Ég er staddur á Klambratúni
...og ég er að taka vídjó...
Bara vildi deila þessu með ykkur.
...og ég er að taka vídjó...
Bara vildi deila þessu með ykkur.
... Þá er maður búinn að mynda...
Og enn er ég að deila þessu með ykkur...
Mig langar alveg óheyrilega í kontrabassa. Löngunin er svo mikil að ég er alveg viðþolslaus. Þegar Helga Guðný fór að læra á selló þá tók ég aðeins í það (lítið selló) og fór að plokka það og varð alveg fárveikur í að fá mér kontrabassa. En þá er bara ein spurning lesandi góður... Hvar get ég keypt bærilegan kontrabassa fyrir ekkert of mikinn pening?
Djöfull er ég þreyttur þessa dagana... enda er brjálað að gera hjá mér.
Kammerkór Hafnarfjarðar heldur tónleika 2. og 3. desember næstkomandi. Einsöngvari merð kórnum þetta sinnið verður Ragnheiður Gröndal. Píanóleikari er Anna Magnúsdóttir og stjórnandi í fjarveru Helga Bragasonar er Helga Loftsdóttir.

Ég hef í nokkur ár verið í Kammerkór Hafnarfjarðar og sungið ófáa tónleikana með honum. Þetta misserið er ég ekki með kórnum. Aðventu og jólatónleikaröð kórsins stendur nú yfir. Í fyrrakvöld sungu þau fyrir Hjallastefnuna en í gærkveldi og í kvöld eru það opnir tónleikar.
Ég skellti mér í gærkveldi ásamt Ásdísi og Ninnu, ömmu hennar. Kórinn söng mikið af lögum sem ég hef sungið með þeim en samt voru einhverjar nýjungar eins og vera ber. Einsöngvari á tónleikunum þetta árið er Ragnheiður Gröndal. Fyrir mér náði kórinn algerlega nýjum hæðum í söng. Hljómurinn var stórkostlegur og sönggleðin skein úr hverju andliti. Einhvern tímann sagði gagnrýnandi að það hefði ekki mátt sjá bros á einum einasta söngvara kórsins. Það var reyndar þegar var verð að syngja einhverja sálumessuna eða harmljóð einhver og því kannski skiljanlegt að menn skyldu ekki vera hoppandi og brosandi... En í gær skildi ég ekki hvað fólk er að kvarta því allur kórinn virtist skemmta sér hið besta og njóta sín.
Ragnheiður Gröndal söng í hljóðnema og í gegnum einhvern kassadjöful sem staðsettur var fyrir aftan hana. Magnarinn sá arna var ekki vel stilltur. Mér fannst vanta algerlega miðju og smá botn í hljóminn og að höfuð áherslan væri á að hátíðnihljóð andardráttar hennar kæmust nú örugglega til skila. Nú er það þannig að ég virðist vera farinn að missa aðeins efstu tíðnir heyrnar minnar en þetta fór ekkert fram hjá mér. Hún skilaði sínu hlutverki mest megnis vel en einstaka hnökrar voru á hennar söng sem vafalaust verða lagaðir fyrir kvöldið. Hún náði hins vegar hápunkti í sínum söng í Ave Maria eftir Kaldalóns þar sem smá breyting varð á röddinni, hún varð agaðri og sterkari en samt þessi blástursrödd sem er hennar vörumerki. Ég held að hún hefði nú alveg mátt gefa alveg í botn í því verki því ég heyrði þar að hún getur alveg sungið sterkt og kröftuglega. Hefði hún gert það þá er ég nokkuð viss um að áheyrendur hefðu fengið að sjá nýja hlið á henni sem hún felur of vel.
Anna Magnúsdóttir lék undir á píanó í nokkrum lögum og gerði það með glæsibrag. Hún syngur líka í kórnum og setti það skemmtilegan og frjálslegan brag á tónleikana þegar hún snaraðist niður af pöllum og að píanóinu.
Helgi Bragason sem stjórnað hefur Kammerkórnum frá stofnun forfallaðist í haust og hljóp Helga Loftsdóttir í skarðið og stjórnaði kórnum með glæsibrag, Henni hefur tekist að halda áfram því góða starfi sem Helgi hefur verið að vinna. Helgi skilst mér að mæti aftur eftir áramótin og taki við aftur. Helgi hefur hins vegar notað tímann vel því hann útsetti nokkur lög fyrir kórinn og verð ég að segja að útsetningar hans á Jólaketti Jórunnar Viðar og Gleði og friðarjól Magnúsar Eiríkssonar voru hreint út sagt frábærar. Til hamingju með það!
Hápunktur tónleikanna þótti mér þó flutningur Kammerkórsins á laginu Bæn sem srkáð er á Gísla á Uppsölum og Ómar Ragnarsson. Kórinn söng þetta lag af slíkri einlægni að ég veit ekki hvað það voru mörg andlit í minnihluta sem ekki táruðust. Stórbrotinn flutningur og yndislegt verk.
Í það heila tekið voru þessir tónleikar yndislegir og hlakka ég til að slást í hópinn á ný í febrúar.
Á morgun verður fyrsta úrtökukvöldvakan í Ríkissjónvarpinu þar sem baðstofugestir við skjáinn skera úr um það hvaða tvö lög fari í úrslitakeppnina um það hvaða lag siglir til Rússíá og verður flutt fyrir fyrirmenni í maí komanda.
Lögin sem verða flutt annað kvöld eru:
Dagur nýr eftir Halldór Guðjónsson og Írisi Kristinsdóttur. Flytjandi er Heiða Idol Ólafs.
Lagið byrjar hægt og rólega og það er dálítið eins og Birgitta Haukdal sé að syngja. Svo er straumi hleypt á lagið og það breytist í powerballöðu. Umgjörð lagsins minnir svakalega á Paradise lost sem Eiríkur Hauksson söng hér um árið. Þetta lag er með flottu gítarsólói þar sem Heiða óar og æjar yfir. Hins vegar er þetta lag of fyrirsjáanlegt og eins og mjög mörg önnur þannig að ég á ekki von á því að það fari langt. En útsetning og öll vinnsla er til fyrirmyndar.
Hugur minn fylgir þér eftir Valgeir Skagfjörð. Ólöf Jara Skagfjörð syngur.
Ljúft lítið lag í valstakti þó með reglulegri undantekningu þar sem ekki eru 3 slög í takti heldur 2 í einum takti af og til... Ég þekki ekki þetta taktform en vikivaki er það ekki. Slidegítar, bassi, trommur, hljómborð og nikka en hreint ekki kántrý. Þetta lag hefur upphaf, ris og enda en bara í útsetningunni. Það sem háir þessu lagi kannski mest er að það er of mikið eins og það hefur ekki burði til að gera miklar rósir nema hér heima. Ólöf Jara er ekki bara dóttir Valgeirs heldur líka Guðrúnar Gunnarsdóttur, söngkonu, og heyrir maður það mjög glöggt. Sumir elska röddina aðrir hata hana. Mér líkar mjög vel við raddir þeirra mæðgna.
Is it true eftir Óskar Pál Sveinsson, ofurpródúsent. Yohanna flytur.
Hér er komin barnastjarnan Jóhanna Guðrún og syngur hún þægilegt lag Óskars. Hann lætur eitt af mínum uppáhaldshljóðfærum, selló, syngjast á við söngkonuna og kemur það mjög vel út. Þetta lag er nokkuð fallegt og mjög vel flutt, enda þrælvanur maður í pródúksjón. Það að hann skuli einmitt vera svona vanur gerir það að verkum að hann veit hvað virkar í flesta og þar af leiðandi verður lagið dálítil blaðra, því miður. En sellóið bjargar því alveg. Þetta lag gæti átt talsverða möguleika hér heima og maður veit aldrei með loka keppnina.
The kiss we never kissed eftir Heimi Sindrason. Edgar Smári syngur.
Þetta lag er nokkuð glúrið hjá Heimi. Útsetningin hins vegar stórskemmir það, endalausar smjörfiðlur og gospillukór*. Edgar Smári hefur sýnt að hann er góður söngvari en þetta lag hentar honum alls ekki. Þegar hann fer í efri helming lagsins þá verður hann hjáróma og nefmæltur. Lagið nær aldrei almennilegu flugi því það er of mikill rembingur í því. Það er verið að rembast við að hafa útsetninguna stóra og mikla og síðan láta manngarminn þenja sig eins og hýena með hægðatregðu. Þetta held ég að hefði virkað með nikku, kontrabassa og gítar og sirka fimmund neðar. Þetta lag verður rekið öfugt heim.
*Gospillukór = Gospelkór sem selur sig í öll verkefni.
Þetta voru fyrstu 4 lögin.
FYLGIST SPENNT MEÐ Í NÆSTU VIKU!
Þið eruð að grínast er það ekki? Þessi útsending á laugardagskvöldið var ekki amatörleg... hún var skelfileg!
En hvað um það, spádómsgáfa mín jafn mikils virði og grænu baunirnar sem fóru í ruslið eftir hangikjötið á jóladag. Ég spáði lagi Valgeirs Skagfjörð áfram sem og lagi Óskars Páls. Reyndar komst lag Óskars áfram en mér þótti það hins vegar ekki eins skemmtilegt og lag Valgeirs.
Annað undankvöldið verður á laugardagsvköldið.
Fyrst nefni ég lag sem heitir Fósturjörð eftir Einar Scheving trommara og fyrrum skólafélaga minn. Hvort það var hann eða Jóel Pálsson sem tók Aromat í nefið í partýi man ég ekki. Alla vega... Páll Rósinkrans syngur lagið. Hér er komið lag sem er ekki júróvisjónlag. Það er voða lítið lag sem ætti meira heima í ættjarðalagakeppni. Sorry Einar, en ég fíla lagið ekkert sérstaklega í þessu samhengi en á öðrum vettvangi væri það frábært en textinn er flottur. Svo hef ég aldrei fílað Pál Rósinkrans eftir að hann sagði skilið við Jet Black Joe í gamla daga. Þetta fer ekkert.
Næsta lag sem ég nefni er Glópagull eftir Einar Oddsson, bæði lag og texti. Erna Hrönn Ólafsdóttir Singing Bee syngur. Mér féllust hendur þegar ég heyrði lagið. Það er lélegt og textinn alveg hræðilegur. Söngurinn frekar slappur og útsetningin ekki upp á marga fiska. Ég er hins vegar skíthræddur um að þetta fari áfram.
Skársta lagið að þessu sinni er eftir Júróvisjónfarann Hallgrím Óskarsson, lagið heitir Undir regnbogann. Textinn er eftir rokk- og júróvisjónhetjuna Eirík Hauksson og er lagið flutt af Ingó óveðri. Þetta lag er eins og sjálfstætt framhald af plötu Baggalúts, Aparnir í Eden, Ukulele, túba og fleira sniðugt. Smellið lag og glaðlegt. Ingó gerir þetta vel og vona ég að hann geri þetta líka vel live. Ég heyrði í Óveðurguðunum í útvarpinu um verslunarmannahelgina og ég hef sjaldan heyrt falskari og ósamstæðari hljómsveit. EN lagið er alveg ágætt og fer áfram.
Síðasta lagið sem boðað er á laugardag er Vornótt eftir Erlu Gígju Þorvaldsdóttur. Textinn er eftir Hilmi Jóhannesson. Það er Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm sem syngur. Lítið sætt lag... jah... eiginlega lítið lag, svolítið eins og ég held að hafi verið í gangi um 1950. Útsetningin er falleg en hér er komið annað lag sem ætti frekar heima á einsöngsplötu. Söngkonan er óþjálfuð og textinn fellur illa að laginu þannig að hún á erfitt með að syngja þetta. Þetta lag fer hvorki lönd né strönd.
En miðað við spádómsgáfur mínar þá getum við gert ráð yrir að annað lagið sem ég spái áfram fari áfram en hitt af þeim sem ég spái ekki áfram og veðja ég á að lag Hallgríms fari áfram.
Ég tek alltaf lýsi, you know it's not easy...
Leone Tinganelli hefur gefið út lag sem heitir Hálfur Íslendingur. Þaðan er framangreind lína. Gott ef það kemur ekki fram þarna líka Ég borða hákarl og slátur. Enn fremur má heyra hann syngja um að hann skuldi í kreppunni og sé alltaf blankur. Framburður hans á Íslensku er hins vegar dálítið hjákátlegur á köflum og minnir óneitanlega á Leoncie. Já, einhver varð að taka við af henni þegar hún stakk af. Ætli húsið hennar sé enn óselt í Sandgerði? Leone getur örugglega alveg fengið það...
1 Óskaland - Skuggasveinar - Gunnar Þórðarson/Jónas Friðrik Guðnason
Enn eitt vellulagið frá Gunnari Þórðar. Hann er staðnaður í ballöðunum. Hann er stórgott tónskáld og ætti að halda sig við klassíkina hér eftir. Ofhlaðið af röddum og rugli og fer í raun aldrei af stað.
2 Höllin - Magnús Þór & Stefán Hilmars - Magnús Þór Sigmundsson
Annað svona enneitt lag. Manni dettur helst í hug Eru Álfar Kannski Menn. Sami stíll og venjulega hjá Magnúsi. Ég óska eftir að hann geri eitthvað nýtt.
3 Þegar þungar þrautir - Beggi Dan & Tryggvi Már Gunnarss - Beggi Dan & Tryggvi Már Gunnarsson
Enn eitt rólegt lag. Hvað er þetta? trúbadorakeppnin með nýju nafni? Þetta lag er reyndar afskaplega líkt því sem kemur frá Magnúsi Þór Sigmundssyni en samt ferskara og mér finnst það eiga möguleika. En textinn afskaplega lítið bjartsýnn.
4 Betri tíð - Halli Reynis - halli reynis
Halli Reynis er þekktur fyrir trúbadoratónlist en hér er komið fjórða lagið sem er trúbadorlag að mestu. Halli Reynis hefur mér aldrei þótt skemmtilegur vegna þess að hann er aldrei frumlegur. Hann er svona ljósrit af Bubba og Dylan. Og í þokkabót er lagið vont sem og textinn.
5 Stöndum saman - Friðrik Ómar - Þormar Ingimarsson/Kristján Hreinsson
Jæja... þá er komið lag sem ekki er trúbadorlag. Hér er komið lag sem er ákaflega þægilegt áheyrnar með svona lalala kafla. Köntrí með sykurleðju. Samt lag sem gleymist fljótt.
6 Trú þín og styrkur - Upplyfting - Jóhann G. Jóhannsson
Þar kom að því. Smá fútt. Safn af frösum og úh og ah. Hræðilegt lag eiginlega. Léleg tilraun til Búggí Vúggí. Lélegur söngur og slappur texti.
7 Drullukalt - Langi Seli & nýju skuggarnir - Langi seli & Nýju skuggarnir
Hér er hljómsveit sem við getum gengið að vísu að spili ákveðna tónlistartegund. Rokkabillí og gríðarlegt stuð. Gaman að heyra Langa Sela kominn aftur í bransann. Þetta kalla ég bjartsýnislag sem gæti átt mikla möguleika. Þetta fúnkerar alveg í partýum.
8 Satan konungur apanna - dr. Gunni - dr.Gunni
Doktor Gunni er samur við sig. Varla bærilegt lag sem mér finnst ekkert eiga í bjartsýniskeppni að gera en samt þolanlegt singalong. En hvað er með þetta Satan konungur apanna? Ekki mikil bjartsýni í því. Pínulítil bítlafúga í lokin í röddum... annars frekar slappt.
9 Hvað væri lífið? - Matti Óla - Matti Óla
Þá erum við aftur komin í gítargírinn og ofhlaðnar raddir. Texti varla skiljanlegur þar sem söngvari er að reyna að herma eftir Megasi... og tekst það mjög illa. Meira að segja gítarspilið er óöruggt á köflum. Lagið alltaf eins og ekkert spennandi.
10 Fagra ísland - Sigurjón Brink - Halldór Guðjónsson/Íris Kristinsdóttir
Sagði einhver kassagítar? Jú og congatrommur. Síðan dettur bassi inn aðeins seinna. Hér er komið lag sem er faglega unnið og vel samið. Svei mér ef þetta á ekki bara möguleika. Það er bjartsýni og barátta þessu lagi og textinn dásamar landið.
11 Sólarylur - Þóra Björk Þórðardóttir - Þóra Björk Þórðardóttir
Hey, smá djassí sveifla. Skemmtileg sveifla og rólegheit. Lítil barátta en dálítil bjartsýni. Meira svona metnaðarfull tónsmíð og skemmtileg úrvinnsla. En ekki beint baráttulagið.
12 Lífsins lag - Unnur Birna Björnsdóttir - Björn Þórarinsson, Sigríður Birna Guðjónsdóttir/Gísli Sigurkarlsson,Sigríður Birna
Nei fjárinn... enn eitt rólegheitastykkið. Svosem bærilegt lag en þegar lög eru róleg þá finnst mér þurfa svo mikið uppá til að þau séu baráttu og bjartsýnilög. Inn í lagið er settur svolítið rifinn gítar og smjörfiðlur undir. Reyndar má segja að það gefi laginu skemmtilegan svip að vera með mjúkan sólógítar á ákveðnum stöðum en það er allt of mikið af honum og hann er aaaallt of framarlega. Lagið er klárað svo með hetjumetalgítarsólói í bakgrunni og hjáróma karlaraddir í bakröddum... Varla fugl né fiskur.
Það eru 10 af 12 lögum sem eru á einhvern hátt neikvæð á tímabili og frekar lítil barátta er í þeim. Helmingur laganna gætu hæglega verið komin úr smiðju Neil Young og býst ég við að Óli Palli hafi ráðið því.
Mig svíður það sárast að sjá að í 9 af 12 lögum eru mjög þjóðþekktir höfundar og/eða flytjendur. Til hvers að halda svona keppni þegar landsliðið fær 75% sætanna og við hin sem lögðum mikla vinnu í þetta fáum ekkert? Mín skoðun er sú að svona keppnir eigi að vera til þess að hinn óbreytti tónlistarmaður sem aldrei hefur komið sér á framfæri áður fái að láta ljós sitt skína í smá stund.
Hljómsveitin Færeyjar (hljómsveit sem ég er í) sendi inn lag í keppnina. Lagið heitir SKEMMTUM OKKUR VEL og er samið af Kristjáni Gauki Kristjánssyni. Eins og flestir þá lögðum við mikinn tíma í vinnslu lagsins. Okkur finnst þetta betur flutt en mörg lögin sem eru í úrslitum og betur unnið en sum.
Það má hins vegar ekki skilja að ég sé bitur vegna þess að okkar lag komst ekki áfram. Ég er bitur fyrir hönd allra þeirra sem sendu inn lag, höfðu fyrir því að gera lag og texta og taka upp í útvarpshæfum gæðum og jafnvel eyða talsverðum peningum í það og tíma. Ég leit alltaf á það sem sigur EF við kæmum okkar lagi að í úrslit. Lagið okkar er kannski ekkert meistaraverk en það er fjandakornið hressara og fyllra af bjartsýni og baráttu en mikið af þeim lögum sem eru í úrslitum. En ég er dauðhneykslaður á því að nokkur léleg lög nokkurra útbrunnina atvinnumanna í popptónlist skuli hafa komist áfram í stað þess að leyfa ferskum nöfnum að njóta sín alveg. Hvað var fólk eiginlega að borga með því að senda þetta inn til að fá þetta í gegn?!?
Ég hef séð það í auknum mæli að söngvarar eru farnir að nota svartan kassa til að syngja í gegnum við ólíklegustu tækifæri. Mér finnst þetta ekkert nema helvítis vítisvélar. Þetta hljómar verr en gamla úrvarpið í eldhúsinu hjá Ömmu heitinni í gamla daga. Dósahljóð og óþægilegt sánd. Það er yfirleitt of mikið miðjusánd í þessum kössum og aldrei gott jafnvægi hvort sem um er að ræða djúpar eða háar raddir. Tvö tilvik eru mér afskaplega minnisstæð. Annars vegar þegar Ragnheiður Gröndal söng með Kammerkór Hafnarfjarðar fyrir síðustu jól. Þar sökkaði sándið mjög feitt! Kór, Flygill og svo hún með svarta kassann... ekki alveg að passa. Hitt tilvikið er falleg athöfn sem varð nýverið þegar Védís frænka mín giftist honum Tomma sínum. Þá mætti Stefán Hilmarsson og tók þrjú lög. Stefán er með sterka rödd en hann kaus samt að syngja í gegnum þessa vítisvél. Hvað hafa söngvararnir að fela sem verður til þess að þeir telja sig þurfa svona voðatól? Þorir Stefán ekki að beita sér? Það muna allir þegar hann söng hástöfum SÓDÓMA eða HVAR ER DRAUMURINN af öllum lífs og sálar (já ég veit) kröftum. Stefán söng í Lágafellskirkju þar sem er góður hljómburður ef menn standa upp á orgellofti... og þar stóð kappinn og söng. En sándið sökkaði líka þarna. Hann hefði allt eins getað sungið í niðursuðudós. Ég verð í framhaldinu að biðja Védísi afsökunar á þessari gagnrýni en það er þessi heimska tónlistarmanna að nota þessi horrorbox við óviðeigandi tækifæri. Þessir meintu tónlistarmenn gerast í mínum huga TÓNSÓÐAR!
Nú er það svo að þetta árið kem ég ekki til með að horfa á eina einustu útsendingu frá Júróvisjón vegna leiksýningar sem ég tek þátt í, Orbis Terra-Ora, sem frumsýnd verður í Þjóðmenningarhúsinu 16. maí. Lagið Is it true sem Yohanna (Jóhanna Guðrún barnastjarna) syngur er skítsæmileg ballöðublaðra. Ég ætla ekki að gagnrýna það nánar eða önnur lög í þessari keppni.
En eitt benti Ásdís, eiginkona mín, mér á. Lesið textann og svo segi ég frá því sem hún benti mér á.
Is it true
You say you really know me,
You're not afraid to show me
what is in your eyes
So tell me about the rumors
Are they only rumors?
Are they only lies?
Falling out of a perfect dream, coming out of the blue.
Is it true?
Is it over?
Did I throw it away?
Was it you?
Did you tell me you would never leave me this way?
If you really knew me
You couldn't do this to me
You would be my friend
If one of us is lying
There's no use in trying
No need to pretend
Falling out of a perfect dream, coming out of the blue
Is it true?
Is it over?
Did I throw it away?
Was it you?
Did you tell me you would never leave me this way?
Is it real ?
Did I dream it ?
Will I wake from this pain
Is it true?
Is it over?
Baby did I throw it away?
Ætli þetta sé lagt í munn útrásarvíkings sem áttar sig á því að allt í einu er góðærið búið og hann hafi varpað öllu frá sér... eða eru þetta orð lögð í munn Árna Mathiesen og Geirs Hilmars Haarde og í stað orðsins BABY í síðustu línu... ætli það eigi að vera Mr. Darling?
Nei bara svona pæling...
Komiði sæl.
Í kvöld mun hin knáa hljómsveit Varsjárbandalagið leika lausum hala á Café Rósenberg. Í þeirri hljómsveit eru eftirfarandi:
Boris Kassaviskíj - Bassi, söngur og óþarfa fíflagangur
Tatjana Launkova - Harmonikka, söngur og almennar athugasemdir
Jan Terov - Trompet, gítar, söngur og annað smálegt
Igor Pavlovic - Klarinett, söngur og bernskubrek
Karl Pestky - Fiðla, söngur, græjur og uppvask
Evgeni Gerfinov - óskilgreindir hlutir sem má berja í, söngur og reglulegar geislavirknimælingar.
Þetta eru vitanlega dulnefni og þurfa menn að mæta til að sjá hvort þeir þekki mannskapinn og hvort þeim líki mannskapurinn.
Það er frítt inn svo endilega mætið að hlusta og takið sem flesta með ykkur.
Ágæta samkoma. Í kvöld mun Varsjárbandalagið stíga á svið á Café Rósenberg kl. 22.00. Það kostar aðeins €5,55 eða 1.000 krónur. Missið ekki af þessu einstaka tækifæri til að hlýða á klezmer og austur-evróputóna eins og þeir gerast bestir.
Þessi síða inniheldur skrá yfir allar færslur skráðar á Urr í Tónlistar urr flokkinum.
Pólitískt urr er flokkurinn á undan.
Urrað á börnin er næsti flokkur.
Margar fleiri er hægt að finna á aðalsíðunni eða með því að þvælast í gegnum gamalt.