Japanskur kjúllaréttur

  • 4 bringur, skinnlausar.
  • 1/2 bolli olía
  • 1/4 bolli Balsamic edik
  • 2 msk sykur
  • 2 msk soyasósa
  • 1 poki núðlur (instant súpunúðlur) – ekki krydd.
  • möndluflögur (3-4 matskeiðar) eða eftir smekk
  • sesamfræ (1-2 matskeiðar) eða eftir smekk
  • Sweet hot chillisósu
  • Salatpoki
  • kirsuberjatómatar
  • 1 þroskað mangó
  • 1 paprika


olían, balsamic,sykurinn og soyað soðið saman í ca 1 mín og hrært í annað slagið meðan kólnar (ef ekki hrært skilur sósan sig)
Núðlur, möndlur og sesamfræ ristuð á pönnu, núðlurnar brotnar í smáa bita og þær ristaðar fyrst því þær taka lengstan tíma síðan möndlurnar og fræin. Kælt. (ath. núðlurnar eiga að vera stökkar).
Kjúklingabringur skornar í ræmur og snöggsteiktar í olíu gott að krydda með kjúllakryddi til dæmis. Sweet hot chillisósu hellt yfir og látið malla í smá stund.
Allt sett í fat eða mót. Fyrst salatið, síðan núðlugumsið ofan á svo balsamic blandan yfir og að síðustu er heitum kjúklingabringuræmunum dreift yfir.