Bakið
Fyrir 6 árum varð ég fyrir því óláni, 2 vikum fyrir brúðkaup mitt og minnar ástkæru eiginkonu, að fá útbúngun á brjóski milli hryggjarliða. Síðan þá hef ég verið vakandi fyrir því að þetta gæti tekið sig upp aftur og verið frekar varkár með bakið á mér. Reyndar hef ég ekki gert það sem fyrir mig var lagt, að létta mig. Þetta hefur einstaka sinnum gert vart við sig mjög lítillega og það hefur gengið aftur til baka. En á föstudag þá var ég að meðhöndla 18 stórar tölvur í vinnunni og gætti ekki að bakinu á mér. Ég þurfti að færa þær fram og til baka og upp og niður af vagni auk þess að setja 17 minni tölvur á vagn. Þetta var hraustlega gert þó ég segi sjálfur frá. En þá gerðist það, ég fékk í bakið. Kunnuglegur verkur gerði vart við sig og ég bölvaði því í sand og ösku. Þetta varð til þess að ég naut síður matarboðs sem við fjölskyldan fórum í á föstudag, komst ekki í afmæli á laugardag og naut ekki matarboðs á sunnudag. Í dag ætla ég að sjá hvort þetta gengur til baka að enhverju marki en ef ekki þá er það bara að rabba við lækni. Ég má ekki við því að vera frá vinnu núna og því verð ég að þræla mér í gegnum þetta.


