Heim

Urrað um dýr Gamalt

Laugardagur 2. maí 2009

Kötturinn Jesper er týndur

Við eigum yndislegan kött sem við köllum Jesper Jeppesen... en hann gengur alla jafna undir nafninu Jesper þó svo einstaka sinnum sé hann kallaður Speri sprettur.

Á laugardaginn fórum við með hann til vina okkar í pössun þar sem við hjónin fórum í smá afslöppunarferð. Á sunnudeginum berast okkur þau tíðindi að Jesper hafi á einhvern óskiljanlegan hátt smyglað sér út um nánast lokaðan glugga... á Hagamel... í Reykjavík... og við búum í Hafnarfirði.

Jesper er hvítur með dökkum blettum á baki og höfði og með dökkt skott.

Jesper er hvers manns hugljúfi og afskaplega kelinn gaur. Hann er hins vegar líka rosalega hrekkjóttur. Hann á það til að snúa við og fara í hina áttina þegar maður kallar til hans, bara til að skaprauna manni.

Myndband frá því í janúar af kauða
http://www.facebook.com/v/74273627204

Jesper gæti verið á ferli á svæðinu í kringum Melabúðina og Vesturbæjarlaugina. Ef ég þekki sælkerann Jesper rétt þá er ekki loku fyrir það skotið að hann sé búinn að finna sér samastað í ísbúðinni á Hagamel...

Nú biðjum við þig lesandi góður að líta eftir honum ef þú átt leið um vesturbæinn eða að áframsenda þetta á alla sem þú þekkir í Vesturbænum. Uppáhaldsfelustaðirnir hans Jespers eru í þvottahúsum, undir veröndum og í skotum sem hafa að geyma einhvern hita.

Allar ábendingar eru vel þegnar hér í kommentakerfinu.

Um Urrað um dýr

Þessi síða inniheldur skrá yfir allar færslur skráðar á Urr í Urrað um dýr flokkinum.

Urrað á vinina er flokkurinn á undan.

Urrað um foreldrana er næsti flokkur.

Margar fleiri er hægt að finna á aðalsíðunni eða með því að þvælast í gegnum gamalt.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 1
Gestir í gær: 8
Þennan mánuð: 53

Færslur: 133
Álit: 251

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme