Heim

Urrað um foreldrana Gamalt

Þriðjudagur 27. janúar 2009

Mamma er veik

Á laugardagskvöldið var var mamma mín lögð inn á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi með heilablæðingu. Ástand hennar var frekar slæmt þegar komið var á spítalann og útlitið var eiginlega ekkert gott framan af mánudegi. En síðdegis á mánudag lifnaði yfir henni og hún gat aðeins talað og hreyft handleggina. Í morgun fékk ég svo þær fréttir að hún hefði brugðið sér í sturtu og væri öll að koma til. En það er ljóst að hún þarf að liggja á spítalanum í a.m.k. 8 daga til viðbótar og endurhæfingarferlið gæti tekið 1 - 2 mánuði og eftirköst taka jafnvel enn lengri tíma.

Ástæða þess að ég birti þetta hér er sú að það hafa svo margir spurt mig um hvernig henni líði og það er ágætt að fólk fylgist bara með hér svo ég hafi frið til að vinna. Ég skrifa hér þegar eitthvað er að frétta.

Miðvikudagur 28. janúar 2009

Ástandið

Ég fór í gær til mömmu og var það allt annað að sjá. Hún gat aðeins tjáð sig þó svo orðaskortur væri talsverður. Henni hafði verið rúllað í sturtu fyrr um daginn og henni leið mjög vel eftir það. Það er þó mjög langt í land. Engin ákvörðun hefur verið tekin um endurhæfingu eða framhaldið en mér þykir þó ólíklegt annað en að hún fari í endurhæfingu eftir sjúkrahúsleguna. Hún hefur sofið mikið og reynt að komast þannig í gegnum þetta. Það er ekki ráðlegt að heimsækja hana nema í samráði við mig og pabba því maðu veit ekki hvernig hún þolir mikið áreiti. Þið getið lesið fréttir hér daglega. Þetta blogg verður nánast eingöngu notað undir fréttir af mömmu á meðan hún liggur á spítala og hluti tengda veikindunum.

Ég fann á netinu vef samtaka þeirra sem hafa fengið heilablóðfall. http://www.heilaheill.is
Ég á eftir að skoða það sem þar stendur en þarf að gera það því þar ku leynast talsverður fróðleikur um þessi mál öll. Ég hvet ykkur til að lesa fræðsluefnið þar.

Ég fer til mömmu á eftir og mun líklega blogga í kvöld eða á morgun um þá heimsókn. Ég heyrði í pabba áðan og hann sagði mér að hún væri mun hressari en í gær. Hann hafði hitt lækni sem sagði að þetta væri allt á réttir braut og það var mikill léttir að heyra það. Fylgist spennt með.

Fimmtudagur 29. janúar 2009

Framför

Í gær þegar ég kom til mömmu sat pabbi hjá henni og þau höfðu bæðið dottað. Þau vöknuðu við það að ég læddist inn og heilsaði. Mér fannst fyrst um sinn að mamma væri í sama ástandi og daginn áður en það breyttist fljótt. Hún hnikaði sér meira til og hún var með gleraugun sín. Eftir dágóða stund kom hjúkka með matarbakka handa henni með lasagna og einhverjum graut. Mamma settist upp og ætlaði að prófa að borða en hún þoldi ekki lyktina og var bakkanum lokað. Hún hefur lítið sem ekkert borðað síðan hún kom á spítalann enda með næringu í æð. En fyrst hún getur sest upp af sjálfsdáðum þá finnst mér ástæða til þess að vera bjartsýnn. Ég bar henni kveðjur frá held ég festum sem beðið hafa fyrir kveðju til hennar en hún átti erfitt með að átta sig á sumum þar til ég nefndi fólk í nefnifalli. Ég sagði meðal annars að ég ætti að bera kveðju frá ... og svo nöfn í þágufalli. Hún varð undrandi á svipinn og kannaðist ekki við neitt en áttaði sig svo þegar ég sagði að ...nöfn í nefnifalli... hefðu beðið mig að skila kveðju. Svo fór hún að pæla í því hvort ég hefði ekki verið að beygja nöfnin vitlaust og mér finnst það ótvírætt batamerki. Ég átti spjall við sameiginlegan vin okkar mömmu og hann sagði einmitt svolítið sem mér þykir alveg sjálfsagt en á mjög vel við núna. Hann sagði að mamma gæfist aldrei upp, alveg sama hvað á dynur. Ég hlakka til að sjá framfarir dagsins.

Föstudagur 30. janúar 2009

Allt gott

Í gær fór ég eftir vinnu að heimsækja mömmu. Það var eiginlega allt annað að sjá hana. Það er kominn litur á hana aftur og hún farin að tala meira. Hún verður mjög auðveldlega þreytt samt þar sem læknar, sjúkraþjálfarar og annað starfsfólk er að aðstoða hana. Svo koma gestir og spjalla við hana og þegar dagur er að kveldi kominn þá er hún bara alveg búin. Hún hins vegar gekk fram í setustofu með aðstoð sjúkraþjálfa. Þetta er allt að koma og áður en við vitum af verður hún farin að spila golf á ný.

Meðan ég var hjá henni þá hringdi gamall vinur í mig og fór að ræða yfirstandandi júróvisjónkeppni. Við erum hjartanlega sammála um það að hljómsveitin ELEKTRA sem spilar á laugardaginn er með besta lagið þetta árið. Kannski engin stórkostleg lagasmíð en mikið stemmningslag. Það fær atkvæði mitt á laugardaginn. Ég hafði skrifað tvær færslur um fyrri júróvisjónkvöld hér en það þriðja hafði ég ekki tíma til að skrifa um og það var eiginlega ekki þess virði að skrifa um það þar sem það var í besta falli ömurlegt. Lögin núna eru mun skárri og ELEKTRA nokkrum levelum fyrir ofan hin.

Eftir það fór ég heim og sökkti mér ofan í lokaverkefnið sem ég er að fara að vinna fyrir MCITP Server 2008 námskeiðið sem ég er á (hét áður MCSA). Ég er mjög kátur með framfarir mömmu og það er bara ástæða til bjartsýni. En ég ítreka það að það er best að hafa samband við mig eða pabba ef fólk ætlar að heimsækja hana því hún gæti verið of þreytt til að taka á móti fólki...

Miðvikudagur 4. febrúar 2009

Afturför

Ég hef ekki komist til mömmu síðan síðasta fimmtudag vegna lokaverkefnis sem ég var í. Nú er ég búinn með námsferlið í MCITP Server 2008 og á bara eftir 4 gríðarþung próf sem ég samt tek þegar ég er tilbúinn til þess.

Af mömmu er það að frétta að í gær og í dag hefur henni hrakað. Hún er víst farin að rugla eitthvað og það setur okkur í smá ótta. Læknarnir vita ekki alveg hvað veldur þessu en telja að það gæti verið að þar sem blæðingin er að brotna niður þá hafi myndast bólgur sem þrýsta á ákveðnar stöðvar sem veldur þessari þróun. Við bíðum bara eftir því hvað næstu dagar bera í skauti sér. Krossum fingur.

Það skal tekið fram að þeir sem vilja heimsækja hana verða að gera það í samráði við mig og pabba og að gefnu tilefni verð ég að benda á að blóm eru bönnuð á deildinni þannig að gestir þurfa ekki að ómaka sig við að kaupa svoleiðis sem fer síðan til baka með þeim.

Laugardagur 7. febrúar 2009

Framför...

Á Grensásdeild er mamma í endurhæfingu. Í dag hringdi síminn minn og það var númerið hennar mömmu en ég var á mikilvægum fundi þannig að ég varð að hafna símtalinu. Eftir fundinn hringdi ég og mér fannst eins og mamma væri komin til baka... en svo töluðum við aðeins saman og ég komst að því að hún ruglar talsvert. En ég fann samt að hún áttaði sig strax á ruglinu þegar ég leiðrétti hana. Mér fannst það ótvírætt merki um framför. Þegar maður hefur legið veikur eða verið atvinnulaus þá hefur tími verið dálítið órætt hugtak og ég get trúað því að hjá henni sé tími ekki til. Ég hitti hana á morgun eða sunnudag og þá verð ég vonandi með góðar fréttir.

Þriðjudagur 10. febrúar 2009

stöðug framför

ÉG fór í gær í heimsókn til mömmu á Grensás. Hún er farin að tala nokkuð mikið og virðist vera á góðu róli. Hún hins vegar fær á næstunni talþjálfun en það er enn ekki ljóst hvenær hún byrjar. Sem dæmi um hvað hún er orðin hress þá misstum við okkur út í þrætu... Hún er reyndar enn að átta sig á nokkrum hlutum og þar sem hún er þrjóskari en allt þrjóskt þá neitar hún stundum að viðurkenna að hún hafi rangt fyrir sér... Já, mamma er öll að hressast.

Um Urrað um foreldrana

Þessi síða inniheldur skrá yfir allar færslur skráðar á Urr í Urrað um foreldrana flokkinum.

Urrað á vinina er flokkurinn á undan.

Urrað um heilsuna er næsti flokkur.

Margar fleiri er hægt að finna á aðalsíðunni eða með því að þvælast í gegnum gamalt.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 0
Gestir í gær: 2
Þennan mánuð: 5

Færslur: 111
Álit: 221

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme