Heim

Þyngdin Gamalt

Mánudagur 15. september 2008

Að verða sér til minnkunnar... jákvætt


Nú er það spurning hvort maður reyni ekki rétt eina ferðina að grenna sig, létta sig, minnka ummál sitt... verða sér til líkamlegrar minnkunnar á jákvæðan hátt.

Ég hef einu sinni gert það virkilega opinberlega og það gekk svona lala. Ég hef líka minnkað mig óopinberlega og það gekk líka alveg bærilega... í eitt skiptið af mörgum.

Núna ætla ég að blogga um þetta og reyna að leggja fram tölur reglulega. Í þetta sinn geri ég þetta vegna þess að bakið á mér var að gefa mér gula spjaldið og því ástæða til að grípa til aðgerða. Ég er ekki búinn að vikta mig í dag og geri það líklega ekki fyrr en í fyrramálið.

Það má alveg búast við því að ég noti ýmsar aðferðir við þetta og það gerir þetta skemmtilegra. Ég hins vegar ætla ekki að fara út í Herbalife aftur því ég þyngdist bara af því. Allar hugmyndir eru vel þegnar, óháð því hvort ég nota þær eða ekki.

En fyrsta mál er að hætta að drekka áfengi nema við mjög sérstök tækifæri, hætta að drekka gos nema við mjög sérstök tækifæri - alveg sama hvort það er diet eða ekki.

Ég held að galdurinn sé að efla sjálfsstjórnina en neita sér ekki um hlutina algerlega eins og boðað er m.a. í svo kallaða Danska kúrnum. Í þeim danska eru hins vegar of mörg boð og bönn og vikulegar viktanir eru ekki á heimilislífið bætandi þar sem fram í febrúar hittist fjölskyldan ekkert öll á mánu-, þriðju- og miðvikudögum. Hins vegar má vel vera að maður skreppi út að labba þegar börnin eru sofnuð eða maður skelli sér í sund klukkan 6.30 áður en farið er í vinnu. Þetta er allt spurning um hvað ég hef mig í að gera.

Markmiðin eru síðan tvö. Annars vegar að þurfa ekki að þröngva mér um of í sætið í flugleiðavélinni þegar ég fer til Hollands í apríl og svo að geta farið að nota hjólið mitt þegar fer að vora.

Markmiðin eru raunverulega ekki kíló og grömm eða sentímetrar í ummáli heldur meira fleiri ólifuð ár með fjölskyldu og vinum og síðast en ekki síst betri líðan.

Fylgist með hvort ég springi á limminu í kvöld eða hvort ég held út fram á vor.

Um Þyngdin

Þessi síða inniheldur skrá yfir allar færslur skráðar á Urr í Þyngdin flokkinum.

Margar fleiri er hægt að finna á aðalsíðunni eða með því að þvælast í gegnum gamalt.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 0
Gestir í gær: 2
Þennan mánuð: 5

Færslur: 28
Álit: 75

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme