars 2009

Hvað er með þennan L-lista?!?

Nú fyrir skemmstu kom fram nýtt framboð sem hyggst bjóða fram til Alþingis á landsvísu. Þessi hópur kennir sig við fullveldi og hefur að meginstefnumáli að hafna aðild að ESB. Þegar ég fór að skoða stefnumál þeirra aðeins nánar þá rak mig í rogastans. Ekki það að þetta framboð hefði ekki önnur stefnumál heldur það hversu léttvæg þau virðast vera. Framboðið boðar að vinna gegn öfgum.

Á bloggi sínu segir Guðrún Sæmundsdóttir, tilvonandi frambjóðandi L-listans, eitt og annað um stefnumál SÍN. Ein færsla hennar fjallar um málefni sem er vert að skoða nánar. Hún vitnar í frétt á MBL.IS sem ber fyrirsögnina Endurskoða sjálfkrafa skráningu í trúfélög. Þar segir að dómsmálaráðherra ætli að endurskoða það að nýfædd börn séu undantekningarlaust skráð í trúfélag móður. Guðrún skrifar um það færslu þann 12. mars 2009 kl. 11:58 sem ber yfirskriftina Heilög tengsl móður og barns vanvirt hjá V-G. Færsla hennar er eftirfarandi:

Ömurlegt að dómsmálaráðherra með stuðningi V-G ætli að beita sér fyrir því að móðir fái ekki lengur helgað barn sitt sinni trúar eða lífsskoðunarsannfæringu.

Tengsl móður og barns á meðgöngu og á fyrstu árum þess eru heilög, flestar konur hafa andlega sannfæringu fyrir því kraftaverki lífsins sem meðgangan og barnsburður er. Þeim mæðrum sem er mikilvægt að fá blessun síns trúfélags/trúleysisfélags eiga að fá að halda þeim rétti! Börn eru núna sjálfkrafa skráð í trúfélag/lífsskoðunarfélag móður við fæðingu og það er engin ástæða til að breyta því!


Karlmenn geta ekki gengið með eða alið af sér barn, þeir munu aldrei geta skilið til fullnustu þennan leyndardóm lífsins og þá andlegu upplifun sem meðganga og barnsburður er. Feður hafa vissulega sterkt hlutverk í uppeldi sinna barna og feður eiga oftast þátt í að móta trúarsannfæringu síns barns í uppeldinu. Börn taka yfirleitt sínar sjálfstæðu ákvarðanir í sinni lífsskoðun um 14 ára aldur, og þá bjóða flest trúar og lífsskoðunarfélög þeim t.d. að fermast kirkjulega eða borgaralega einsog Siðmennt býður uppá, eða einhverskonar athafnir sem tíðkast hjá viðkomandi lífsskoðunarfélagi/trúfélagi.

V-G veldur mér gríðarlegum vonbrigðum með þessari afstöðu sinni sem traðkar á stöðu kvenna.


Ég horfði mikið á þessas færslu, hló svo dátt en varð síðan dulítið reiður. Svo komst ég að því að þegar betur var að gáð að 303 ummæli höfðu verið lögð við þessa færslu. Ég ætla ekki að birta þann bálk en ég hvet fólk til að skoða það allt og mynda sér skoðun á þessum frambjóðanda.

Frambjóðandi hlýtur að vera málsvari flokksins, hvar sem hann svo stendur á lista. Þessi færsla og skoðanir Guðrúnar sem birtast í kommentakerfinu finnst mér mjög öfgakenndar í þessa áttina og ég minni á að framboðið boðar öfgaleysi. Guðrún þessi svarar oft út í hött, slítur úr samhengi og svarar jafnvel ekki. Hún heldur því blákalt fram að fólk sem er talsvert yngra en hún hafi ekki skoðanir sem vert er að skoða og nefnir konu sem kommentar hjá henni sem Guðrún finnur út að er fædd 1984 en takið samt eftir því að hún segir eftirfarandi í bloggfærslu sinni Börn taka yfirleitt sínar sjálfstæðu ákvarðanir í sinni lífsskoðun um 14 ára aldur. Ég spurði hana út í þetta með að vera gegn öfgum en hún væri samt á þeirri braut og hún svarar því að siðferðismál séu frjáls hjá L-listanum. Almáttugur... FORÐIST L-LISTANN!

Enn um frambjóðanda L-listans

Ég heyrði í henni Guðrúnu Sæmundsdóttur í útvarpinu rétt áðan og hún er einfaldlega út úr kortinu. Þegar hún var að ræða um ESB þá nefndi hún ÝMSAR starfsgreinar sem kæmu hugsanlega til með að bera skaða af. Hún nefndi pökkun á mjólk, smjörgerð, rjómagerð og sitthvað fleira úr mjólkuriðnaði og einhverjar greinar innan annarar greinar. já... ýmsar starfsgreinar. Svo nefndi hún að ef fólk merkir við VG eða Samfylkinguna þá værum við á hraðferð inn í ESB. Það er rétt að Samfylkingin vill það. En Steingrímur J. og aðrir Vinstri grænir hafa sagt ESB ekki vera inni í myndinni. Mitt kjörorð fyrir þessar kosningar er FORÐIST L-LISTANN meðan þessi Guðrún leikur lausum hala!

Mánudagur 23. mars 2009

Hver andskotinn...

Það var hringt í mig áðan frá Lýðveldishreyfingunni. Ástæðan var mjög undarleg. Það hefur einhver ákveðið að tilnefna mig sem frambjóðanda á vefsíðu þeirra, lydveldi.is. Ég er svo sem upp með mér en svo varð ég svolítið pirraður þegar ég sá hver tilnefndi mig. Það hafði eitthvert sauðnautið skrifað undir nafninu forrit - sem er msn einkennið mitt. Einhver djókerinn hefur líklega gert þetta en vitiði hvað, ég ætla að hugsa málið!

Miðvikudagur 1. apríl 2009

Kemur ekki á óvart...

Það kemur mér ekki á óvart sem ég heyrði frá félaga mínum í Evrópu að ekki sé lengur hægt að fá íslenskar krónur í bönkum þar því krónan okkar er flokkuð með Zimbabwe-dollar í gjaldeyrisviðskiptum.

Annað sem ég heyrði og er þessu mjög tengt er að seðlabankastjóri Zimbabwe kæmist alltaf í gott skap og færi sjálfkrafa að hlæja þegar hann læsi um hvað Davíð Oddsson gerði sem seðlabankastjóri og hvað stjórnvöld á Íslandi hafa verið að gera.

Segir þetta okkur ekki svolítið um það hversu mikilvægt það er að skipta um gjaldmiðil?

Það hefur komið á daginn að við getum ekki tekið upp neinn gjaldmiðil einhliða vegna skelfilegrar stöðu þjóðarinnar. Norðmenn hafa þegar hafnað myntsamstarfi og ég efast um að Bandaríkjamenn eða Bretar nenntu að elta ólar við þjóð sem er jafn fjölmenn og íbúar Coventry. Þess vegna er eina leiðin að ganga í ESB og taka upp Evru. Með hverjum degi sem líður versnar samningsstaða okkar gagnvart ESB og þess vegna verður að fara strax í aðildarviðræður. Það er auðvitað ekkert einhliða lausn eða töfralausn að ganga í ESB. Aðild fylgja margir gallar og það vitum við. En ég tel kostina fleiri en gallana og það eru líka kostir sem vega þyngra en gallarnir.

Sunnudagur 12. apríl 2009

Er strætó bs. rekið af óhæfum?

Djöfull varð ég reiður þegar ég sá frétt á Vísi.is um að Strætó ætlaði ekki að bjóða upp á þjónustu á föstudaginn langa og páskadag.

Þar er meðal annars rætt við konu sem kemst hvorki lönd né strönd þar sem Strætó sé hennar eina samgönguleið. Sem sagt, sumt fólk á ekki að komast í fermingarveislur, páskadinnera eða aðrar samkomur hjá vinum og ættingjum. Þegar framkvæmdastjóri Strætó var inntur eftir þessu þá flugu eftirfarandi orð:

„Við lítum nú kannski svo á við séum beint að skera niður þjónustuna þar sem við höfum fylgst með faraþegafjölda á þessum dögum, sem sagt Föstudaginn langa, páskadaga og þessa helgidaga, og okkar niðurstaða er að þessi þjónusta er afskaplega lítið notuð þessa dagana,"

Já ok, lítið notað en þetta er samt notað og það er það sem á að skipta máli! Mér finnst stjórn Strætó gengisfella sig algerlega með þessari ákvörðun. Það hefði verið nær að fækka ferðum aðeins meira á þessum dögum en að fella þær alveg niður.

Enn fremur sagði framkvæmdastjórinn:

„...að kostnaðurinn við að halda úti þjónustu á helgidögum sé tvöfalt meiri en venjulega daga, meðal annars vegna meiri launakostnaðar. Strætó hafi takmarkaða fjármuni að spila úr og þurfi því að velja og hafna."

Gott og vel. Eiga þá þeir sem reglulega nota strætó að hætta að kaupa grænu, gulu og rauðu kortin til að eiga fyrir leigara þessa daga sem ekkert er ekið hjá Strætó?

Þetta er það sem ég hef alltaf sagt. Strætó er hlutafélag í eigu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Strætó er rekinn eins og hvert annað fyrirtæki þar sem krónur og aurar skipta meira máli en þjónusta við notendur. Ég sæi í anda ef loka ætti Landspítala Háskólasjúkrahúsi á páskadag og föstudaginn langa.

Enndemis fíflagangur sem þetta er! Endurskoðið þetta strax og takið síðan pokann ykkar og setjið hæft fólk í að reka Strætó!

Fimmtudagur 16. apríl 2009

Ástþór Magnússon og Lýðræðishreyfingin

Á dögunum sagði ég frá ljótum grikk sem mér var gerður, einhver stakk upp á mér - í mínu nafni - til framboðs hjá Lýðræðishreyfingunni. Ég svo sem hef ekkert gert í því eftir bloggið og afsvarið sem ég gaf þeim.

Í gær heyrði ég viðtal við Ástþór Magnússon á rás 2. Ég hreinlega skil ekki hvernig nokkur maður getur fengið það af sér að leggja krafta sína til framboðs þar sem málsvarinn hagar sér eins og Ástþór gerði í gær. Í stað þess að þakka fyrir sig þá hraunar hann yfir útvarpsmanninn með þvílíku offorsi að annað eins hefur ekki heyrst.

Ég átti í morgun spjall við mann sem eitt sinn bloggaði á þá vegu að Ástþór væri fífl. Það leið ekkert langur tími þar til lögreglan hafði samband við þennan mann og spjallaði við hann um þetta blogg. Maðurinn sagðist myndi endurtaka það hvar og hvenær sem væri það sem hann hafði bloggað, hvort sem væri í fjölmiðlum eða fyrir rétti.

Með þessar upplýsingar í höndunum þá spyr maður sjálfan sig, hvað ætli Ástþór Magnússon sé búinn að kosta þjóðfélagið með öllum þessum óþarfa kærum sínum á fólk sem hefur skoðanir á honum? Hvað hefur Ástþór Magnússon kostað þjóðfélagið með tómatsósustælum sínum, jólasveinahætti og öðrum hlutum í réttarsölum sem hann hefur gert til að vekja athygli á málstað sínum? Ég er á þeirri skoðun að réttarkerfið eigi að sinna því sem skipti máli en ekki Ástþóri Magnússyni sem mér finnst vera blöðruselur og málefnalaus með öllu þar sem mér finnst hann aldrei hafa svarað fyrir sig af neinu viti þó svo einstaka málefni í stefnuskrá listans hans megi alveg færa til skoðunar.

Ég hef aldrei haft neitt álit á Ástþóri Magnússyni og við gjörning sinn í gær varð mér það ljóst að fyrir mér er hann persona non grata í íslenskum stjórnmálum.

Föstudagur 17. apríl 2009

Styrkir til stjórnmálaflokka

Nú þegar styrkjastyrjöldin er að mestu yfirstaðin þá hef ég verið að velta fyrir mér því af hverju svona rosalegu púðri var eytt í nornaveiðar innan allra flokka í stað þess að einblína á þá alvarlegu stöðu sem ríkisbúskapurinn er í. Þessar á að giska 70 milljónir sem um ræðir eru bara dropi í hafið miðað við þá peninga sem þjóðarbúið skuldar. Auðvitað var rétt að draga þetta upp á yfirborðið og rétt að sýna hver er mesti skíthællinn en að eyða svona miklu púðri í þetta finnst mér ekki réttlætanlegt. Svona mál eru eitthvað svo mikið 2007...

Mánudagur 20. apríl 2009

Vændiskaup bönnuð með lögum

Hvað er vændi? Hvar liggur skilgreiningin? Er vændi einvörðungu það að einn greiði öðrum fyrir kynlíf? Eða er vændi skilgreint sem símaþjónusta, sérstakir vefir sem sem ætlaðir eru til þess að fólk ræði saman á kynferðislegum nótum?

Nýlegur vefur heitir Sexychat.is og ég kíkti þangað inn nýverið. Þar eru einstaklingar sem annað hvort eru að skoða eða þeir eru virkilega að auglýsa þjónustu sína hjá símaþjónustunum. Á þessum vef eru einnig spjallvefir. Ég skráði mig inn á eitt spjallsvæðið og sá að all margir voru skráðir inn undir nöfnum á börð við Graður gaur, Greddukall, Greddugella, Sætkvk, kvk93 o.s.frv. Ég gaf mig á tal við aðila sem gaf sig út fyrir að vera kvenkyns. Í stuttu máli sagt þá sagði hún mér að hún væri 16 ára. Ég, verandi 38 ára, gerði henni strax ljóst að ég væri miklu eldri en hún. Það virtist ekki vera fyrirstaða. Eftir dálítið spjall spurði hún hvort ég væri að leita eftir kynlífi. Þrátt fyrir að vera harðgiftur þá ákvað ég að sjá viðbrögð hennar og játti því. Hún sagði mér að hún gæti tekið á móti mér til kl 15. þann dag en sagði mér um leið að það kostaði 20.000. Sem sagt, hún var að hvetja mig til að fremja lögbrot, í tvennum skilningi. Annars vegar að fara að sænga hjá einstaklingi undir lögaldri og hins vegar að kaupa ólöglega þjónustu. Ég svaraði henni því eins og er að ég væri giftur og að ég hefði alls ekki í hyggju að brjóta þann trúnað.

Hvað mig varðar þá eru vefir þar sem fólk getur markaðssett sig á þennan hátt ólöglegir því þeir hvetja til lögbrota á alla kanta, lögbrota af ógeðslegustu sort. Ég get horft fram hjá því þegar ungmenni hittast og gera dodo án greiðslu en þegar einstaklingar undir lögaldri bjóða karlfauskum blíðu sína þá hljóta þeir miðlar sem notaðir eru til þess að teljast ólöglegir. Þessir miðlar eru kannski ekki að taka greiðslur fyrir þjónustuna en þeir stuðla að þessu.

Á Íslandi viðgengst einnig símavændi. Fyrir einhverju síðan kannaði ég þær lendur. Símtalið kostar nýru og lifur og það sem maður uppsker eru stunur, dónatal og annað í þeim dúr. Þetta hlýtur að flokkast sem vændi. Þarna eru grandalausir einstaklingar sem borga helvítis helling fyrir eitthvað sem þeir geta séð á netinu eða hreinlega átt með mökum sínum. Vilji þessir einstaklingar prófa eitthvað annað en það sem þeir hafa þá eiga þeir frekar að ræða það við maka sína og kanna grundvöll á þann veg en ekki með vændi - hvort sem það er símavændi eða barnavændi... já eða vændi, hvaða nafni sem það nefnist.

Nú hef ég ekki kynnt mér það en ef sala á vændi er ekki bannað algerlega með lögum þá finnst mér alveg þess virði að gera það svo báðir gerendur skilgreinist sem lögbrjótar. Vændi stuðlar að versta glæp gegn einstaklingi sem til er, misnotkun, niðurlægingu, nauðgun, sálarmorði. Með lögum um bann á vændiskaupum erum við bara komin hálfa leið.

Fimmtudagur 23. apríl 2009

Komandi kosningar

Skattamál hafa verið í brennidepli undanfarnar vikur vegna kosningana á laugardag. Minn flokkur, Samfylkingin, hefur dregið í land með aggressívar skattahækkanir á meðan Vinstri Grænir halda fast við sinn keip. ´

Ég hef aldrei verið fylgjandi hækkunum á tekjuskatti á alla til að bjarga einhverju ástandi. Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að ef tekjuskattar yrðu lækkaðir þá hefðum við meiri peninga á milli handanna og því myndum við eyða meiru og þar af leiðandi myndi ríkissjóður hala inn þessa peninga eftir öðrum leiðum. Enn fremur ef vextir lækka þá eykst fjármagn milli handa neytenda og þeir eyða meiru og þannig nást peningar til baka. Það má vel vera að ég sé á villigötum með þetta en svona blasir þetta við mér.

Hins vegar er ég fylgjandi því að hátekjuskattur sé settur á þá sem hafa yfir 750.000 í tekjur á mánuði. Sá skattur má hins vegar ekki vera hár því þá teygjum við okkur yfir jafnaðarhugsjónina. Reyndar á meðan lægstu laun duga ekki til framfærslu og bankastjórar eru með 3 milljónir á mánuði þá er enginn fjandans jöfnuður í samfélaginu.

Hvað varðar atvinnumál þá þarf að minnka skatta- og vaxtaálögur á fyrirtæki og stofnanir í landinu til þess að auðveldara verði að ráða fólk til starfa og greiða því laun. Sú staða sem landið hins vegar er í gefur engin tilefni til bjartsýni. Það er varla hægt að kenna útrásarvíkingunum einvörðungu um hrunið hér á landi. Þetta er að gerast um allan heim. En téðir útrásarvíkingar hins vegar fóru of frjálslega með það fé sem þeir fengu í hendurnar og þau völd sem þeir allt í einu öðluðust. Það hafa langflestir viðurkennt það.

Í kosningabaráttunni hafa andstæðingar ESB farið mikinn í því að segja að við verðum valdalaus með öllu, allt verði tekið af okkur og við verðum aumingjapakk úti í miðju ballarhafi. Þeir hafa sagt að Samfylkingin ætli sér að ganga beina leið inn í ESB án þess að spyrja kóng eða prest. Mitt svar er rangt, rangt, rangt! Það getur vel verið að við missum brot af fiskveiðiheimildum en við fáum ýmislegt annað í staðinn eins og möguleika á að nýta landgæði Frakklands, Þýskalands, Bretlands eða hvaða annars ESB lands sem er. Hvort við verðum aumingjapakk úti í ballarhafi er undir okkur sjálfum komið. Þeir samningar sem fara í hönd í aðildarviðræðum byggja á því að ákveðin atriði verði óbreytanleg eins og t.d. að auka fiskveiðiheimildir til handa ESB löndum. Það sem ekkert hefur verið rætt um í ESB umræðunni eru orkumál. ESB er virkilega á höttunum eftir allri þeirri orku sem hægt er að framleiða hér. Þó svo að andstæðingar séu skíthræddir um að orkan verði bara gefin þá er það ekki svo. Það er sér hópur sem stendur vörð um þá hagsmuni og orkan verður ekki seld á útsölu til ESB heldur á góðum prís. Og svo þetta með að Samfylkingin ætli að ganga beint inn í ESB án þess að spyrja kóng eða prest þá er það bara svo mikil þvæla. Það stendur í stjórnarskránni að svona lagað verði að bera undir þjóðaratkvæði þar sem þetta er mikil breyting á bæði stjórnarskrá og lifnaðarháttum. Þar fyrir utan myndi Samfylkingin aldrei ganga beint inn án þess að leggja þetta fyrir þjóðina.

Á laugardaginn er stund sannleikans runnin upp. Hverja vill þjóðin fá til að stjórna. Í boði eru fjórir rótgrónir flokkar. Svo eru það Frjálslyndir sem vita ekki hverjir tolla í þingflokknum. Síðan eru það sérframboðin, Borgarahreyfingin og Lýðræðishreyfingin. Tvö síðastnefndu framboðin hafa ekki fullmótaða stefnuskrá í öllum málaflokkum og hafa frambjóðendur því frjálst val um stefnu í þeim málaflokkum sem ekki hefur verið gefin út stefna í. Þetta er í besta falli bjánalegt en í versta falli stórhættulegt. Í Lýðræðishreyfingunni og Borgarahreyfingunni eru einstaklingar sem langflestir hafa litla eða enga reynslu hafa af stjórnmálastarfi. Ég er á því að á meðan ástandið er eins og það er í landinu þá verðum við að hafa reynslubolta á þingi og fólk sem hefur reynslu af starfi innan stjórnmálaflokkanna og veit út á hvað stjórnmál ganga. Breytingarnar þurfa nefnilega að koma innanfrá í gömlu flokkunum.

Ágæti lesandi, ég hvet þig til að hugsa þessi mál alvarlega. Samfylkingin stendur vörð um fólkið í landinu, stendur vörð um velferð lands og þjóðar. Ég hvet þig til að lesa stefnuskrár flokkana og sjá hver sýnir mesta skynsemi á þessum umrótatímum.

X - S

Föstudagur 24. apríl 2009

Framsóknarkaffi

Ég skaust í verslun hér í Hafnarfirði í dag til að kaupa í matinn. Framsóknarmenn stóðu bæði við inn og útgang verslunarinnar og gáfu fólki kaffipakka sem dugar í 6 bolla skv. upplýsingum á pakkanum. Í pakkanum var jú kaffið en líka hellingur af lofti. Verandi kaffisjúklingur þá þáði ég vitanlega kaffið og fór með það heim. Ég gekk frá innkaupunum og hitaði síðan vatn og hellt mér upp á Framsóknarkaffið. Þvílíkur ekkisens óþverrauppáhellingur sem þetta var. Ég skellti samt heilum bolla í mig... og öðrum. Ég sannfærðist þá endanlega um að þetta væri líkt málflutningi Sigmundar Davíðs um þessa blessuðu skýrslu sem hann segir stjórnina leyna, algerlega ófært. Ég er með óbragð í munninum eftir þetta Framsóknarkaffi og held að þeir mættu bæta það um a.m.k. 20% til að það sé drekkandi.

Mánudagur 15. júní 2009

ESB - af hverju?

Ég ætla ekki að fara að rekja rétt eina ferðina alla kosti þess og galla að ganga í ESB. Mér varð ljóst fyrir nokkru síðan að það er ein mjög góð ástæða til þess að við eigum að ganga í ESB, ástæða sem hlýtur að vega þungt ef þjóðin okkar á ekki að eyðast upp.

Það er fátt hægt að gera í raun nema borga þessar óhemjuskuldir sem á okkur hafa verið lagðar. Ég heyrði um helgina að efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra og ríkissaksóknari hafi haft tæpar 150 milljónir króna til að rannsaka og reka Baugsmálið af sinni hálfu. Baugur eyddi 2 milljörðum. Með inngöngu í ESB hefðum við aðgang að svo miklu stærra dómskerfi og dómskerfi sem hlífir engum. Ef við hefðum verið í ESB þá hefði Baugsmálið ekki verið fellt nánast allt á formgalla. Það hefði líklega verið gengið lengra og fleiri verið dregnir til ábyrgðar. Þetta er einfalt. Göngum í ESB því þá verður það ekki lengur dómskerfið í hluverki Davíðs gegn Golíati heldur öfugt.

Laugardagur 1. ágúst 2009

Lýðræði og bananar

Djöfull er ég reiður! Það er verið að traðka á málfrelsinu. Ríkisútvarpið hefur verið að flytja fréttir úr lánabókum Kaupþings undanfarið en í dag fékk Kaupþing því framgengt að lögbann yrði sett á fréttaflutning RÚV af þessu. Maður hefði skilið ef Gamla Kaupþing væri paranoid yfir þessu og heimtaði lögbann en þegar Nýja RíkisKaupþing styður þetta og berst með Gamla Kaupþingi þá er eitthvað skítugt á seyði. Þegar bankarnir voru yfirteknir þá var því lýst yfir að allt skyldi upp á borðið. Hvað er þá í gangi núna?

Nú er ég verulega farinn að íhuga flutning viðskipta minna til MP banka eða Byrs. ÉG þarf bara að sjá hvor býður betur.

Við búum í mesta bananalýðveldi sem til er!

http://wikileaks.org/leak/kaupthing-bank-before-crash-2008.pdf

Reynið að setja lögbann á alla bloggara, facebook og aðra tjáningu, þið losnið aldrei undan þessu!

Föstudagur 7. ágúst 2009

Kyrrsetning eigna - hvað gerist?

Síðan hrunið mikla varð þá hafa menn rætt hátt um að kyrrsetja eignir auðmanna. Hvað gerist ef og þegar þessar eignir verða kyrrsettar? Verður matvöruverslunum lokað? Verða tryggingafyrirtækin harðlæst? Leggst öll almenn þjónusta af? Mér þætti gaman að fá skýringar á því hvaða afleiðingar þetta gæti haft í för með sér. Þarf maður þá að fara til bónda til að fá kjöt? Þarf maður að rækta eigið grænmeti? Þarf maður að útbúa sér torfbæ? Þetta er einn af þessum hlutum sem þarf að útskýra duglega fyrir þjóðinni!

Þriðjudagur 11. ágúst 2009

Heyrðu, Icesave?

Það fer nú að bera í bakkafullan lækinn öll þessi Icesave-umræða. En eitt sem ég hef verið að velta fyrir mér. Getur verið að tjallarnir og túlípanarnir séu með einhverjum aðgerðum að halda gengi krónunnar svona ofboðslega óhagstæðu þar til samningurinn er í höfn? Getur það verið? Getur ekki verið að krónan styrkist verulega þegar samningurinn er í höfn? Eða er kannski málið að það hrapi enn meira? Það verður fróðlegt að sjá.

Laugardagur 17. október 2009

Icesave í höfn?

Jæja, þá hafa tjallarnir og túlípanarnir skilað áliti sínu á Icesave samningnum.

Þeir vilja að við höldum áfram að borga eftir 2024 ef skuldin er ekki að fullu greidd, að mínu mati mjög eðlileg krafa enda væri annað rippoff. Fari Icesave fyrir dóm þá falli ekki niður greiðsluskylda heldur verði sest aftur að samningaborðinu. Ákvæði Ragnars Hall um forgangsröð krafna er enn í samningnum en fellur úr gildi ef eftirlitsstofnun EFTA og ESA að þeirri niðurstöðu að það stangist á við evrópskan rétt þá fellur það ákvæði úr gildi, óháð því hvernig Hæstiréttur Íslands dæmir.

Ég held að nú sé ráð að segja játakk og skrifa undir. Ef við segjum nei við þessu þá er einboðið að viðskiptaþvinganir verða settar á Ísland og við verðum blásnauð þjóð næstu áratugina. Þeim er í raun bara andskotans sama um eitthvert smápeð norður í ballarhafi. Okkar helsta haldreipi er að vera aðili að EES samningnum og því verði erfitt að sniðganga okkur algerlega. En geti Bretar og Hollendingar sannfært aðra sem aðilar eru að EES um að við séum bara helvítis slúbbertar í norðurhöfum sem svífumst einskis þá er alveg möguleiki á að EES sé úr sögunni hjá okkur. Það yrði þeim þó kostnaðarsamt og yrði unnið sem prinsipp gæluverkefni en ekki sem stórkostlegt fjárhagsmunamál.

Eitt sem mér finnst merkilegt með alla þessa Icesave umræðu. Skuldin er 300 milljarðar. Jújú, brjáluð upphæð. En þetta er innan við 10% af heildarskuldum ríkisins vegna hrunsins. Af hverju er verið að gera svona mikið vesen út af þessu?

Hagfræðingar og stjórnmálafræðingar hafa sagt að ef við samþykkjum ekki Icesave strax þá verði skuldin tvö- og jafnvel þrefölduð með einu fjandans pennastriki! Það þarf að samþykkja þetta eins og það liggur fyrir og reyna svo síðar að semja upp á nýtt. Það verður hægt með því að skjóta samningnum til dómstóla og vona að samningurinn sé ólögmætur. En þá er ferlið komið í gang og minna mál að lagfæra og leiðrétta.

Ég óska þess að þeir þingmenn sem hafa tafið þetta sjái að sér og samþykki Icesave samninginn sem lausn út úr ákveðnum vanda. Með því að skrifa ekki undir þá erum við að samþykkja okkar eigin dauðadóm!

Fimmtudagur 31. desember 2009

Jæja, þá er Icesave líklega búið...

Þá hafa Alþingismenn kosið um Icesave og farið þá leið sem ég tel betri. Að mínu mati eru líkur á þjóðargjaldþroti mun minni en ef við hefðum hafnað þessu frumvarpi. Fulltrúalýðræðið hefur talað og held ég að forseta Íslands sé ekki stætt á því að hafna lögunum en hann mun samþykkja þau með mjög ítarlegum rökstuðningi og jafnvel svolitlum skotum á stjórnina.

Framundan eru tímar sem verða okkur erfiðir. En ég er sannfærður um að baráttuvilji Íslendinga geti komið okkur upp úr þessum sporum og veitt okkur þá framtíð sem við eigum skilið. Í versta falli getum við hjálpað börnum okkar að eiga þolanlegt líf. Ég bið ekki um annað.

Þeir sem flýja land finnst mér svíkja okkur hin sem eftir sitjum, okkur sem þurfum að borga fyrir útrásina og þá sem stinga af. Þeir eru nefnilega líka að skilja okkur eftir með skítinn. Því fleiri sem stinga af, því meiri líkur eru á því að börnin okkar sitji uppi með þessi vandamál.

Icesave var dropi í haf vandamála þjóðarinnar. Nú er að bretta upp ermar og klára þetta allt saman og brosa í kampinn... þó það verði stundum erfitt.

Sunnudagur 17. janúar 2010

Hvað viljum við og hvað getum við?

Norðurbærinn af NorðurbakkaÞað fer að bera í bakkafullan lækinn að ætla að skjóta fram enn einum pistlinum sem hefur undirtóninn „þegar illa árar eins og nú“. En ég held að við verðum að gera okkur grein fyrir þeirri staðreynd að það árar illa. Það árar eiginlega bölvanlega um allt land. Sveitarfélög berjast í bökkum, ríkið í lífróðri og þjóðin í dálítið hættulegu svartsýniskasti.

En í myrkrinu er ljós, dálítið bjart ljós meira að segja. Í Hafnarfirði hafa bæjaryfirvöld ráðist í talsvert dýrar framkvæmdir á undanförnum árum. Þessar framkvæmdir voru kostaðar með erlendum lánum sem á þeim tíma þóttu eiginlega fáránlega góð. Bankarnir kepptust við að selja fólki erlend lán, sveitarfélög fengu ráðgjöf hjá sínu fólki um að erlend lán væru málið. Flestir trúðu því að nú væri Ísland að gera góðu hlutina. Einhverjir sáu samt ástæðu til að vara við erlendum lánum. Róðurinn hjá Hafnarfjarðarbæ er vissulega erfiður og það má ekki vanmeta þá stöðu. En allt útlit er fyrir að bæjarsjóður standi af sér þetta risastóra áhlaup sem efnahagshrunið leiddi af sér.

Nú er það svo að Hafnarfjarðarbær hefur dregið all verulega úr nýframkvæmdum og leggur allt kapp á að klára þau verkefni sem ókláruð eru. Ég tel það vott um ábyrga fjármálastjórnun að ana ekki beint út í óvissuna með því að hefja nýjar stórframkvæmdir sem ekki eru beinlínis bráðnauðsynlegar.

 En svo er spurt, hvað eru bráðnauðsynlegar framkvæmdir?
Er stúka á Ásvöllum bráðnauðsynleg?
Er frjálsíþróttasvæði í Kaplakrika bráðnauðsynlegt?
Er efling tónlistarskólans bráðnauðsynleg?
Er efling miðbæjarins bráðnauðsynleg?
Er bráðnauðsynlegt að gefa frítt í strætó?

Það eru alltaf einhverjir sem svara einhverri af þessum spurningum játandi en líka einhverjir sem þverneita.

Ég ætla ekki að svara þessum spurningum fyrir alla en mín skoðun er sú að stúkan á Ásvöllum hefði mátt bíða og bærinn hefði átt að grípa inn í það þegar Haukar leituðu til Valsmanna um keppnisvöll. Bærinn á 80% í félögunum og á tímum hagræðingar hlýtur 80% hluthafi að hafa vit fyrir 20% hluthafanum og segja þeim að þeir geti bara víst keppt á sama velli.

Frjálsíþróttasvæðið við Kaplakrika hefur verið það lengi í framkvæmd og það lítið eftir að það er nauðsynlegt að klára það svo ekki skapist hætta af hálfkláruðum mannvirkjum.

Efling tónlistarskólans tel ég meira en sjálfsagðan hlut. Þar eru kennarar á heimsmælikvarða og mjög óeigingjarnt starf unnið þar. Samt hefur skólinn þurft að taka á sig talsverðan niðurskurð.

Efling miðbæjarins tel ég algjört forgangsatriði. Okkur ber að nota þetta glæsilega svæði sem Thorsplanið og þess næsta nágrenni er. Okkur ber að nota Hellisgerði meira. Okkur ber að virkja alla listamennina sem í Hafnarfirði búa og halda uppákomur með þeim.

Strætó hefur verið eilíft bitbein milli fólks. Mín afstaða er mjög einföld, gefum frítt í strætó, eflum leiðakerfið og innan 15 ára verður lækkun á gatnagerðarkostnaði og viðgerðarkostnaði á götum það veruleg að það ber uppi almannasamgöngur að einhverju leiti. Þar að auki myndi það stórminnka mengun. En í þessum málum eigum við í höggi við þríhöfða þurs, fjárhagsstöðu bæjarins, hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og húðlata íslendinga. Það þarf að kenna fólki að nota strætó.

Við viljum gera allt til að Hafnarfjrörður verði enn betri en áður því alltaf má gott bæta.

Ég benti á það í bloggi fyrir nokkrum árum (bloggi sem ég reyndar lokaði síðar) að hagkerfið Ísland hefði gengið í gegnum alvarlegar fjármálakreppur. Stríðsárin, síldarhvarfið og þar fram eftir götunum. Sveiflan varð alltaf dýpri og dýpri og ég vissi sem var að næsta niðursveifla yrði hrikaleg, sem hún og varð. Ég hef oft nefnt þetta jójóáhrifin. Það var hlegið að mér á blogginu og fólk þar sagði að ég væri fífl og ætti ekkert með að tjá mig um þessi mál. Það má vel vera en spá mín rættist. Þar komum við dálítið að kjarna málsins. Það sem við viljum gera er ekkert endilega það sem við getum gert. Þegar illa árar ber okkur að hagræða og það hefur verið gert. En áherslurnar finnst mér megi aðeins vera jafnari. Íþróttafélögin hafa alltaf verið í dálitlum forgangi með peninga en mér finnst nauðsynlegt að endurskoða það. Íþróttafélögin skila hins vegar ekki miklum tekjum til bæjarins. Menningar- og þjónustustofnanir á borð við Þjónustuverið, byggðasafnið, Hafnarborg, bókasafnið og þar fram eftir götunum eru þeir staðir sem okkur ber að efla til að lokka fólk til bæjarins. Bæjarhjartað finnst mér hafa slegið af veikum mætti undanfarin ár og vil ég fá það til að slá örar.

Margar spurningar kunna að vakna og er þér lesandi góður velkomið að skjóta spurningum á mig hér í ummælakerfinu. Ég reyni að svara þeim eftir bestu getu.

Um Pólitískt urr

Þessi síða inniheldur skrá yfir allar færslur skráðar á Urr í Pólitískt urr flokkinum.

Íþrótta urr er flokkurinn á undan.

Tónlistar urr er næsti flokkur.

Margar fleiri er hægt að finna á aðalsíðunni eða með því að þvælast í gegnum gamalt.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 2
Gestir í gær: 4
Þennan mánuð: 62

Færslur: 167
Álit: 260

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme